Tíminn - 17.11.1976, Qupperneq 1
V
Islenzkir innflytjendur greioa iafn
vel hærra verð fyrir brezkar vörar...
gébé Rvik. — Verðmunur á
ýmsum vörutegundum i Lon-
don og hér lieima er nokkuð
mikill, en þó mismunandi eftir
vörum. Niðurstöður i þessari
könnun okkar liggja enn ekki
fyrir, en i könnun, sem gerð
var hér nýlega, kom i ljós að
mismunurinn er 13-27%, sem
þó er ekki bein niðurstaða, en
einnig er vitað um eitt tilfelli
þar sem verðmunur varailt að
60%, sagði Georg Ólafsson
verðlagsstjóri, þcgar Timinn
innti hann eftir árangri könn-
unarferðar hans til London á
dögunum. Ferð þessi var farin
í þvi skyni að safna gögnum
— en Bretar gera út
úr búð," segir
Georg Ólafsson,
verðlagsstjóri
um verðlag og verðmyndun i
London, sem gæti komið að
gagni við framkvæmd verö-
lagslöggjafar hér og til þess að
gera sér grein fyrir verðmis-
mun, sagöi hann.
Vandamálið er, að islenzkir
innflytjendur virðast borga þó
nokkuð hærra verð fyrir vör-
una i London en Bretar gera,
en eins og áður segir er verð-
mismunurinn nokkuð mikill,
þó hann sé misjafn eftir vöru-
tegundum.
— Við höfum tekið upp sam-
vinnu við brezka stofnun, sem
mun senda okkur mánaðar-
legar skýrslur um verðlag á
vörum, sagi Georg. Þá stend-
ur til að svona könnun á inn-
fluttum vörum verði einnig
gerð i Oslo og Stokkhólmi og
munum við fylgjast með þeim
könnunum. Hugsanlegir
möguleikar, sem gætu skýrt
þennan verðmismun eru um-
boðslaunin, prósentuálagning,
hvórt Bretar selji vörur ekki
dýrar til útlendinga, og svo
magnafsláttur, sem getur orð-
ið nokkur. T.d. er vitaö til
þess, að veröá vöru úr verzlun
i London er lægra, en það verö
sem islenzkur innflytjandi
hefur greitt fyrir sömu vöru.
— Ég vil helzt litið segja um
þetta mál á þessu stigi, þar
sem fullunnar niðurstöður
liggja enn ekki fyrir, sem
verður þó fljótlega, sagði
verðlagsstjóri að lokum.
• Fjárhagsáætlun sveitarfélaga — Sjá bls. 3
Borgarendurskoðanda falið
að rannsaka Snorra-málið
FJ-Reykjavik. — Á
fundi borgarráðs í
gær var samþykkt
að fela Bergi
Tómassyni borgar-
endurskoðanda að
rannsaka viðskipti
fyrirtækisins
Snorra h.f. við
Borgarspítalann.
Sem kunnugt er,
hefur Tíminn
skrifað nokkuð um
þessi viðskipti að
undanförnu og
m.a. birtist ítarleg
grein eftir Alfreð
Þorsteinsson i
blaðinu s.l. sunnu-
dag, þar sem f jall-
að var um málið.
Upphaflega ætlaði
Haukur Benediktsson
framkvæmdastjóri
Borgarspitalans að
gera borgarráði grein
fyrir málinu, en á fundi
stjórnar Borgar-
spitaians óskaði hann
sjálfur eftir þvi, að
rannsókn færi fram.
Borgarráð staöfesti þá
ósk með þvi að fela
borgarendurskoðanda
rannsóknina.
Mikil viðskipti hafa
farið fram milli Snorra
h.f., sem eru i eigu
dóttur og tengdasonar
framkvæmdastjóra
Borgarspitalans. Hafa
þau ávallt farið fram án
útboðs. Þegar svo útboð
var gert i satnbandi við
sjúkrarúm nýlega var
lagt til, að tekið yrði
hæsta tilboðinu, sem
Snorri h.f. átti.
Tillaga Hafrann-
sóknarstofnunar:
Aðeins
275 þús.
tonn af
þorski á
næsta ári
gébé Rvik — Hafrannsókna-
stofnun hefur nýlega sent
sjávarútvcgsráðuneytinu til
lögur um hvað fiskifræðing
ar telji að megi veiða á næstu
tveim árum. Kemur þar i
Ijós, að þeir telja hæfilegt að
veidd verði 275 þúsund tonn
af þorski, hvot árið. — Það
er fastur liður i okkar starfi á
Hafrannsóknastofnuninni aö
fylgjast með þessum málum
og láta ráðuueytinu i té til
lögur okkar um hámarks-
vciði, sagði Jón Jónsson for
stööumaður Hafrannsókna -
stofnunar i gær, og sagöi
hann aö unniö væri að tillög-
um um aðrar fisktegundir og
yrðu þær tillögur lagðar fyrir
sjávarútvegsráðuneytið fyr-
ir næstu áramót.
Samkvæmtspá Sigfúsar A.
Schopka fiskifræðings er
gert ráð fyrir, að um 340 þús-
und tonn muni veiðast af
þorski á þessu ári og sagði
Jón Jónsson að allt útlit væri
fyrir að þorskaflinn á árinu
1976 myndi verða hátt á
fjórða hundrað þúsund, en
ekki kvaðsthann hafa neinar
tölur fyrirliggjandi enn um
magnið.
Samkvæmt þessu, leggja
þvi fiskifræðingar til að
þorskveiðin verði a.m.k. 65
þúsund tonnum minni á
næsta ári heldur en hún var i
ár.
Tilboð upp á milljónir — Sjá opnu
’ÆNGIR"
Aætlunarstaðir:
Bildudalur-Blönduós-Búðardalui
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug ,A
um allt land
Símar:
2-60-60 oq 2-60-66
260. tölublað — Miðvikudagur 17. nóvember — 60. árgangur
Stjórnlokar
Oliudælur - Olíudrif
Síðumúla 21 — Simi 8-44-43