Fréttablaðið - 08.01.2006, Page 64
8. janúar 2006 SUNNUDAGUR24
■ Sudoku dagsins
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver dálkur
og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á bilinu 1 til
9. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar sinnum í
sömu línu, sama dálki eða sama 3x3 kassa. Engin
stærðfræðikunnátta er nauðsynleg þó leikið sé
með tölum. Þrautin er leyst með rökhugsun og
útsjónarsemi. Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar
eru á www.sudoku.com. Lausn þrautarinnar birtist
á sama stað í blaðinu á morgun.
Lausn á gátu gærdagsins
Þegar ég var lítil var
mikill agi á heimilinu,
að minnsta kosti ef
miðað er við agaleysi
nútímans. Ef
ég borðaði ekki
matinn minn fékk
ég ekki neitt í staðinn. Þá tíðkaðist
heldur ekki að vera síkaupandi
hluti. 1982 voru ekki til geisladiskar
og það voru bara sérvitringar sem
áttu leikjatölvur eða mjög ríkt fólk
sem vissi ekkert hvað það átti að
gera við peningana sína. Ég fékk
að minnsta kosti aldrei neitt ef ég
suðaði eða stappaði niður fótum. Ég
komst þó að því fljótlega að það var
hægt að fá ýmislegt ef ég sendi nógu
sterkar hugsanir til hinna fullorðnu.
Á tímabili var ég næstum því hætt
að vera hissa þegar við stoppuðum
fyrir utan ísbúð eða ég fékk nýtt dót
í dúkkuhúsið mitt. Ég var viss um að
ég hefði verið bænheyrð.
Ég hélt að þetta væri mjög
eðlilegt þangað til ég eignaðist fleiri
systkini og smám saman slaknaði
á heraganum. Það varð allt í lagi
að „þeir minni“ borðuðu lítið sem
ekkert en fengju samt eftirmat.
Þetta fannst mér afleitt og skildi ekki
hvað hefði komið fyrir foreldrana.
Þegar ég kvartaði yfir þessu vöru
svörin á þá leið að heimilisfaðirinn
væri orðinn svo gamall og hefði ekki
lengur úthald í fyrri uppeldistakta.
Ég veit ekki hvort íslenskir foreldrar
séu orðnir svona „gamlir“ eða hvort
þeir séu bara svo ógurlega þreyttir
að þeir geti ekki lengur sinnt börn-
unum sínum, sett mörk og farið
eftir þeim. Í dag virðist það heyra
til undantekninga ef börn hlýða og
í allt of mörgum tilfellum stýra þau
heimililífinu. Þetta skil ég ekki enda
er deginum ljósara að það er ekki
verið að gera börnum neinn greiða
með þessu. Sagt er að agaleysi valdi
vanlíðan og vandræðum á fullorðins-
árum og get ég svo sem alveg trúað
því.
Það er kannski auðvelt fyrir
„næstum því“ barnlausa konu undir
þrítugu að agnúast út í slæmt uppeldi.
En er gestsaugað ekki glöggt? Nú bið
ég bara til guðs og vona að ef eignast
einhvern tímann barn verði það ekki
grenjandi, leiðinlegt og heimtufrekt
heldur geri allt eins og ég segi því þá
mun allt ganga súpervel.
STUÐ MILLI STRÍÐA Ansans agaleysið
MÖRTU MARÍU JÓNASDÓTTUR FINNST ÍSLENSK BÖRN UPP TIL HÓPA ILLA UPP ALIN.
MEDIUM # 52
5 8 6
8 5 1
7 8 3
9 1
4 2 5
1 9
4 5 3
6 2 4
7 8 3
51 9 3 5 4 1 6 7 2 8
1 4 8 3 7 2 5 9 6
2 7 6 9 5 8 4 3 1
4 2 7 5 3 1 6 8 9
3 6 1 7 8 9 2 5 4
8 5 9 6 2 4 3 1 7
6 1 4 2 9 5 8 7 3
7 9 2 8 4 3 1 6 5
5 8 3 1 6 7 9 4 2
��������� ������������������
����������� ���������
����������
������������
�����������
�����������
���������������
���������������
�������������������
���������������
���������
������������
�������������
������������
������������
�������