Fréttablaðið - 08.01.2006, Side 74
8. janúar 2006 SUNNUDAGUR34
Enska bikarkeppnin:
ARSENAL-CARDIFF 2-1
1-0 Robert Pires (6.), 2-0 Robert Pires (18.), 2-1
Cameron Jerome (87.).
BARNSLEY-WALSALL 1-1
0-1 Kevin James (74.), 1-1 Paul Heyes (77.).
BLACKBURN-QPR 3-0
1-0 Andy Todd (17.), 2-0 Craig Bellamy (36.), 3-0
Craig Bellamy (86.).
BRIGHTON-COVENTRY 0-1
0-1 Gary McSheffrey (50.).
CHELSEA-HUDDERSFIELD 2-1
1-0 Carlton Cole (12.), 1-1 Gary Taylor-Fletcher
(75.), 2-1 Eiður Smári Guðjohnsen (82.).
Eiður Smári lék allan leikinn fyrir Chelsea.
CHELTENHAM-CHESTER 2-2
1-0 J.J. Melligan, víti (59.), 2-0 John Finnigan, víti
(74.), 2-1 Marcus Richardsson (80.), 2-2 Stuart
Drummond (93.).
CRYSTAL PALACE-NORTHAMPTON 4-1
1-0 Michael Hughes (4.),1-1 Josh Low (12.), 2-1
Jonathan Macken (37.), 3-1 Andy Johnson, víti
(53.). 4-1 Dougie Freedman (88.).
DERBY-BURNLEY 2-1
1-0 Paul Peschisolido (18.), 1-1 Gareth O´Connor
(29.), 2-1 Paul Peschisolido (67.).
HULL-ASTON VILLA 0-1
0-1 Gareth Barry (61.).
IPSWICH-PORTSMOUTH 0-1
0-1 Dario Silva (37.).
LUTON-LIVERPOOL 3-5
0-1 Steven Gerrard (16.), 1-1 Steve Howard (31.),
2-1 Steve Robinson (43.), 3-1 Kevin Nicholls,
víti (53.), 3-2 F. Sinama Pongolle (62.), 3-3 Xabi
Alonso (69.), 3-4 F. Sinama Pongolle (74.), 3-5
Xabi Alonso (94.).
MAN. CITY-SCUNTHORPE 3-1
0-1 Andrew Keogh (17.), 1-1 Robbie Fowler (48.),
2-1 Robbie Fowler (56.), 3-1 Robbie Fowler, víti
(64.).
MILLWALL-EVERTON 1-1
1-0 Marvin Williams (39.), 1-1 Leon Osman (79.).
NEWCASTLE-MANSFIELD 1-0
1-0 Alan Shearer (80.).
NORWICH-WEST HAM 1-2
0-1 Hayden Mullins (6.), 0-2 Bobby Zamora (57.),
1-2 Paul McVeigh, víti (72.).
NUNEATON-MIDDLESBROUGH 1-1
0-1 Gaizka Mendieta (15.), 1-1 Gez Murphy, víti
(90.).
PRESTON-CREWE 2-1
0-1 Billy Jones (35.), 1-1 Graham Alexander (62.),
2-1 Chris Sedgwick (86.).
SHEFF. UTD.-COLCHESTER 1-2
1-0 Steve Kabba (5.), 1-1 Neil Danns (33.), 1-2
Gareth Williams (72.).
SHEFF. WEDNESDAY-CHARLTON 2-4
0-1 Dennis Rommedahl (13.), 1-1 Paul Hecking-
bottom (16.), 1-2 Matt Holland (27.), 1-3 Dennis
Rommedahl (44.), 2-3 Paul Heckingbottom (60.),
2-4 Darren Bent (87.).
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Charl-
ton í stöðu vinstri bakvarðar.
SOUTHAMPTON-MILTON KEYNES DONS 4-3
1-0 David Prutton (40.), 1-1 Claus Lundekvam,
sjálfsm. (59.), 2-1 Nigel Quashie (60.), 3-1 Theo
Walcott (66.), 3-2 Nick Rizzo (79.), 3-3 Gareth
Edds (84.),4-3 Darren Kenton (88.).
STOCKPORT-BRENTFORD 2-3
0-1 Lloyd Owusu (13.), 1-1 Jermaine Easter (17.),
2-1 Keith Biggs (48.), 2-2 DJ Campbell (65.), 2-3
Isaiah Rankin (84.).
STOKE-TAMWORTH 0-0
Hannes Sigurðsson lék síðustu 15 mínúturnar
fyrir Stoke.
TORQUAY-BIRMINGHAM 0-0
WATFORD-BOLTON 0-3
0-1 Jared Borgetti (11.), 0-3 Stelios Giannakopoul-
us (34.), 0-3 Khalilou Fadiga (73.).
WBA-READING 1-1
1-0 Zoltan Gera, víti (82.), 1-1 Kevin Doyle, víti
(84.).
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson
léku báðir allan leikinn fyrir Reading.
WIGAN-LEEDS 1-1
1-0 David Connolly (47.), 1-1 Rob Hulse (88.).
Gylfi Einarsson var ekki í leikmannahópi Leeds.
WOLVES-PLYMOUTH 1-0
1-0 Leon Clarke (26.).
Enska 3. deildin:
NOTTS COUNTY-DARLINGTON 3-2
Með sigrinum komust Guðjón Þórðarson og
félagar í 7. sæti deildarinnar.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Alexandre Gaydamak
segist ekki vera hinn nýi Roman
Abramovich, kollegi hans
hjá Chelsea, en sá fyrrnefndi
keypti enska úrvalsdeildarlið-
ið Portsmouth í síðustu viku.
Hann á nú helmingshlut í lið-
inu en Milan Mandaric hinn.
Gaydamak er forríkur og ætlar
sér að dæla peningum í liðið og
gera það eitt það besta á Bret-
landseyjum. Hann segist þó
ekki búa yfir sama fjármagni
og Abramovich, sem hefur eytt
milljörðum króna í Chelsea.
„Ég þekki þann ágæta
herramann ekki neitt en ég
dáist að honum og ber mikla
virðingu fyrir honum,“ sagði
Gaydamak um Abramovich.
„Ég þoli ekki þegar við
erum bornir saman, við erum
alls ekki eins. Ég er mjög lítill
en hann mjög stór, ég get ekki
borið okkur saman.
Markmið okkar er fyrst og
fremst að halda okkur í úrvals-
deildinni og eftir tímabilið
sjáum við til hvað við gerum.
Ég sé mig sem mann sem fann
tækifæri og mikla áskorun en
engan bjargvætt.“
Faðir Gaydamak, Arcadi,
á knattspyrnuliðið Beitar
Jerusalem en hann neitar því
að tengsl séu á milli föður sín
og Portsmouth. Arcadi er mjög
umdeildur og er meðal annars
grunaður um ólöglega vopna-
sölu þrátt fyrir að neita þeim
sökum.
„Það er ég sem er að fjárfesta
í Portsmouth, ekki faðir minn.
Þetta eru alfarið mínir peningar
sem ég aflaði mér með dugnaði
og mikilli vinnu undanfarinn
áratug.“
Harry Redknapp, stjóri Ports-
mouth, hefur þegar byrjað að
kaupa leikmenn í janúargluggan-
um en hann borgaði 4,1 milljónir
punda fyrir Benjani Mwaruw-
ari frá Auxerre og loku er ekki
skotið fyrir frekari leikmanna-
kaup auk þess sem til stendur að
byggja nýjan leikvang.
- hþh
Alexandre Gaydamak þolir ekki að vera borinn saman við Roman Abramovich:
Ég er ekki hinn nýi Abramovich
ÞEGAR HAFIST HANDA Alexandre Gay-
damak og Benjani Mwaruwari, nýjasti
leikmaður liðsins, á blaðamannafundi í
síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Forráðamenn Tottenham
bíða nú eftir svörum frá kollegum
sínum hjá AC Milan, en þeir hafa
fengið fyrirspurn frá enska liðinu
um hvort framherjinn Christi-
an Vieri sé til sölu. Vieri kom til
Milan frá Inter í sumar en hefur
ekki náð að vinna sér sæti í gríð-
arlega öflugri framlínu liðsins.
Vieri er sagður vilja komast
frá Milan til liðs þar sem hann á
möguleika á að spila reglulega,
en það er forsenda þess að hann
vinni sér sæti í ítalska landsliðinu
fyrir HM í Þýskalandi í sumar.
Tottenham er í leit að framherja
þar sem liðið mun missa Mido á
Afríkumótið síðar í þessum mán-
uði, en Jermain Defoe og Robbie
Keane hafa ekki náð sér á strik í
vetur. - vig
Tottenham Hotspur:
Hefur áhuga á
Christian Vieri
CHRISTIAN VIERI Hefur lengi lýst yfir áhuga
sínum á ensku úrvalsdeildinni.
FÓTBOLTI Graeme Souness, knatt-
spyrnustjóri Newcastle, gaf sterk-
lega í skyn í gær að hann myndi
reyna að fá miðjumaninn Danny
Murphy til félagsins frá Charlton
fari svo að Lee Bowyer fari frá
Newcastle í janúar. Portsmouth
er talið hafa áhuga á vandræða-
gemlingnum Bowyer en sagt er að
Souness sé loksins búinn að fá sig
fullsaddann af Bowyer.
„Ef, og það er stórt ef, Bowyer
fer þá er ljóst að okkur vantar
mann á miðsvæðið. Danny Murphy
er mjög góður leikmaður sem er
á barmi þess að komast í enska
landsliðið,“ segir Souness en einnig
hefur verið rætt um að Charlton og
Newcastle hreinilega skipti á Soun-
ess og Murphy. - vig
Danny Murphy:
Frá Charlton
til Newcastle?
DANNY MURPHY Byrjaði tímabilið frábær-
lega en hefur verið á bekknum í síðustu
leikjum Charlton.
FÓTBOLTI Crystal Palace neitar enn
að sleppa hendinni af sínum besta
leikmanni, sem er mjög eftirsóttur
þessa dagana. Andy Johnson virð-
ist því ekki vera að fara frá liðinu
þrátt fyrir áhuga frá Tottenham,
Everton, WBA og West Ham auk
Birmingham, sem bauð samtals
6,5 milljónir punda í Johnson auk
þess sem tveir leikmenn hefðu
farið til Palace í staðinn.
„Andy Johnson er víst ekki til
sölu,“ sagði David Sullivan eig-
andi Birmingham, sem seldi Pal-
ace hann fyrir 750 þúsund pund
árið 2002. „Palace ætlar sér að
fara aftur upp í úrvalsdeildina og
ætlar ekki að selja hann fyrr en í
fyrsta lagi í sumar ef liðið kemst
ekki aftur upp.“ - hþh
Birmingham vill Andy Johnson:
Neita að selja
FÓTBOLTI Finnski markmaðurinn
Antti Niemi er á leiðinni til Heið-
ars Helgusonar og félaga í Fulham
fyrir 1,5 milljónir punda eftir að
hafa óskað þess að fara frá Sout-
hampton. Niemi hefur verið einn
besti leikmaður Dýrlinganna und-
anfarin ár en vill komast aftur í
úrvalsdeildina og eftir langar og
strangar samningaviðræður virð-
ast Southampton og Fulham hafa
komist að samkomulagi um kaup-
verðið á markmanninum.
Charlton vildi einnig fá Niemi
til liðs við sig en hann kaus held-
ur að fara til Fulham, sem eins og
kunnugt er seldi Edwin van der
Sar til Manchester United síðasta
sumar og hafði enn ekki fundið
endanlegan arftaka hans fyrr en
nú með komu Niemi. - hþh
Fulham fær góðan liðsstyrk:
Antti Niemi í
mark Fulham
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
skoraði laglegt mark á 82. mínútu
og bjargaði þar með Chelsea fyrir
horn í viðureign liðsins gegn
2. deildarliðinu Huddersfield í
þriðju umferð ensku bikarkeppn-
innar gær. Carlton Cole hafði
komið Chelsea yfir strax á 12.
mínútu en Gary Taylor-Fletcher
jafnaði óvænt metin stundar-
fjórðungi fyrir leikslok. Mark
Eiðs Smára kom eftir magnaðan
undirbúning Arjen Robben, sem
hafði komið inn á sem varamaður
skömmu áður.
Eiður Smári lék allan leikinn
fyrir Chelsea og þótti standa sig
vel en þess má geta að hann bar
fyrirliðaband liðsins í fjarveru
John Terry og Frank Lampard.
Mourinho hvíldi sína helstu lykil-
menn en tefldi engu að síður
fram firnasterku liði sem flestir
bjuggust við að myndi rúlla yfir
Huddersfield. Annað kom á dag-
inn og hefðu gestirnir með smá
heppni náð að tryggja sér annan
leik á heimavelli sínum.
Robbie Fowler minnti rækilega
á sig í leik Manchester City gegn
Scunthorpe í gær. Fowler skoraði
þrennu á tæpum 17 mínútum í
sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu
á tímabilinu og sýndi og sann-
aði að hann hefur engu gleymt.
„Það hefur aldrei hvarflað að
mér að selja Fowler,“ sagði Stu-
art Pearce, stjóri Man. City, eftir
leikinn. „Margir segja að Fowler
sé latur og þess vegna hafi hann
ekki náð sér á strik. Sannleikur-
inn er hins vegar sá að Fowler
er einhver duglegasti leikmaður-
inn hjá þessu félagi. Hann hefur
verið meiddur en hann er og verð-
ur alltaf markaskorari.“
Alan Shearer skráði sig í sögu-
bækur Newcastle þegar hann
skoraði eina mark leiksins gegn
Mansfield. Þetta var 200. mark
Shearer fyrir félagið og er hann
þar með orðinn jafn Jackie Mil-
burn á toppi listans yfir marka-
hæstu leikmenn í sögu Newcastle.
Annars var nokkuð um óvænt
úrslit í keppninni í gær og þar bar
hæst magnaðan árangur utan-
deildarliðsins Nuneaton sem náði
jafntefli gegn Middlesbrough, þar
sem Gez nokkur Murphy skoraði
jöfnunarmark Nuneaton úr víti
á 90. mínútu. Úrvalsdeildarlið-
in Everton og Birmingham náðu
aðeins jafntefli gegn Millwall og
Torquay og þá náði Stoke aðeins
markalausu jafntefli á heima-
velli gegn utandeildarliðinu Tam-
worth.
Ívar Ingimarsson og Brynjar
Gunnarsson voru í liði Reading
sem hélt áfram mögnuðu gengi
sínu gegn WBA í gær. Lokatölur
urðu 1-1 og tryggði Reading sér
þar með annan leik á heimavelli
sínum. - vig
Eiður forðaði Chelsea frá
niðurlægingu í bikarnum
Eiður Smári Guðjohnsen var hetja Chelsea þegar hann skoraði sigurmark liðsins
undir lok leiksins gegn Huddersfield í ensku bikarkeppninni í gær. Robbie Fowler
stal senunni með því að skora öll þrjú mörk Manchester City gegn Scunthorpe.
BRYNJAR GEGN KANU Reading náði
frábærum úrslitum gegn WBA í gær og
áttu Brynjar Gunnarsson og Ívar Ingi-
marsson ekki í miklum erfiðleikum með
að stöðva Kanu og félaga.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HEITUR Robbie Fowler gerði sér lítið fyrir
og skoraði þrennu gegn Scunthorpe í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HETJAN Eiður Smári Guðjohnsen hefur
verið að stimpla sig rækilega inn í lið Chel-
sea í síðustu leikjum og í gær skoraði hann
sigurmark liðsins. Hér sést hann fagna
markinu ásamt Carlton Cole.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Luton sýndi hetjulega
baráttu gegn Evrópumeisturum
Liverpool í enska bikarnum í gær
en mátti samt sem áður þola 3-5
ósigur í mögnuðum knattspyrnu-
leik. Fyrirliðinn Steven Gerrard
kom Evrópumeisturunum yfir
á 16. mínútu með fallegu marki
en leikmenn Luton svöruðu með
stórsókn næstu mínútur sem skil-
aði þeim tveimur góðum mörkum.
Luton bætti við þriðja markinu úr
vítaspyrnu strax í upphafi síð-
ari hálfleiks og héldu margir að
Liverpool væri á leið út úr keppn-
inni.
Það var ekki fyrr en Florent
Sinama Pongolle kom inn á hjá
Liverpool sem liðið fór í gang og
skoraði Frakkinn ungi tvívegis á
stuttum kafla. Xabi Alonso skor-
aði einnig og komust þeir rauðu
því yfir 3-4. Alonso bætti síðan
við öðru marki sínu á síðustu sek-
úndu leiksins þegar hann skoraði
af um sextíu metra færi í autt
mark Luton. - vig
Luton og Liverpool mættust í klassískum bikarleik í gærkvöldi:
Mögnuð endurkoma hjá Liverpool gegn Luton