Fréttablaðið - 08.01.2006, Page 10
8. janúar 2006 SUNNUDAGUR10
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
SKIPT_um stíl
Björn Friðfinnsson, ráðuneytis-
stjóri og fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Eftirlitsstofnunar EFTA,
undirbýr nú málshöfðun gegn
íslenska ríkinu vegna samningsrofs
og hyggst fara fram á bætur.
Samkvæmt skriflegum samn-
ingi átti hann að taka við fyrri
stöðu sinni sem ráðuneytisstjóri í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu
nú um áramótin, eftir nokkurt hlé.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, skipaði hins
vegar Kristján Skarphéðinsson,
starfandi ráðuneytisstjóra sinn, í
embættið 13. desember síðastliðinn.
Jafnframt mun ráðherra hafa
tilkynnt Birni að hans starfskrafta
væri ekki óskað í ráðuneytinu.
Kristján Skarphéðinsson er
reyndur embættismaður og tengd-
ur Framsóknarflokknum. Hann
rekur hestabúgarð á Kóngsbakka
á Snæfellsnesi ásamt Finni Ingólfs-
syni, gömlum skólabróður sínum
og fyrrverandi viðskipta- og iðnað-
arráðherra.
Björn telur ráðninguna vera
skýlaust brot á gerðum samning-
um og hyggst stefna stjórnvöldum
fyrir samningsrof.
Tugmilljóna króna kröfur
Forsendur málshöfðunar hvíla á
forsetaskipun Björns Friðfinns-
sonar í embætti ráðuneytisstjóra
viðskiptaráðuneytisins árið 1989
og síðari samningi sem Björn gerði
við fjóra ráðherra; Davíð Oddsson,
Valgerði Sverrisdóttur, Halldór
Ásgrímsson og Björn Bjarnason.
Björn Friðfinnsson kveðst ekki
hafa neitt upp á Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra að klaga enda
hafi hann staðið við sinn þátt samn-
ingsins.
Í ljósi nýlegra málaferla og
starfslokasamninga sem ríki og
einkafyrirtæki hafa gert gætu
kröfur Björns Friðfinnssonar
numið háum fjárhæðum. Hann er
fæddur í desember 1939 og eru því
tæp fjögur ár þar til hann getur
farið á eftirlaun. Launakröfur
Björns gætu því hæglega numið 30
milljónum króna.
Björn mátti einnig sæta því að
vera úthýst úr ráðuneytisstjóra-
embætti sínu af Finni Ingólfssyni,
þáverandi viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra, í árslok 1996. Björn hafði
þá kosið að segja upp störfum sem
framkvæmdastjóri Eftirlitsstofn-
unar EFTA með aðsetur í Brüssel
til að taka á ný við embætti sínu.
Undanfarin tvö ár, eða frá því
hann lauk fimm ára setu í embætti
ráðuneytisstjóra dómsmálaráðu-
neytisins, hefur Björn annast sér-
verkefni fyrir stjórnvöld.
Varla geta sérverkefnin talist
sambærileg ráðuneytisstjórastarf-
inu. Eftir fund með Valgerði Sverr-
isdóttur í maí í fyrra stóð Björn í
góðri trú um að hann ætti að taka
við ráðuneytisstjórastarfinu á
nýjan leik nú um áramótin.
Brot á samningum við Björn
gætu fyrir rétti talist meingjörð
gagnvart honum og vel er hugsan-
legt að hann geti krafist tugmillj-
óna króna í miskabætur.
Því er hugsanlegt að kröfur
Björns Friðfinnssonar á hendur
íslenska ríkinu geti í heild numið
50 milljónum króna, sem varla telst
mikið hjá nýlegum starfslokasamn-
ingum á einkamarkaði.
Stjórnmál og embætti
Björn Friðfinnsson var fyrst skip-
aður ráðuneytisstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu árið 1989. Árið 1993
fékk hann leyfi frá störfum til þess
að gegna stöðu framkvæmdastjóra
ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA í
Brüssel.
Þegar Björn óskaði eftir fram-
lengingu á leyfi vegna starfa sinna í
Brüssel til ársloka 1996 gerði Finn-
ur Ingólfsson honum grein fyrir að
leyfið gæti hann fengið en gaf til
kynna að jafnframt yrði hann að
láta af embætti ráðuneytisstjóra.
Björn kaus að segja upp störfum
hjá ESA og taka við embætti á ný.
Þegar til átti að taka fór Finnur
fram á að hann tæki ekki aftur til
starfa sem ráðuneytisstjóri, meðal
annars með þeim rökum að óheppi-
legt væri að skipta oft um ráðu-
neytisstjóra.
Málið fór hátt í fjölmiðlum í árs-
lok 1996. Því lauk með samkomu-
lagi um að Björn tæki við ráðgjaf-
arstarfi um EES-samninginn fyrir
stjórnvöld og hafði þann starfa um
tveggja ára skeið, en tók þá við
stjórn dómsmálaráðuneytisins til
ársins 2003.
johannh@frettabladid.is
Ráðuneytisstjóri ætlar
að stefna ráðherra
Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri hyggst stefna viðskiptaráðherra og íslenska
ríkinu fyrir brot á samningum. Kröfur hans gætu numið tugum milljóna
króna. Í tíu ár hefur honum verið haldið frá ráðuneytisstjóraembætti sínu.
VALGERÐUR SVERRIS-
DÓTTIR, IÐNAÐAR- OG
VIÐSKIPTARÁÐHERRA
Verða kröfurnar 50
milljónir úr ríkissjóði?
BJÖRN FRIÐFINNSSON
Tvívegis hafnað, fyrst af
Finni Ingólfssyni og síðan
af Valgerði Sverrisdóttur.
Talið er að um 16 prósentum af ráðstöfunarfé meðalfjölskyldu á Íslandi
sé varið til innkaupa á mat og drykk. Áfengi er ekki talið með.
Þar sem kjör eru sambærileg í löndum Evrópusambandsins
og hér á landi ver meðalfjölskyldan um eða innan við 10
prósentum af ráðstöfunarfé til matarinnkaupa. Í fátækum löndum
Austur-Evrópu er allt að þriðjungi ráðstöfunartekna varið til að
nærast. „Líklegt er að draga þurfi úr eða jafnvel afnema allan
framleiðslutengdan stuðning,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra á fundi með viðskipta- og
hagfræðingum í vikunni. Jafn líklegt er að Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra
grípi til varnaraðgerða fyrir bændur.
Sérfræðingar létu á sér skilja á umræddum fundi Félags viðskipta- og
hagfræðinga að kostir Íslendinga væru þrír: Í fyrsta lagi mætti lækka matvöruverð
með því að ganga í Evrópusambandið. Í öðru lagi mætti gera tvíhliða samninga
um afnám eða mikla lækkun aðflutningshafta og/eða framleiðslustyrkja
af öðrum toga. Þarna er vitanlega átt við samninga sem gætu tekist einhver
tíma í krafti WTO, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Í þriðja lagi töldu þeir að
Íslendingar gætu fellt nður höftin og styrkina einhliða. Stjórnvöld ætla hvorki að
gera hið fyrst talda né hið síðast talda. Og þriðja atriðið er ekki á valdi Íslendinga
og kemur sjálfsagt ekki til framkvæmda fyrr en eftir mörg ár. Þess vegna setur
forsætisráðherra málið í nefnd.
VIKA Í PÓLITÍK
JÓHANN HAUKSSON
Maturinn og kjörin
Nú fækkum við ráðherrum
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, fjallaði í áramótagrein í
miðopnu Morgunblaðsins (hvar annars staðar) um endurskoðun á skipan
ráðuneyta. Hann gat um að lög frá 1969, sem Bjarni Benediktsson hafði
forgöngu um að setja, hefðu þjónað tilgangi sínum ágætlega. „Á hinn
bóginn hefur þjóðfélagið gjörbreyst undanfarin þrjátíu og fimm
ár og má færa fyrir því gild rök að skipting verkefna og
málaflokka í ráðuneyti sé ekki lengur í samræmi við kröfur
tímans. Því er tímabært að huga að breytingum á þeirri
skipan. Ég hef velt því fyrir mér hvort
rétt væri að auka svigrúm ríkisstjórnar
á hverjum tíma til að skipta verkum
milli ráðuneyta í samræmi við sínar
pólitísku áherslur líkt og gert er í
nágrannalöndunum... Finnst mér í
þessu sambandi einnig koma
til greina að binda fjölda
ráðherra við 9 eða 10.“
Þessi orð formanns
Sjálfstæðisflokksins leiddu
hugann að stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra snemma
vetrar. Þar sagði hann meðal annars: „Samt sem áður má margt betur fara
og hef ég látið hefja vinnu sem miðar að því að einfalda stjórnsýsluna og
gera hana markvissari og meira í takt við tímann. Það þýðir meðal annars
endurskoðun á lögum og reglum um Stjórnarráð Íslands.“
Hvað verður um Einar K. og Guðna?
Halldór sendi ráðherrum sínum minnisblað 12. ágúst síðastliðinn: „Lagt
er til að aðaláhersla verði lögð á endurskoðun á skipan ráðuneyta og verka-
skiptingu milli þeirra... munu dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra
leiða starfið af hálfu ríkisstjórnarinnar. Stefnt verði að því að hraða endur-
skoðuninni eftir föngum.“
Björn Bjarnason og Árni Magnússon hafa ekki haldið fund um málið
ennþá það best er vitað.
Ef farið verður að ráði Geirs H. Haarde verður að fækka ráðherrum um
tvo til þrjá. Líklegt má telja að atvinnuvegir verið settir undir sama hatt.
Iðnaður, sjávarútvegur, landbúnaður og fleira. Peninga- og bankamál undir
fjármálaráðuneytið en þau eru nú í viðskiptaráðuneytinu. Umhverfisráðu-
neytið fengi trúlega aukið hlutverk.
Hvað verður þá um Guðna Ágústsson og Einar K. Guðfinnsson?
Úr bakherberginu...
Líklegt er að draga þurfi verulega úr – eða jafn-
vel afnema – allan framleiðslutengdan stuðning.
Áhrifin verða væntanlega þau að innlend búvöru-
framleiðsla muni þurfa að laga sig enn frekar að
aðstæðum á markaði.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra á fundi Samtaka verslunar og þjónustu
og Félags viðskipta- og hagfræðnga.
FINNUR INGÓLFS-
SON, FORSTJÓRI
VÍS Vildi ekki fá
Björn aftur til
starfa árið 1996
þegar hann kom
heim frá Brussel.