Fréttablaðið - 08.01.2006, Qupperneq 14
8. janúar 2006 SUNNUDAGUR14
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigríður Guðmundsdóttir
Hringbraut 47, Reykjavík,
lést 28. des. Verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.00. Jarðsett verður frá
Grafarvogskirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent
á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.
Kristjana E. Magnúsdóttir
Margrét Ragnars Magnúsdóttir
Árni Kristinn Magnússon Margrét Jónsdóttir
Guðrún Björg Magnúsdóttir Árni Sverrisson
Anna Sigríður Magnúsdóttir Halldór Ragnar Halldórsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Arnkels Bergmanns Guðmundssonar
Dalbraut 16.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Hrafnistu við
Jökulgrunn H-2 fyrir hlýja og góða umönnun.
Hulda Guðmundsdóttir
Ásdís J.B. Arnkelsdóttir Róbert V. Tómasson
Arnkell Bergmann Arnkelsson Hulda Nanna Lúðvíksdóttir
og barnabörn.
Elskuleg frænka okkar,
Ásta Guðmundsdóttir
sem lést laugardaginn 31. desember, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. janúar kl. 15.00
Fyrir hönd aðstandenda,
Svava Hjaltadóttir
Oddný Finnbogadóttir.
NIKOLA TESLA (1856-1943) LÉST
ÞENNAN DAG.
„Dyggð okkar og veikleik-
ar eru óaðskiljanleg, líkt
og kraftur og efni. Ef þau
skiljast að er maðurinn ekki
lengur til.“
Nikola Tesla var serbnesk-bandarískur
uppfinningamaður sem fann upp sér-
staka gerð mótora.
MERKISATBURÐIR
1873 Eldgos hefst í Vatnajökli og
stendur fram á vor.
1895 Framsókn, fyrsta kvenna-
blað á Íslandi, hefur göngu
sína á Seyðisfirði.
1958 Bobby Fischer verður
Bandaríkjameistari í skák
aðeins fjórtán ára.
1959 Charles de Gaulle er settur í
embætti forseta Frakklands.
1962 Listaverkið Mona Lisa
er í fyrsta sinn til sýnis í
Bandaríkjunum á sýningu í
Washington.
1965 Sigríður Sigurðardóttir
handknattleikskona er
kosin íþróttamaður ársins,
fyrst kvenna.
1996 Francois Mitterand,
fyrrverandi Frakklands-
forseti, andast.
Á þessum degi árið 1642 and-
aðist ítalski stjörnufræðingurinn,
stærðfræðingurinn og eðlisfræð-
ingurinn Galileo Galilei á Ítalíu,
77 ára að aldri. Galileo fæddist
15. febrúar 1564. Hann hefur
alla tíð verið gífurlega mikils
metinn fræðimaður og sést það
best á því að hann hefur verið
nefndur „faðir nútíma stjarn-
fræði“, „faðir nútíma eðlisfræði“
og „faðir vísindanna“.
Hann var upphafsmaður þess að
samhæfa kenningu og tilraunir
í eðlisfræði. Hann leiddi út lög-
málið um jafna hröðun fallandi
hlutar og sannreyndi það með
tilraunum. Einnig leiddi hann
út fleygbogaferil hlutar á flugi í
þyngdarsviði.
Hann fann upp sjónaukann og
gerði fyrstur manna merkar og
framúrskarandi athuganir með
sjónauka á stjarnfræðilegum fyr-
irbærum. Seinna á ævi hans olli
stuðningur hans við kenningar
Kópernikusar um það að reiki-
stjörnurnar gengju umhverfis
sólina árekstri við kirkjuna.
Hann var ákærður fyrir villutrú
og var árið 1633 dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi. Vegna hás aldurs
og heilsubrests fékk hann að
afplána dóminn í stofufangelsi.
ÞETTA GERÐIST > 8. JANÚAR 1642
Stjörnufræðingurinn Galileo andast
GALILEO GALILEI
„Ég er að hugsa um að hafa
þetta heimilislegt og kósí þótt
kalla megi þetta stórafmæli,“
segir Dóra Takefusa glað-
lega, en hún heldur upp á
35 ára afmæli sitt í dag.
„Af því að afmælið ber upp
á sunnudag er ég að hugsa
um að hafa afmæliskaffi,“
segir hún og ætlar að bjóða
nánustu vinum og fjölskyldu.
„Ég var nú reyndar að taka
þetta saman og þetta eru
hátt í fimmtíu manns,“ segir
hún og skellir uppúr.
„En fólk droppar bara inn ef
það langar að koma,“ bætir
hún kímin við. Reyndar
býr Dóra ekki svo vel að
eiga fimmtíu kökudiska.
„Ég var einmitt að hugsa
um að vera bara í þeirri
stemningu að hafa blöðrur
og afmælispappadiska. Það
virkar örugglega ágætlega,“
segir hún glettin.
Dóra segist yfirleitt lítið
halda upp á afmæli sín. „Það
hefur verið tíska hjá okkur
vinkonunum að fara út að
borða saman og það er mjög
klassískt. Í fyrra átti ég
afmæli á laugardegi og þá
hélt ég kampavínsboð fyrir
vinkonurnar sem var mjög
skemmtilegt,“ segir Dóra.
Hún á þó yfirleitt kælt hvítvín
og snittur ef fólk skyldi líta
inn á afmælisdaginn. „En nú
ákvað ég að fyrst ég er að
verða 35 væri allt í lagi að
baka nokkrar hnallþórur og
hella upp á kaffi.“
Dóra er nú í óða önn að
gera kostnaðaráætlanir
og tilboð í verkefni fyrir
fyrirtæki sitt, Að eilífu, sem
sér um almannatengsl og
viðburðastjórnun. „Janúar
er mikill undirbúnings-
mánuður. Fyrirtækin eru að
leggja línurnar fyrir árið og
svo fer þetta af stað seinni
hluta mánaðarins,“ upplýsir
hún og segir reksturinn
ganga nokkuð vel.
„Það tekur auðvitað alltaf
sinn tíma að stofna fyrirtæki,
annars myndu allir hella sér
út í fyrirtækjarekstur ef
þetta væri ekkert mál. Það
hefur hins vegar gengið vel,
ég er mjög ánægð og get
ekki kvartað,“ segir Dóra
hæversklega.
Dóra kann vel við að
eiga afmæli svo nálægt
áramótum. „Þegar ég á
afmæli er það upphaf að nýju
ári og maður er innstilltur
á að taka á móti því með
nýjum fókus og með því að
byggja upp nýja orku,“ segir
Dóra glaðlega. Hún á þá
afmælisósk helsta að eiga
bjart og gott árið 2006. ■
KÖKUBOÐ MEÐ BLÖÐRUM Þar sem afmæli Dóru ber upp á sunnudag
ákvað hún að bjóða vinum og fjölskyldu í kaffi og kökur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓRA TAKEFUSA: ER 35 ÁRA Í DAG
Hnallþórur á pappadiskum
André Bachmann
tónlistarmaður er
57 ára.
Þuríður Backman alþingismaður
er 58 ára.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gestur Ingvi Kristinsson
Torfnesi, Hlíf I, Ísafirði, áður Hlíðarvegi 4,
Suðureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Ísafirði að kvöldi
fimmtudagsins 5. janúar.
Sólveig Hulda Kristjánsdóttir
Þuríður Kristín Heiðarsdóttir Páll Ólafsson
Kristinn Gestsson Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir
Óðinn Gestsson Pálína Pálsdóttir
Gunnhildur Gestsdóttir Albert Högnason
Jón Arnar Gestsson
Sveinbjörn Yngvi Gestsson
barnabörn og barnabarnabarn.
AFMÆLI
Karl Örvarsson,
hönnuður og
tónlistarmaður, er
39 ára.
Þorgrímur
Þráinsson
rithöfundur er
Ingólfur H. Ingólfsson
fjármálaráðgjafi er
56 ára.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1935 Elvis Presley
söngvari.
1909 Jose
Ferrer, leikari og
leikstjóri.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Okkar ástkæru
Ólöf Linda Ólafsdóttir og Jón Ingi Tómasson
eru látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey, þökkum
auðsýnda samúð og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Theódóra Alfreðsdóttir Þórður Júlíusson
Ólafur Baldursson
Jóhanna Óskarsdóttir
og fjölskyldur.
ANDLÁT
Gunnar Vigfússon, Grettisgötu
80, Reykjavík, lést laugardaginn 3.
janúar. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Helgi Runólfsson, Ánahlíð 12,
Borgarnesi, lést á heimili sínu
fimmtudaginn 5. janúar.
Ólafur Ásgrímur Þórðarson
bóndi, Rauðamýri, síðar að
Breiðuvík 24, Reykjavík, lést
miðvikudaginn 4. janúar.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Víðigrund 4, Sauðárkróki, lést á
Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar
fimmtudaginn 5. janúar.
Sophus A. Guðmundsson,
Sléttuvegi 13, Reykjavík, lést
á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
miðvikudaginn 4. janúar.
Svanlaug Pétursdóttir frá Sauðár-
króki lést á Sjúkradeild Hrafnistu
Hafnarfirði fimmtudaginn 5. janúar.
Elías Snæland
Jónsson rithöfundur
er 63 ára.