Fréttablaðið - 08.01.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
*
Hæfniskröfur:
Lágmarksaldur er 22 ára.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Mjög góð enskukunnátta sem og kunnátta
í einu norðurlandamáli. Þriðja tungumál er
æskilegt, helst þýska eða spænska.
SNIÐIÐ FYRIR ÞIG?
Iceland Express óskar eftir að ráða flugliða
Iceland Express er fyrsta íslenska lágfargjaldaflugfélagið. Þegar félagið var stofnað fyrir þremur árum, gjörbreytti
það landslagi í flugsamgöngum Íslendinga og starfa nú yfir 100 manns hjá félaginu. Við erum stolt af sigrum og
vexti Iceland Express og er starfsfólkið lykillinn að uppbyggingu félagsins. Tækifærin blasa við og framundan eru
afar spennandi tímar. Vegna fjölgunar áfangastaða og stækkunar á flugflota Iceland Express óskum við eftir að
ráða fleiri flugliða.
Flugliðar gæta öryggis farþeganna meðan á flugi stendur og
sinna þjónustu um borð. Við leitum að jákvæðum og sveigjan-
legum aðilum með ríka þjónustulund sem hafa áhuga á að starfa
í skemmtilegu og krefjandi umhverfi.
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 11. janúar 2006.
Umsóknir skal senda á netfangið job@icelandexpress.is.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
Fullorðinsverð frá:7.995 kr.
www.icelandexpress.is
Gautaborg
Frankfurt Hahn
Reykjavík
Alicante
Stokkhólmur
Kaupmannahöfn
Berlín
Friedrichshafen
London
����������
�����������������������
Hingað til hef ég komist býsna langt á keppnisskapinu.
Besta dæmið er klárlega þegar
ég náði að lenda í sjöunda sæti
í heiminum í íþrótt sem ég var í
raun bara miðlungsmaður í. Ég
var mjög sár að hafa ekki náð á
verðlaunapall.
KEPPNISSKAP er gott í hófi
og í dag reyni ég að nýta mér
það í mínu starfi. Ég set mér
markmið. Ef það væri haldið
heimsmeistaramót í fasteignasölu
væri ég núna að búa mig undir
það. „Fjölbýlissala með frjálsri
aðferð“ gæti til dæmis verið ein
keppnisgreinin. Erfiðasta greinin
yrði þó sennilega „einbýlissala
í jogging-galla“ en hún fengi
örugglega líka mesta áhorfið.
FRÁ því að sonur minn fæddist
hef ég bæði meðvitað og ómeðvit-
að alið upp í honum keppnisskap.
Ég vil að hann leggi sig fram í því
sem hann tekur sér fyrir hendur,
en ég rak mig á að þetta er vand-
meðfarið mál. Að endingu stóð
ég frammi fyrir því að hann var
orðinn ósigrandi. Hann sem sagt
flokkaði alla meinta ósigra sína
sem hreint og klárt svindl eða
alvarleg brot á reglum sem hann
hafði bætt við í kjölfar „ósigurs-
ins“. Það var komið svo að öll
skemmtunin sem lagt var upp
með í byrjun var fallin í skugga
sjálfskapaðrar niðurlægingar
ósigurs.
FYRSTA skrefið í átt að bata er að
gera sér grein fyrir vandamálinu.
Vandamálið í þessu tilfelli var
ég. Það var ég sem átti upptökin
að keppnunum í byrjun og þar af
leiðandi var hann hræddur um að
mér þætti minna til hans koma ef
hann biði ósigur. Þannig að í stað
þess að vinna í honum fór ég að
vinna í sjálfum mér og áhrifin
voru alveg mögnuð. Í dag finnst
honum ennþá hundfúlt að tapa en
hann tekur því samt sem áður af
æðruleysi.
GOTT dæmi um breytt viðhorf hjá
honum er þegar hann var að læra
að tefla. Hann kunni mannganginn
en var ekki alveg búinn að átta sig
á markmiðinu, nema því að drepa
sem flesta menn andstæðingsins.
Í einni skákinni drap hann
drottninguna mína og mátaði mig
í leiðinni. Morðið á drottningunni
kætti hann ógurlega en mátið sjálft
fór alveg framhjá honum. „Hahaha,
ég drap drottninguna þína pabbi“
hrópaði hann að mér alla þrjátíu
sentimetrana yfir borðið. „En áttu
ekki eftir að segja eitthvað meira?“
spurði ég. Þá hætti hann að brosa,
horfði á mig í smá stund hugsandi
og spurði svo einlæglega: „átti ég
að segja ... fyrirgefðu?“ ■
Keppnisskap