Tíminn - 11.01.1977, Síða 5
Þriðjudagur 11. janúar 1977
iiil'lilí
5
Tónleikar í
Kópavogskirkju
Árið 1963 var stofnaður sjóður
til minningar um unga stúlku,
Hildi ólafsdóttur, er lézt í
umferðarslysi það sama ár.
Sjóðurinn er í vörzlu Kársnes-
sóknar og er tilgangur hans aö
efla tónlistarlif við Kópavogs-
kirkju m.a. meö þvi að styrkja
tónleikahald.
Nú veröur stofnað til tónleika á
vegum sjóðsins i Kópavogskirkju
n.k. þriðjudagskvöld 11. janúar
kl. 21.
Flytjendur verða Sigriður E.
Magnúsdóttir söngkona, brezki
söngvarinn Simon Vaughan og
organisti kirkjunnar Guðmundur
Gilsson.
öllum er heimill aðgangur og
vill sóknarnefndin hvetja fólk til
þess að koma og hlýða á þessa
frábæru listamenn.
Sóknarnefndin
Gjafir til
Hveragerðis-
kirkju
Þ.S. llveragerði.— Hveragerðis-
kirkju bárust stórgjafir á siðasta
ári. Peningagjafir og áheit námu
samtals 623 þúsund krónum.
Gisli Sigurbjörnsson, forstjóri
dvalarheimilisins, gaf teppi á
söngloft kirkjunnar, en áður hafði
hann gefið stiga og grindverk
kringum söngloftið, auk ótal fleiri
gjafa.
Sóknarnefndin þakkar fyrir
hönd safnaðarins öllum þeim,
sem leggja kirkjunni lið.
Leiðrétting
í afmælisgrein i islendinga-
þáttum laugardagiiui 8. jan
1977 um Jón Ingólfssun fyrrv.
bónda á Hreiðabólstað 85 ára
befði falliö niður i prentun ein
lina. Rétt er málsgreinin
þannig:
Börn þeirra hjóna, sem til
aldurs hafa kumizt, eru þrjú:
Unnur húsfreyja i Deildar-
tungu, gift Birni bónda þar
Jónssyni, Hannessonar og
konu hans Sigurbjargar
Björnsdottur frá Stóru-ökr-
u m.
Málverkauppboð á herrakvöldi Njarðar
Lionsklúbburinn Njörður:
Gefur heyrnarmælingatæki
til Borgarspítalans
Lionsklúbburinn Njörður held-
ur herrakvöld að Hótel Sögu á
föstudaginn. Að venju verður þar
málverka- og listmunauppboð.
A málverkauppboðinu nú eru
m.a. verk eftir eftirtalda: Svein
Björnsson, Pétur Friðrik,
Kristján Daviðsson, Kára Eiriks-
son, Steinþór Sigurðsson, Orlyg
Sigurösson, Sigurð Steinsson,
Einar Hákonarson og Karl Kvar-
an.
Ræðumaður kvöldsins er Frið-
finnur ólafsson forstjóri, og Guð-
rún A. Simonar og ómar
Ragnarsson munu skemmta,
veizlustjóri er Sveinn Snorrason.
Agóði af herrakvöldinu rennur
allur til liknarmála, Lions-
klúbburinn Njörður hefur gefið
háls- nef- og eyrnadeild Borgar-
spitalans sérstök heyrnar-
mælingatæki, sem ekki hafa verið
til hér á landi, og eru þessi tæki
væntanleg til landsins um næstu
mánaðamót. Verð tækjanna án
tolla og flutningsgjalda er um 3
milljónir.
Sértilboð Týli hf.
Afgreiðum jálamyndimar í albúmum
Nœstu vikur fylgir myndaalbúm hverri litfilmu er
við framköllum viðskiptavinum vorum að kostnaðarla
Myndealbúm þessi eru 12 mynde, handhœg og fere vel í
Varðveitið minningarnar í
yaranlegum umbúðum
$— Austurstrœti 7