Tíminn - 09.03.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.03.1977, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 9. marz 1977 Atvinnunýj ung í Höfðakaupstað: Hörpudisksveiö- ar og vélavinnsla Hér sést, hvernig staöið er að verki, þegar hörpudiskurinn er handunninn. Höfðakaupstaður, þar sem nú á að fara að vélvinna hörpu- disk. JJ-Höfðakaupstað. — í siðustu viku vorum við hér búnir að veiða það, sem i okkar hlut kom af rækju úr Húnaflóa, 330 lestir, en nú hefur veriö leyft að veiða 200 lestir til viðbótar, og af þvf fáum við rifan fjórða hlut. En nú eru einnig að hefj- hér hörpudisksveiðar og vinnsla þess afla. Rækjan er unnin I frystihúsi á Hólanesi, og hefur tuttugu til þrjátiu manns starfað að þvi, mest konur. Hörpudiskurinn veröur einnig unninn þar. Við höfum fengiö vélar til vinnsl- unnar, og er ekki vitaö til, að slikar vélar séu annars staðar nema einar á Vestfjörðum, Það er skozkt framleiöslu- fyrirtæki, sem selur þessar vélar, og er maður frá því að setja þær niður og búa þær undir vinnslu. Vélbáturinn Hjörtur I Vlk var fenginn til þess að veiða hörpudisk til reynsluvinnslu á mánudaginn. Fékk hann leiöinlegt veður, en aflaði þó tvær lestir, og nægir það til þess, að unnt er að reyna vélarnar. ar mllur frá landi, og er ör- stutt á þau, sem næst eru. Við veiðarnar er notaður ' plógur, sem rótar hörpu- diskinum upp úr botninum, og poki, sem hirðir fenginn. Hafrannsóknastofnunin tel- ur, að talsvert sé af hörpudiski i Húnaflóa, og var hér veitt dálitiö fyrir nokkrum árum og handunniö 1 landi. Miðin eru hér út með Skaganum, nokkr- Ástand þjóðvega: SNJÓFLÓÐ Á VATTARNESI GRJÓTHRUN Á ÓLAFSVÍKURENNI gébé Reykjavlk — Samkvæmt upplýsingum frá vegaeftirlit- inu, mun ástand á vegum vera nokkuð sæmilegt viöast hvar á landinu miðað við árstima. Þó mun griöarlegt úrfelli hafa verið á norðanverðu og utan- verðu Snæfellsnesi og er Ct- nesvegur lokaður allri umferð milli Gufuskála og Maiarrifs. Ekkert mun hægt að gera við veginn þar sökum aurs og bleytu fyrst um sinn. Grjót- hrun varð I ólafsvikurenni og lokaði veginum á mánudag, en I gærmorgun var vegurinn ruddur á ný. Austur á Vattar- nesi féllu tvö snjóflóð á veginn á mánudag, en hann var aftur orðinn fær i gær eftir að hann hafði verið ruddur. Nokkuö snjóaði á Vestfjörö- um um siðustu helgi, og eru allar heiðar þar ófærar og þung færö á Djúpveginum til Súöavikur. Gott færi mun þó t.d. vera frá Þingeyri til Flat- eyrar. Sem stendur er Súg- andaf jöröur ekki I neinu vega- sambandi vegna ófærðar. Vegurinn noröur I land var talinn fær, en Oxnadalsheiði var mokuð I gærmorgun. Ófært er frá Raufarhöfn til Þórshafnar, en vegurinn frá Þórshöfn til Vopnafjaröar var ruddur i gær. Fjaröarheiði og Oddsskarð eru ófær. A báðum stöðum er mikill snjór, og þar sem veðurspá er ekki talin nógu trygg, hefur ekki verið lagt út I að ryðja Oddsskarð enn. Það þyrfti að hlána til þess að það yrði hægt, en þeg- ar þvi veröur lokiö, verður Fjarðarheiðin einnig rudd. Fremur þungfært mun vera á Héraði og I gær var rutt inn I Hallormsstað, og inn I Skriö- dal er fært stærri bflum og jeppum. Jökuldalur er aö mestu talinn ófær. Lónsheiöin varð fær, eftir að hún var rudd i gær, en þar var mjög mikil hláka og höföu vegageröar- menn nóg að gera viö að veita vatni af veginum. Þaö er fólksbilafæri frá Egilsstööum til Reykjavikur, sem verið hefur I nærri allan vetur. Ný mjólkurstöð í Borgar- nesi tilbúin eftir 3 ár SJ-ReykjavIk — Unnið er aö byggingu nýs mjólkursamlags- húss i Borgarnesi, sem ætlunin er að verði tilbúið fyrri hluta ársins 1980. Núverandi hús Mjólkursamlags Kaupfélags Borgfirðinga var byggt á árun- um 1930-1940 og er orðið allt of litið og nú ekki taliö fullnægj- andi húsnæði fyrir matvæla- framleiðslu svo nýbyggingarn- ar koma til með aö bæta úr brýnni þörf. Aætlað er aö nýja mjólkur- samlagshúsiö muni kosta hundruð milljóna króna. Það er teiknað á teiknistofu sambands- ins undir yfirumsjón Gunnars Þorsteinssonar forstöðumanns, en hann hefur skipulagt flest nýrri sláturhús og mjólkursam- lög á landinu og fleiri byggingar á vegum SIS, nú slðast fisk- vinnslustööina nýju á Höfn I Hornafirði. Að sögn Indriða Albertssonar mjólkurbússtjóra I Borgarnesi er jarðvinnu við nýja húsið lokið og verið að undirbúa söklda. Ætlunin er aö fyrsti áfangi framkvæmdanna, aðalbygging- in, verði fokheld I sumar. Hún verður 2.300 fermetrar að flat- armáli og kjallari undir henni að hluta, eða 1500 ferm. Alls verður hið nýja húsnæði mjólk- ursamlagsins 29.000 rúmmetr- ar, en auk aðalhússins verður þvottastöð og aöstaöa fyrir tankblla. Búið er að verja 40 milljónum króna til fram- kvæmda þessara og áætlað er að 120 milljónir þurfi til viðbót- ar nú i vor og sumar til að ljúka fyrsta áfanganum. Þorsteinn Theódórsson verk- taki I Borgarnesi annast fram- kvæmdir við nýja mjólkursam- lagið, en vinnuflokkur frá hon- um hefur annazt helztu bygg- ingarframkvæmdir I Borgar- nesi að undanförnu, svo sem við iþróttahúsiö og nýbyggingu naglaverksmiðjunnar. Borgarnes er miðstöð viðskiptalifs, athafnalifs og embættisfærslu um Borgarfjörð og Mýrar. Þar hefur iengi veriö eitt af helztu mjólkursamlögum landsins, og þar er nú verið að reysa nýjt mjólkurstöð, sem á að koma i stað hinnar gömlu. *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.