Fréttablaðið - 08.01.2006, Side 46
Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda, hefur
unnið ábyrgðarfull störf
í gegnum tíðina þrátt
fyrir ungan aldur. Hann
er ánægður í sínu starfi
enda liggur metnaður
hans á þessu sviði.
Embætti talsmanns
neytenda var stofnsett
um mitt seinasta ár og var
Gísli þá skipaður í starfið.
,,Ég hafði verið að starfa
á svipuðum vettvangi í
mörg ár og langaði til
þess að breyta örlítið til.
Áhugi minn lá samt áfram
í því að reyna að bæta kjör
almennings og því var þetta
í raun mjög rökrétt skref hjá
mér,“ segir Gísli en hann er
menntaður í bæði lögfræði
og viðskiptafræði. Áður
en Gísli varð talsmaður
neytenda hafði hann unnið
sem framkvæmdastjóri
BHM, bandalags háskóla-
manna.
Gísli er ungur að árum,
rétt kominn yfir hálffertugt,
en hefur þó margvíslega
reynslu á bakinu. Meðan
hann var í menntaskóla
og háskóla vann hann til
dæmis á dagblaðinu Degi á
Akureyri. ,,Ég byrjaði þar
sem ljósmyndari en færði
mig svo yfir í fréttaskrif,“
segir Gísli og bætir við
að blaðamannastarfið og
starfið sem hann hafi í dag
séu mjög ólík, skiljanlega.
,,Þegar ég var blaðamaður
sá maður afrakstur vinnu
sinnar strax daginn eftir.
Þessu er öðruvísi háttað
núna því þeirri vinnu sem
ég skila í dag sé ég ekki
almennilega afraksturinn
af fyrr en eftir kannski
nokkur ár. Starfið sem ég
sinni hefur það líka í för
með sér að það er ég sjálfur
sem þarf að taka af skarið
og ráðast í verkefnin. Sem
blaðamaður var þetta
meira lagt upp í hendurnar
á manni.“
Önnur minnisstæð
störf sem Gísli man
eftir eru þau sem hann
sinnti á meðan hann bjó í
Danmörku. ,,Meðal annars
vann ég eitt sumarið sem
landbúnaðarverkamaður.
Eitt verkefnið var að
hrista kirsuberjatré þar
sem maður var á vél sem
fimm störfuðu á og hristi
kirsuber af trénu. Svo vann
ég í hálft ár sem bréfberi
og öll árin mín meðan ég
var í menntaskóla starfaði
ég sem sundlaugarvörður.“
Spurður hvað af þessum
störfum hafi verið
skemmtilegast á Gísli erfitt
með að finna eitthvað eitt
starf. ,,Það var nú frekar
einmanalegt að vera
bréfberi en hins vegar
góð líkamsrækt. Svo var
fróðlegt að vinna sem
landbúnaðarverkamaður
en ég bý að þeirri reynslu.
Þægilegast og best var
þó kannski að vera sund-
laugarvörður. Á maður ekki
bara að vera með klisju og
segja að öll reynsla sé góð
og nýtist manni síðar,“ segir
Gísli að lokum og hlær.
steinthor@frettabladid.is
Hristi kirsuberja-
tré í Danmörku
Gísli Tryggvason tók við starfi talsmanns neytenda á síðasta ári en hefur
margvíslega reynslu að baki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ATVINNA
18 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR
SPRON óskar að ráða forstöðumann reikningshalds.
Starfssvið
• Ábyrgð á faglegri uppbyggingu verkferla/vinnubragða við
bókhald og mánaðarleg uppgjör
• Ábyrgð á vinnslu hagtalna og skýrslugerð
Forstöðumaður reikningshalds heyrir undir fjárhagssvið.
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði endurskoðunar
• Próf í löggiltri endurskoðun væri kostur
• Góð þekking á upplýsingakerfum
• Starfsreynsla
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði og skipulagshæfileikar
• Frumkvæði og metnaður
Forstöðumaður
reikningshalds
www.spron.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ósvaldur Knudsen, framkvæmdastjóri
fjárhagssviðs, og starfsmannaþjónusta SPRON í síma 550 1200.
Umsóknir óskast sendar á starfsmannaþjónustu SPRON á netfangið
starfsmannathjonusta@spron.is fyrir 16. janúar nk.
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
SPRON byggir samkeppnis-
hæfni sína á ábyrgu og
hæfu starfsfólki sem nýtur
sjálfstæðis í starfi, ávinnur sér
traust viðskiptavina og veitir
þeim framúrskarandi lipra og
skjóta þjónustu. Í öllu starfi og
samskiptum, bæði innbyrðis
og gagnvart viðskiptavinum,
er áhersla lögð á traust,
frumkvæði og árangur.
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA