Tíminn - 15.01.1977, Side 13
Laugardagur 15. janúar 1977
13
— lékaðalhlutverkið
hjé ÍR-liðinu, sem
sigraði Gróttu
í bikarkeppninni
IR-risinn Ágúst Svavarsson lék
aðalhlutverkiö hjá IR-liðinu,
sem sló Gróttu út úr bikar-
keppninni i handknattleik, með
þvi að vinna sigur (26:24) yfir
Seltjarnaness-liðinu á Nesinu.
Ágúst sem virtist geta skorað
hvenær sem hann vildi, skoraði
g mörk i leiknum.
Leikurinn var mjög jafn allan
leikinn og var staðan 13:13 i
hálfleik. Annars var fátt um
fina drætti i leiknum, og leik-
menn liðanna — fyrir utan
AgUst, virðast vera æfingar-
lausir, enda eru litil verkefni
fyrir félagsliðin okkar, á meöan
landsliðið æfir stift.
Agúst
í ham
tiniiiníiii
Símon kominn heim
— leikur með Ármanns
liðinu gegn Njarðvíkingum
★ Jimmy Rogers kemur
ekki aftur
frá Bandaríkjunum
SIMON ólafsson — körfuknattleiksmaðurinn snjalli úr
Ármanni/ sem hefur dvalizt í Bandaríkjunum undan-
farin tvö ár, þar sem hann hefur stundað nám og leikið
körfuknattleik, er nú alkominn heim og byrjaður að æfa
með Ármanns-liðinu af fullum krafti. Símon mun leika
sinn fyrsta leik með islandsmeisturunum gegn Njarð-
víkingum á morgun.
Þetta er mikill styrkur fyrir Ar-
manns-liðið, sem hefur misst
blökkumanninn Jimmy Rogers,
en hann hélt til Bandarikjanna
fyrir áramót — sagöist koma
aftur. Ekkert hefur frétzt af
Rogers og eru Armenningar
búnir að afskrifa, að hann komi
aftur.
1. deildarkeppnin i körfuknatt-
leik hefst að nýju um helgina, og
veröa þá leiknir þrir þýðingar-
miklir leikir i 1. deildarkeppninni.
Þórir meiddur
Þórir Magnússon — skyttan
mikla hjá Valsliðinu, mun ekki
geta leikið með félögum sinum
gegn tR-ingum i Kennaraskól-
anum i dag kl. 13.30. Þórir á við
meiðsli að striöa. Þá er óvist,
hvort að Kristinn Jörundsson
getur leikið með ÍR-liðinu, þar
sem hann hefur verið veikur að
undanförnu. IR-liðið er sigur-
stranglegra, en þó er ekki hægt
að afskrifa Valsliðið.
Armenningar mæta Njarðvik-
ingum i Hagaskólanum kl. 13.30 á
morgun, og eins og fyrr segir þá
leikur Simon Ólafsson aftur með
Armenningum. Ekki er vitaö enn,
hvort Guðsteinn Ingimarsson,
fyrrum landsliðsmaður hjá Ar-
manni, leiki sinn fyrsta leik með
Njarðvikurliðinu, en eins og
menn muna, þá skipti þessi leikni
leikmaður um félag fyrir áramót.
Einar ekki með KR-liðinu.
Einar Bollason mun ekki leika
StMON ÓLAFSSON — kemur til
Ármanns á réttum tima.
með KR-liðinu, sem mætir erki-
fjendunum — stúdentum, strax að
loknum leik Ármanns og Njarð-
vikur. Einar, sem jafnframt
þjálfar KR-liðið, meiddist illa á
hendi á æfingu fyrir stuttu. Þá er
óvist, hvort landsliðsmaðurinn
Bjarni Jóhannesson getur leikið
meö KR-liðinu, en hann hefur átt
við meiðsli að striða að undan-
förnu. Það er mikil blóðtaka fyrir
KR-liðiö aö leika án þessara
snjöllu leikmanna, sem eru mestu
skyttur liösins. Stúdentar mæta
aftur á móti með sitt sterkasta
lið, og eru þeir þvi sigurstrang-
legri, enda hafa þeir oft gert KR-
ingum lifiö leitt aö undanförnu
Eggert
áfram hjá
Reyni...
Hlöðver með Leikni
og Axel með Fylki
Eggert Jóhannesson, fyrrum
þjálfari Vfkings, Ármanns og
landsliðsins, hefur verið endur-
ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Reynis frá Sandgerði. Eggert
hefur náð góðum árangri með
Reynis-liðiö — stýrði þvf upp i 2.
deildarkeppnina sl. keppnistima-
bil.
Hlöðver Rafnsson hefur verið
endurráðinn þjálfari Leiknis i
Breiðholti, sem leikur i 3. deild.
Leiknis-liöiö, sem er skipað
ungum leikmönnum, náði at-
hyglisverðum árangri sl.
keppnistimabil, og var liðið þá
ekkilangtfrá þviað tryggja sér 2.
deildarsæti. Leiknir ætlar sér
stóran hlut i sumar.
Axel Axelsson úr Þrótti hefur
verið ráöinnþjálfari 3. deildarliðs
Fylkis i Arbæjarhverfi.
Nýtt íþrótta-
blað er væntan-
legt á markaðinn
Nú fljótlega er væntanlegt
nýtt fþróttablað á markaðinn.
Þarna er um aö ræða mjög
vandaö iþróttablað, sem verður
prentað I litum og gefið úr mán-
aðarlega. Blaðið verður gefið út
i 5000 eintökum til að byrja með
og mun bjóða upp á fjölbreytt
efni — til fróðleiks og gamans.
Takmark nýja iþróttablaðs-
ins, sem veröur selt i lausasölu
er að bjóða iþróttaunnendum og
öðrum upp á fjölbreytt efni,
greinar og viðtöl við islenzka og
erlenda Iþróttamenn og iþrótta-
viðburði.
„Hann hefur dottið á Höfuðið”,
segir Ellert B. Schram
TONY KNAPP — lætur ekki að sér hæða,
hann er alltaf jafn kokhraustur og það er
óhætt að segja, að hann svífst einskis,álíti
hann það sér til framdráttar. Þeir sem hafa
þekkt Knapp árum saman, eru hættir að
taka það alvarlega, sem hann segir hverju
sinni.
• „VERTU VAKANDI í VÖRNINNI
sést hér hér stjórna
Fyrir stuttu birtist við-
tal við Knapp i einu dag-
blaðanna, þar sem hann
segir: — ,,Ég er bæöi
undrandi og leiður yfir að
hafa ekkert heyrt frá
K.S.I.”. Ellert B.
Schram, formaöur K.S.I.,
svarar þessu þannig: —
„Annað hvort er Knapp
mjög góður leikari, eða
hann hefur dottið á höfuö-
ið. Það er ekki rétt hjá
honum, að við höfum ekki
haft samband viö hann,
þvi að ég sendi honum
bréf i byrjun desember,
þar sem ég skýrði honum
frá því, að viö hefðum
fullan hug á að fá hann
hingað til starfa i sumar,
ef um semdist”.
Það er greinilegt, að
Knapp er þarna að beita
stjórn K.S.l. þrýstingi til
að flýta þvi, að stjórnin
gangi frá samningum viö
hann. Það kemur svo
skýrar i ljós, þegar hann
segir i viðtalinu: — ,,Ég
hef þegar fengið nokkui
tilboð frá Evrópu, sem ég
er nú að Ihuga — og I
næstu viku eru væntan-
legir Amerikanar hingað
til Englands, og ég hef
vissu fyrir þvi, að þeir
muni gera mér tilboð um
aö koma til Bandaríkj-
anna. Að sjálfsögðu mun
ég láta þá hjá K.S.I. vita
um það, sem ég hyggst
gera i minum málum, en
eitt er vist, að ég get ekki
endalaust setið og beöið
eftir að heyra frá K.S.I.”.
Svo mörg voru orð
Knapps. Þaö er ekki ný
saga hjá Knapp, að hann
segist vera með tilboð frá
hinum og þessum upp á
vasann. Og vanalega hef-
ur það fylgt á eftir, að þau
tilboð hafi verið miklu
betri heldur en frá K.S.I.
— en að hann hafi frekar
viljað koma til Islands.
Þetta er alltaf sama góða
lumman, sem stjórn
K.S.I. hefur síðan trúað,
eins og nýju neti.
Knapp heldur siðan
áfram og segist hann nú
starfa hjá 1. deildarliðinu
Norwich. Á morgnana að-
stoði hann við þjálfun á
aðalliði félagsins.
Iþróttasiðan hefur aflað
sér upplýsinga um þetta,
og er þetta helber lygi hjá
honum. Knapp var rekinn
frá Norwich 1974, þegar
hann var einn af mörgum
aðstoðarþjálfurum
félagsins. Forráðamenn
Norwich fengu þá nóg af
honum — og létu hann
taka pokann sinn. Hann
hefur siöan ekkert komið
nálægt Norwich-liðinu,
nema þá sem áhorfandi
að leikjum liðsins, eins og
aðrir ibúar borgarinnar.
Knapp sagði, aö auk
þess sem hann aðstoðaði
við þjálfun, fylgdist hann
með leikjum annarra fé-
laga — leikaðferðum og
ýmsu ööru. Hann væri á
förum til London þar sem
ætlunin væri að fylgjast
með leik I bikarkeppn-
inni.
Knapp býr þarna til
handa sér nýtt starf hjá
Norwich. Þegar að er
gáð, þá voru ekki margir
spennandi leikir i bikar-
ii
iii
landsliðinu.
keppninni í London þenn-
an dag. Þó má vel vera,að
Knapp hafi fariö til Lon-
don, en þá læðist að
manni sá grunur, að hann
.hafi farið til aö sjá
Middlesbrough leika sinn
alkunna varnarleik gegn
utandeildarliöinu
Wimbledon. Það er leik-
aðferð að skapi Knapps
og hann hefur örugglega
farið ánægöur heim, þvi
að „Boro” tókst að merja
jafntefli (0:0) gegn smá-
liðinu, með sterkum
varnarleik.
Rúslnan i pylsuendan-
um er, þegar TONY
KNAPP heldur þvi fram i
viðtalinu, að George
Kirby, þjálfari Skaga-
manna, hafi verið rekinn
frá Kuwait, þar sem hann
starfar nú sem þjálfari.
Það er greinilegt, að
Tony Knapp
Knapp ber káldan hug til
Kirbys — þvi að þetta eru
ósannindi hjá honum.
Kirby er enn þjálfari i
Kuwait. En við vitum, að
Knapp hefur alltaf haft
minnimáttarkennd gagn-
vart Kirby og öfundað
hann, þar sem hann veit
fullvel, að Kirby er mörg-
um gæðaflokkum fyrir of-
an hann, sem þjálfari.
Aö lokum má geta þess
hér, úr þvi að við erum að
tala um Knapp og kok-
hreysti hans, aö maður að
nafni TONY KNAPP sótti
um framkvæmdastjóra
stöðu hjá 4. deildarliði i
Englandi fyrr i vetur.
Maöur þessi, þrátt fyrir
alla sina kunnáttu — fékk
ekki starfið.
A næstu dögum mun
það skýrast, hvort hann
verði endurráðinn þjálf-
ari landsliös ISLANDS?.
KNAPP
— lætur
»kki
ð sér
æða...