Tíminn - 04.12.1976, Side 16
16
Laugardagur 4. desember 1976
Félag einstæöra foreldra efnir til sins árlega jólabasars aö Hall-
veigarstöðum laugardaginn 4. desember, og hefst hann kl. 2. Fjár-
öflunarnefnd FEF hefur undirbúið basarinn og verður þar margt til
gjafa og eigu á boðstólum. Þar verða seldar kökur, tertubotnar, form-
kökur og smákökur, sem félagsmenn hafa bakað i hópvinnu. Seldar
verða tuskudúkkur, tuskufiskar og prjónaöir bangsar, sprellihestar,
litagrafikmyndir eftir barnateikningum, púðar glæsileg hekluð teppi,
tizkuprjónavesti á börn, peysur og sokkaplögg og svo mætti lengi telja.
Þá veröa Iþróttatrefiarog jólakortFEF seldá markaðnum.
Ailur ágóði rennur I Húsbyggingasjóð FEF.
Dagana 3.-5. desember stendur yfir f Bókasafni Akraness málverka-'
sýning finnsku listakonunnar Oiii Ellnar Sandström. Sýnir listakonan
að þessu sinni um 50 ollumálverk og eru iyrirmyndirnar sóttar I ís-
lenzkt og finnskt landslag, og einnig eru margar blómamyndir. Þetta
er 3. sýning frú Sandström hérlendis á þessu ári.
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins f Reykjavlk hefur ákveðið að halda
jólabasar f FélagsheimiliSkagfirðingafélaganna I Reykjavlk Sföumúla
35, laugardaginn 4. des. Þar verða til sölu margir góðir hlutir hentugir
til jólagjafa, ennfremur jólaskreytingar og kökur. Nú slðustu vikurnar
hefur staðið yfir innrétting á þessu félagsheimili og mun ágóðinn renna
til þess.
Rafmagns-hitakútar
Framleiðum og höfum á lager rafmagns-
kúta i eftirtöldum stærðum:
50 litra á krónur 48.500
100 litra á krónur 54.500
150 litra á krónur 63.800
200 litra á krónur 75.800
Sendum i póstkröfu hvert á land sem er.
Blikksmiðjan Grettir
Ármúla 19 — Reykjavik — Simi 8-18-77
Kynningarfundir
fyrir húsbyggendur
SÍÐASTLIÐNA viku hafa verið
haldnir i húsnæði Arkitektafé-
lags tslands við Grensásveg
ky nningarfundir fyrir hús-
byggjendur á vegum Bygging-
arþjónustu arkitektafélags is-
lands, Húsnæðismálastofnunar
ríkisins og Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins. Til að
leita nánari frétta um þetta
sneri Timinn sér til Garðars
Halldórssonar arkitekts, for-
manns Byggingarþjónustu arki-
tektafélags tslands.
„Byggingaþjónustan hefur
lengi starfað að þvi, að veita
fólki upplýsingar og þjónustu. Á
vegum hennar hafa verið haldn-
ar ýmsar sýningar, og er þá
bæði um að ræða fastar kynn-
ingar þar sem ýmis fyrirtæki og
stofnanirhafa sérbása og kynna
sina vöru, og svo sérsýningar,
þar sem reynt er að hafa yfirlit
yfir það helzta sem á boðstólum
er á ákveðnu takmörkuðu sviði.
Þar má t.d. nefna ljósasýningu,
sem haldin var nú fyrir
skömmu. En þar fyrir utan hef-
ur Byggingaþjónustan starfað
að þvi að veita tæknilega þjón-
ustu og upplýsingar. Fólk hefur
hringt til okkar með sin vanda-
mál, og við reynt að leysa úr
þeim eftir beztu getu.
Þessir kynningarfundir eru
þannig til komnir, að við töld-
um, að fólk sem á þyrfti að
halda, gerði sér ekki almennt
ljóst að það ætti kost á þessari
þjónustu. Því höföum við sam-
band við Húsnæðismálastofnun
rikisins og Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins til að at-
huga, hvort grundvöllur væri
fyrir þvi af þeirra hálfu, að
hleypa af stað kynningu fyrir
húsbyggjendur og fá á einu
bretti sérhæfða menn, sem gætu
gertgrein fyrir þeim vandamál-
um, sem fólk sem er að byggja,
getur rekið sig á.
Síðastliðinn laugardag var
fyrsti fundurinn haldinn. Var
þar fjallað um skipulagsmál,
gildi hönnunar, iðnaðarmenn,
lánamál, stærðarmat ibúða og
val byggingarefna, og fenginn
sérfræðingur til að fjalla um
hvert einstakt atriði. Þriðjudag-
inn i þessari viku var erindi um
heimilisgarða og á fimmtudags-
kvöldið um frágang innanhúss.
Fundurinn frá siðasta laugar-
degi verður endurtekinn I kvöld
(4. des.) og eftir hann munu
allir fyrirlesarar sitja fyrir
svörum, þannig að fólk getur
gengið á milli þeirra, rabbað við
þá og fengið nánari upplýsingar
ef þeir vilja.
Uppbyggingunni á þessum
kynningarfundum er þannig
háttað, að byrjað er að fjalla um
lóð og skipulagsmál, eða þátt
sveitarfélagsins, sem í þessu
sambandi er Reykjavikurborg.
Er það Hilmar Olafsson arki-
tekt frá Þróunarstofnun
Reykjavikurborgar, sem fjallar
um þann þátt. Þar kemur fram
allt það, sem húsbyggjandi ætti
að hafa áhuga á á því sviði:
Þróun ibúðabyggða, hvar næstu
lóðaúthlutanir verða, mat á
lóðaumsóknum, byggingarleyfi,
endurskipulag á gömlum bæjar-
hlutum, framtiðarbyggð borg-
arinnar o.fl.
Næst er þáttur, sem nefnist
gildi hönnunar. Hann er á veg-
um Arkitektafélags íslands, og
þar talar Þorvaldur S. Þor-
valdsson. Byggjandi þarf að
láta hanna fyrir sig húsið, en
áður en bygging getur hafizt
þurfa að liggja fyrir ákveðnar
teikningar, sem samþykktar
hafa verið af viðkomandi bygg-
ingaryfirvöldum. Það verður að
hyggja að og samræma margar
kröfur áður en hús eru reist til
að eignast gott hús. Þegar svo
lausnin er fundin þarf að koma
henni á framfæri við bygginga-
meistarann og aðra, sem við
bygginguna starfa, og til þess er
táknmál teikninganna notað.Þá
fjallar Þorvaldur um hvernig
komasteigií samband viðhönn-
uðina til að fá hús teiknað, og
kostnað við undirbúningsvinnu.
Gunnar S. Björnsson, húsa-
smíðameistari frá Meistara-
sambandi byggingamanna,
fjallar um iðnaðarmenn. Hann
rekur allar gerðir iönaðar-
manna og verksvið þeirra,
skyldur og ábyrgð. Ennfremur
talar hann um uppmælingu og
timataxta, hvernig þeir eru
uppbyggðir og reiknaðir út, og
hvert fólk geti snúið sér ef það
skilur ekki taxtann og vill fá
dæmt um hvort rétt er út reikn-
að.
Hilmar Þórisson deildarstjóri
hjá HUsnæðismálastofnun rikis-
ins ræður um lánamál. En lán er
forsenda þess i dag að fólk geti
byggt. Ýmist er um að ræða
vlxillán, ýmiss konar lifeyris-
sjóðalán eða lán frá Húsnæðis-
máiastofnun rikisins. Hilmar
fjallar þó aðeins um lán sem
húsnæðismálastofnun rikisins
veitir. Hann skýrir mismunandi
gerðir lána, skilyrði, sem þarf
að uppfylla til að fá lán, skil-
mála og afborganir.
Um stærðarmat ibúða talar
Magnús Ingi Magnússon tækni-
fræðingur hjá tæknideild Hús-
næðismálastofnunar rikisins.
Hann gefur upplýsingar um
reglur varðandi stærðarmat
Ibúða og ákvæði um byggingar-
stig húsa vegna lána Húsnæðis-
málastofnunar rikisins og á-
kvæði um hámarksstærð ibúða.
Siðastur talar svo Gunnlaugur
Pálsson arkitekt, deildarstjóri
hjá Rannsóknastofnun bygging-
ariðnaðarins. Hann fjallar um
val byggingarefna, að hverju
beri að gæta i sambandi við það,
og skýrir frá hver séu algeng-
ustu byggingarefnin. Slðan á
þriðjudags- og "fimmtudags-
kvöld voru haldin sér erindi um
garða- og umhverfisvernd og
Frágang innanhúss. ;Töldust
þetta svo sérhæfð efni, að ráð-
legast þótti að láta taka þau fyr-
ir á sérfundum.
Reynir Vilhjálmsson garð-
arkitekt ræddi um heimilisgarð-
inn. 1 erindi sinu kom hann m.a.
inn á skipulag garösins og
möguleika, hvernig bezt mætti
nýta hann með tilliti til útivist-
arsvæðis og ræktunar skraut-
jurta og matjurta, ræddi um
moldina og drap á helztu bækur
fyrir garðeigendur.
Það eru margir, sem kaupa
tilbúnar Ibúðir nýjar og gamlar,
og hafa þvi eðlilega fremur á-
huga á frágangi innanhúss
heldur en t.d. hvernig eigi að
sækja um lóöir o.þ.h. Það er
Kristin Guðmundsdóttir hi-
býlafræðingur sem fjallaði
um innréttingar og leiðbeindi
fólki um hvernig skyldi velja
efni og annað sem þvi viðkem-
ur.
Stefnt er að þvi að bæði Reyn-
ir og Kristin verði til viðtals i
fyrirspurnartimanum i kvöld á-
samt hinum fyrirlesurunum.
Hugmyndin er, að þessi kynn-
ingarvika sé prófsteinn á það,
hvort grundvöllur er fyrir að
halda þessari starfsemi áfram.
Það ætti að vera hægt að halda
aðra kynningu siðar i vetur eða
vor, og notast þá við þessi sömu
erindi, sem má endurbæta eftir
þvi sem þörf þykir. Það mætti
jafnvel gera þetta að árlegum
viðburði. Það er jú alltaf nýtt og
nýtt fólk, sem er að byggja og
þarf á upplýsingum að halda.
Það væri heldur ekki úr vegi að
fara með þessa kynningu út á
landsbyggðina, en fólk þar á
ennþá minni möguleika en fólk
hér á höfuðborgarsvæðinu á að
fá sérfræðilegar upplýsingar.
Enþaðyrðiörðugtaðhrinda þvi
i framkvæmd vegna kostnaðar
þvi samfara. öll vinna i sam-
bandi við kynningarfundina hef-
ur verið unnin I sjálfboðavinnu
enþráttfyrir það er augiýsinga-
og prentkostnaður orðinn þaö
hár, að við sjáum okkur ekki
fært annað en að hafa þátttöku-
gjaid á kynningunum.
Það þarf að mörgu að hyggja i
sambandi við byggingar, og
lenda margir i vandræðum og
vita ekkert hvert þeir eiga að
snúa sér. Við gerum okkur vonir
um að þessi erindi okkar hafi
komið fólki að einhverju gagni,
— það veit þó núna að þvi er
frjálst að snúa sér til allra
nefndra stofnana hér til að leita
eftir ráðum og upplýsingum.”
(JB)
- agl
1- - mBt *" ’ 1- ■ Jli Ek. JSm \ * . JKM&& K; I
Aðventusöngur verður haldinn sunnudaginn 5. des. I Háteigskirkju.
Þá munu 21 söngvariúr félagi Islenzkra einsöngvara syngja. Þetta er Ifyrsta skipti sem aðventusöngur
er á vegum félagsins. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og flutt verða verk eftir tónskáldin: Pál lsólfsson,
Sigurð Þórðarson, Þorkel Sigurbjörnsson, Gunnar R. Sveinsson, Jdn Nordal, Fjölni Stefánsson og er-
lenda höfunda. 6