Tíminn - 11.12.1976, Qupperneq 3
Laugardagur 11. desember 1976
3
H V-Rey k javik. —
Bankaráð Seðlabanka
íslands hefur ákveðið að
stofna sérstakan sjóð
sem beri heitið Þjóðhá-
tiðarsjóður, af ágóða af
sölu þjóðhátiðarmyntar-
innar, sem gefin var út
1974.
Stofnfé hans er þrjú hundruð
milljónir króna, og hefur stjórn
Seðlabankans gert það að tillögu
sinni, að hlutverk sjóðsins verði
að veita styrki til stofnana og
annarra aöila, sem hafa þaö
verkefni að vinna að varðveizlu
og vernd þeirra verðmæta lands
og menningar, sem núlifandi kyn-
slóð hefur tekið i arf.
Bankastjórn og bankaráð
seðlabankans buðu i gær forseta
landsins, rikisstjórn og fleiri aðil-
um til sin, til að kynna stofnun
sjóðs þessa og tillögur bankans
um ráðstöfun hans.
1 ávarpi, sem Jóhannes Nordal,
formaður bankastjórnar seðla-
bankans, hélt við það tækifæri,
kom fram, að af þjóðhátiðar-
myntinni voru slegnir tuttugu
þúsund gullpeningar að nafnvirði
krónur 10.000, eitt hundrað og ell-
efu þúsund silfurpeningar að
nafnverði 1.000 krónur og jafn
mikið af silfurpeningum að nafn-
virði krónur 500.
Að nafnverði var verðgildi
þjóðhátiðarmyntarinnar 366.5
milljónir króna, en miðað við
verð á innanlandsmarkaði var
heildar söluandvirði, að meðtöld-
um umbúðum og yfirverði á sér-
unninni mynt, samtals 524
milljónir króna.
Sérunnirvoru átta þúsund gull-
peningar og f jörutiu og eitt þús-
und peningar af hvorri gerð silf-
urpeninganna. Sérunna sláttan
var seld yfir nafnverði.
Hreinar sölutekjur af þjóðhá-
tiðarmyntinni eru taldar þrjú
hundruð þrjátiu og sjö milljónir
króna. M eð tilliti til þess, að frek-
ari kostnaður getur orðið vegna
innlausnar á mynt og annars,
heldur seðlabankinn þrjátiu og
sjö milljónum eftir, en leggur
þrjú hundruð milljónir i sjóðinn.
Sjóðurinn verður varðveittur i
Seðlabanka íslands, sem einnig
mun sjá um að ávaxta hann. í til-
lögu bankans um stofnskrá sjóðs-
Framhald á bls. 19.
Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Seðlabankans, afhenti I gær
Geir Hailgrimssyni, forsætisráðherra, tillögur bankans um stofnskrá
að Þjóðhátiðarsjóðnum. Timamynd Hóbert.
Listasafnið fær
eitt af æskuverku
Sigurjóns Olafssoi
halda
áfram
* 1,1 ,l111 ^
Fundar-
höld
bænda
um
kjara-
og verð-
lagsmál
Fundir á Vík,
Blönduósi
og í Víðihlíð
F.I. Reykjavik — Forseti tslands,
dr. Kristján Eldjárn, afhenti i
gær Selmu Jónsdóttur, forstöðu-
manni Listasafns tslands, eitt af
æskuverkum Sigurjóns Óiafsson-
ar, myndhöggvara, en það er
brjóstmynd af gefandanum, séra
Finn Tulinius, fyrrv. presti i Strö
á Sjálandi. Kvað dr. Kristján i á-
varpisinu Listasafni tslands mik-
inn feng að þessu æskuverki
Sigurjóns, sem unnið var i strik-
lotu, og flutti hann Finn Tulinius
þakkarorð.
Finn Túlinius er af islenzku
bergi brotinn, og er hann fæddur
18. sept. 1893. Hann hefur oft
komið til Islands, sótt hér presta-
stefnur og fylgt úr hlaði góðum
gjöfum, svo sem bókagjöfum i
Skálholtsbókasafn og útskorinni
altaristöflu, eigin handverki, sem
nú er i turni Skálholtsdómkirkju.
1 þetta sinn gat hann ekki komið
sjálfur og bað þvi dr. Kristján
Eldjárn að hafa milligöngu i mál-
inu.
Myndin er frá afhendingu
brjóstmyndarinnar i Listasafni
Islands, og eru á henni f.v.
biskupinn yfir Islandi hr. Sigur-
björn Einarsson, Sigurjón Ólafs-
son, myndhöggvari, Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra, Selma Jónsdóttir, listfræð-
ingur og forseti Islands dr. Krist-
ján Eldjárn. (Timamynd G.E.)
'
nýs fasteignamats
verða 4,5 til 6,5
— fasteignamatið
• i
hefur verið óbreytt
fró 1971
FJ-Reykjavfk. Nýtt matsverð fasteigna tekur
gildi um áramótin. Guttormur Sigurbjörnsson
tjáði Tímanum i gærkvöldi, aö margfeldi hins
nýja mats væru 4,5 til 6,5eftir einstökum eignum.
Nefndi hann sem dæmi, að fasteignir I Reykjavlk,
neðan Elliðaánna, yrðu margfaldaðar með 6, en
fasteignir í Breiðholti og Arbæ með 5,5. Fasteign-
ir í nærsveitum Reykjavikur verða margfaldaðar
með 6,5 að sögn Guttorms, en lægsti stuðullinn á
aftur á móti við útihús i sveitum.
Núgildandi fasteignamat, hefur verið óbreytt
frá 1971, þannig að nú verður um verulega hækkun
matsins að ræða samkvæmt upplýsingum Gutt-
orms.
A Alþingi hafa verið lögð fram frumvörp til laga
um breytingu á þeim lögum, þar sem fasteigna-
matsverð er viðmiðunargrundvöllur gjaldtöku
opinberra aðila, en þar til má m.a. nefna, fast-
eignaskatta, þinglýsinga- og stimpilgjöld og
erfðafjárskatt.
300 milljónir af ágóðanum settar
í Þjóðhátíðarsjóð
MÓ Reykjavik. — t kvöld
veröur bændafundur um
verðlags- og kjaramál að Vik
i Mýrdai, á mánudagskvöld
verður fundur á Blönduósi,
og i Viöihlið á þriðjudags-
kvöld. Þessir fundir koma i
framhaldi af fundum þeim,
sem haldnir hafa veriö á
Hvoli og i Árnesi.
A fundinn i Vik kemur Árni
Jónasson erindreki Stéttar-
sambands bænda og verður
frummælandi, en búnaðarfé-
lögin i Dyrhóla- og Hvamms-
hreppum standa fyrir fund-
inum.
Að fundinum á Blönduósi
standa Búnaðarsamband A.-
Hún. og Sölufélag Austur
Húnvetninga, en frummæl-
endur þar verða Gunnar
Guðbjartsson form. Stéttar-
sambands bænda, Guð-
mundur Sigþórsson deildar-
stjóri i landbúnaðarráðu-
neytinu og fulltrúi frá bú-
vörudeild SIS.
Fundinn i Viðihlið boðar
Búnaðarsamband Vestur
Húnvetninga og frummæl-
andi þar verður Gunnar
Guðbjartsson form. Stéttar-
sambands bænda.
Ágóðinn af þjóðhátíðarmyntinni
renni til varðveizlu og verndar
verðmæta lands og menningar