Fréttablaðið - 08.01.2006, Síða 22
[ ]Atvinnuleit gengur oft ágætlega í janúar. Margir breyta til í kring-um áramót og því eru alltaf einhver störf sem þarf að manna.
Heyrnarskemmdir eru
óafturkræfar og ólæknanlegar
og því hugar Vinnueftirlitið að
hávaða á vinnustöðum víðs
vegar um landið.
„Það er ætíð verið að berjast
gegn hávaða á vinnustöðum,“
segir Steinar Harðarson,
umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins
í Reykjavík, og bætir við að
flestir tengi hávaða á vinnustað
við útivinnu eða verksmiðjur þar
sem stórar vélar og tæki eru í
gangi.
„En hávaðasamur vinnustaður
getur líka verið skrifstofa, þar
sem hávaðinn er vegna
starfseminnar almennt,
hávaði frá prenturum,
loftræstikerfi, kliður í opnu
umhverfi vegna símtala og
símhringinga, eða bara of mikið
bergmál. Þá er hávaðinn lýjandi
og þreytandi,“ segir Steinar. „En
hinn hávaðinn, sem fer upp fyrir
ákveðin mörk, hann er beinlínis
hættulegur.“
Fari hávaðinn yfir 80 desibel
verður starfsfólkið samkvæmt
lögum að nota heyrnarhlífar
því annars getur hann
valdið heyrnarskaða, sem er
ólæknanlegur atvinnusjúkdómur,
og vinnuveitandanum er gert að
minnka hávaðann ef unnt er.
„Þessi sjúkdómur getur líka
verið hættulegur í sjálfu sér
þar sem menn heyra þá
síður aðvörunarhróp
eða í vélum sem eru að
nálgast,“ segir Steinar.
„Svo ein-
angrar hann fólk og kemur í
veg fyrir að það geti átt í eðlileg
samskipti við samstarfsfólk sitt.“
Þessi tíðni er lægri en margan
grunar.
„Hávaðinn getur til dæmis
verið 85 desibel við Miklu-
brautina á háannatíma,“ segir
Steinar. „Hann nær ekki
sársaukaþröskuldinum, en manni
finnst hann samt óþægilegur.“
Auk þessa er ákaflega
þreytandi að vinna í miklum
hávaða dag eftir dag og heyrnar-
hlífar geta virkað þvingandi á
suma, svo vinnuveitendur eru
yfirleitt allir af vilja gerðir til að
minnka hávaðann.
Besta lausnin er að koma í veg
fyrir að hávaðinn myndist. Þá
er til dæmis hægt að einangra
stórar, háværar vélar, byggja
skilveggi eða dempa bergmál.
Einnig er hægt að stytta veru
starfsmanna í hávaðanum og
úthluta heyrnarhlífum, en þær eru
oft neyðarúrræði sem notast er við
á meðan leitað er annarra lausna.
„Það er alltaf verið að reyna
að finna einhver ráð til þess að
minnka hávaða og með árunum
hafa margar vélar og tæki orðið
hljóðlátari. Þar af leiðandi eru
mjög hávaðasamir vinnustaðir á
undanhaldi,“ segir Steinar.
smk@frettabladid.is
Hættulegur og þreytandi
hávaði á vinnustöðum
Steinar Harðarson, umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Enn átta margir sig ekki á því
hvað einelti er, eða hvernig
bregðast skuli við því verði fólk
annað hvort fyrir einelti sjálft
eða taki eftir því á vinnustað
sínum.
„Einelti getur verið ákaflega
falið vandamál og ég held fólk
hafi ekki enn alveg áttað sig
á því hvað er einelti og hvað
eru samskiptavandamál,“
segir Jóhanna Þórdórsdóttir,
fræðslustjóri SRFR, en vorið
2004 gaf stéttarfélagið út
ítarlegan bækling um þetta
vandamál. „Þess vegna er afar
mikilvægt að umræðan fái að
þróast í þjóðfélaginu, að fólk tali
sín á milli um hvað einelti er.“
Einelti er endurtekin neikvæð
eða óviðurkvæmileg hegðun
eins eða fleiri aðila gagnvart
samstarfsmanni eða -konu.
Vandinn getur komið fram í
ýmsum formum og verið afar
missýnilegur. Sums staðar er
fólk lagt í einelti fyrir framan
aðra starfsmenn, hvort sem þeir
taka þátt í eineltinu eða ekki,
en í öðrum tilvikum gerist það
eingöngu þar sem aðilarnir eru
tveir einir saman.
Verði fólk fyrir einelti, eða
verði það vart við einelti á vinnu-
stað sínum, er mikilvægt að það
haldi bókhald yfir atvikin.
„Þá eru það svona hlutir eins
og dagsetningar, tímasetningar
og hverjir eru viðstaddir sem
skipta máli,“ segir Jóhanna.
Ef fólk treystir sér til er
auðvitað alltaf best að ræða beint
við gerandann en að sögn Jóhönnu
er það í undantekningartilvikum
sem þolandinn sjálfur treystir
sér til þess. Þá er best að leita til
trúnaðarmanns eða yfirmanns,
svo lengi sem þeir eru ekki
aðilar að eineltinu, eða þá að
snúa sér beint til viðkomandi
stéttarfélags. Jafnframt hefur
Vinnueftirlitið nýverið sett
skýrari línur um einelti.
Frekari upplýsingar er að finna
á heimasíðu SFR, www.sfr.is. ■
Einelti er falið vandamál
Einelti á vinnustað getur verið afar flókið
vandamál. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Staða líftækniiðnaðarins á Ís-
landi er erfið eftir nær stöðuga
niðursveiflu síðan um aldamót-
in síðustu.
Um síðastliðin mánaðamót gripu
Hjartavernd og Urður, Verðandi,
Skuld til þess ráðs að segja upp
tugum starfsmanna. Þetta var gert
vegna erfiðs rekstrarumhverfis
og óhagstæðs gengi krónunnar.
Stærstur hluti kostnaðar Urðar,
Verðandi, Skuldar og Hjarta-
verndar er innlendur en tekjur
koma frá útlöndum og því kemur
hátt gengi krónunnar sér ákaflega
illa fyrir þau.
Flest fyrirtæki í líftækniiðnað-
inum virðast illa stödd ef marka
má orð Jakobs K. Kristjánssonar,
formanns Samtaka íslenskra líf-
tæknifyrirtækja. ,,Þau fyrirtæki
sem lifað hafa af fram til þessa
hafa þegar marghagrætt í rekstri
sínum,“ segir Jakob. ,,Þegar rofa
tekur til á erlendum mörkuðum
er því enn hörmulegra að íslensk
líftæknifyrirtæki skuli sérstak-
lega barin niður vegna óhagstæðs
rekstrarumhverfis og áhuga- og
aðgerðaleysis stjórnvalda.“ ■
Erfitt rekstrarumhverfi
Fræðsluvefurinn rikiskassinn.
is á vefsvæði fjármálaráðu-
neytisins var nýverið uppfærð-
ur, en vefurinn gefur upplýs-
ingar um ýmis meginatriði í
ríkisrekstri og efnahagsmálum.
Vef fjármálaráðuneytisins, rikis-
kassinn.is, er ætlað að varpa ljósi
á ríkisbúskapinn. Á honum er að
finna ýmsan fróðleik og yfirlit um
ríkisbúskapinn, verkefni ríkisins,
tekjur þess, eignir og skuldir.
Hann skýrir hvernig og hvers
vegna einstök verkefni eru valin,
með hvaða hætti ríkið sinnir
skyldum sínum við landsmenn
og hvernig farið er með
peninga okkar allra. Ráðuneytið
bendir sérstaklega á að efni
vefsins getur nýst í kennslu og
verkefnavinnu nemenda í grunn-
og framhaldsskólum.
Á vefnum kennir margra
grasa. Sem dæmi um upplýsingar
sem þar fást eru staðreyndir eins
og að það kostar ríkið 2,4 milljónir
að útskrifa einn stúdent, íslenskur
landbúnaður kostar hvern íbúa
landsins 26.000 krónur á ári
hverju, ein mjaðmakúluaðgerð
kostar 700.000 krónur, og ríkið
greiðir 2,5 milljónir króna á hvern
kílómetra af bundnu slitlagi sem
lagt er. Auk þess kostar fæðing
hvers barns um 108.000 krónur en
keisaraskurður hálfa milljón.
Þó er tekið fram að tölurnar
séu meðaltalstölur og án nán-
ari útskýringa. Þeim er fyrst og
fremst ætlað að veita innsýn í
kostnað við þjónustu ríkisins og
varast ber að vitna í þessar tölur
sem heimild um raunverulegan
kostnað vegna einstakra útgjalda-
liða.
Auk þessara upplýsinga er
spurningaleikur á vefnun og orð-
skýringar sem og vísanir á ítar-
efni.
Vefsíðan rikiskassinn.is gefur upplýsingar
um ríkisbúskapinn og hlutverk hans í
hagkerfinu.
Ríkiskassinn uppfærður
Gistinóttum á hótelum landsins
fjölgaði í nóvember um rúm átta
prósent frá því árið áður, sam-
kvæmt upplýsingum af vefsíðu
Hagstofunnar.
Gistinætur á hótelum í nóv-
ember árið 2005 voru 57.400 en
í sama máðuði árið 2004 voru
þær voru 53.000. Aukningin náði
til alls landsins, en hlutfallslega
varð hún mest á Suðurlandi, þar
sem aukningin náði rúmum 40
prósentum.
Bæði voru það Íslendingar og
erlendir ferðamenn sem notuðu
gistiaðstöðuna í nóvember. ■
Gistinóttum fjölgar
Gistinóttum fjölgaði í nóvember 2005 frá sama mánuði árið 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hávaði á vinnustað
getur verið
ákaflega lýjandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.