Tíminn - 09.03.1977, Síða 4
4
MiOvikudagur 9. marz 1977
Flugléiðir árið 1976:
Aukning vard á
flestum sviðum
Samtals fluttu flugvélar Flug-
leiöa, þ.e. Flugfélag tslands,
Loftleiða og International Air
Bahama 714,394 farþega f áætl-
unar- og leiguflugi árið 1976.
Áriö áður nam þessitala 668,462
og er aukning 6,9%.
Aukning varð i öllum greinum
farþegaflutninga á áætlunar-
leiðum og sömuleiðis I leigu-
flugi. Nýmæli var pilagrimaflug
Loftleiöa i Afrlku. Þá jókst
leiguflug Flugfélags Islands til
Spánar. Veruleg aukning varö á
vöruflutningum. Verteraðhafa
I huga að á árinu stöövaöist flug
algjörlega i tvær vikur vegna
verkfalla.
Nokkur aukning var á áætl-
unarflugi á millilandaleiðum
bæði yfir Norður-Atlantshaf og
milli islands og Evrópulanda.
Yfir Noröur-Atlantshaf voru
fluttir 254.199 farþegar en 243982
árið áður. Aukning er 4,2%. A
Evrópuleiðum voru fluttir
127.794 farþegar en voru 115,153
árið áður. Jukust þessir flutn-
ingar um 11,0%. Samtals var
farþegatala Flugfélags islands
og Loftleiöa á þessum leiðum
381,993 farþegar en voru 359,135
árið áður. Samtals er aukning
6,4%. í áætlunarflugi Inter-
national Air Bahama milli
Nassau og Luxemborgar voru
fluttir 73,064 farþegar. Vöru-
flutningar i áætlunarflugi milli
landa jukust verulega, Yfir
Norður-Atlantshaf voru fluttar
3,838 lestir, á Evrópuleiðum
1,344 lestir, Aukning miðað við
árið á undan varð 20,8%.
Innanlandsflug
Milli staöa innanlands voru
fluttir um 205,756 farþegar en
voru 205,176 áriö áður. Aukning
0.3%. Fjölförnustu leiöir innan-
lands voru milli Reykjavikur og
Akureyrar, Vestmannaeyja,
Isafjaröar og Egilsstaða. Vöru-
flutningar innanlands námu
4,387 lestum.
Leiguflug
A siðastliðnu ári voru farin
mörg leiguflug til meginlands
Spánar svo og til spönsku eyj-
anna Kanarieyja og Mallorca.
Samtals voru fluttir 22,392
farþegar I þessum flugferðum
en voru 13,426 árið áður. Aukn-
ing er 66,8%. Pilagrimaflug i
Afriku milli Kanó I Nigeriu og
Jeddah i Saudi-Arabiu voru nú
flogin I fyrsta sinn og uröu
farþegar 1 þeim samtals 15,330.
Farþegar i öðrum leiguflugferð-
um voru 15,859. Samtals urðu
farþegar i leiguflugi með flug-
vélum Loftleiða, Flugfélags Is-
lands og International Air
Bahama 53,581 en voru 32.215
áriö áður og er aukning 66,3%. I
áætlunarflugi fluttu félögin
660.813 farþega og i leiguferðum
voru fluttir 53,581 — samtals
voru þvi farþegar i áætlunar- og
leiguflugi 714,394. Voru árið
áður 668.462 og er aukning 6,9%.
Sama verð
á loðnu til
frystingar
gébé Reykjavik — 1 gærdag á-
kvað Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins aö lágmarksverð á loðnu til
frystingar skyldi haldast óbreytt
út loðnuvertiðina, þ.e. kr. 26,-
hvert kg., en á miðnætti s.l. rann
út áður settur tlmafrestur á fyrr-
nefndu veröi.
Áöur hefur Verðlagsráð sjávar-
útvegsins ákveðið að lágmarks-
verð á loðnuhrognum til frysting-
ar á loönuvertiö 1977, skuli vera
kr. 70.- hvert kg.
Kosningar í
háskólanum
ÞANN 10. marz næstkomandi
munu fara fram kosningar til
stúdenta- og háskólaráðs Háskóla
tslands.
Á miðvikudagskvöld kl. 20
verður framboðsfundur vegna
þessa i háttöasal háskólans. Sú
nýjung verður nú reynd að út-
varpað verður á miðbylgju frá
fundinum, 1412 kHz þ.e. 212 metr-
um. Er þetta gert til að auðvelda
stúdentum, sem ekki komast á
fundinn, að fylgjast meö t.d. fólki
með kornabörn.
Tíma-myndin
Það hefur ekki verið
amalegt að nota tóm-
stundirnar til þess að
bregða sér á bak og liðka
hestana. Að minnsta kosti
hefur það verið tilvalið I
þeim landshlutum, þar
sem jörð hefur verið al-
auð að kalla i allan vetur
og harðfrosin fram undir
þetta. Maður talar nú
ekki um, ef hægt er að
hafa isi lögð vötn að
skeiðvelli.
Og hér sjáum við unga
stúlku, sem horfir um-
hyggjusamlega á hestinn
sinn, þarsem hann svalar
þorstanum I lækjarsitru á
áningarstað. Kannski er
þetta gæðingur — kannski
meðalhestur. En hvort
heldur er, þá leynir sér
ekki, að stúlkunni þykir
vænt um hestinn sinn.
Ljósmyndaranum hefur
tekizt að láta auga
myndavélar sinnar fanga
dálitið af þeirri ást og
alúð.
LJÓSM: GUNNAR
*
Litlaus jafnteflisskák
AE-Reykja.vik — 5. umferðin f
einvígi þeirra Spasskys og Horts
fór fram í gærkvöldi Um 200
manns lögðu leið sína niður á
Loftleiöir I þetta sinn.
Keppendur mættu báðir á
réttum tlma og hófu skákina I
miklum flýti. Þeir tefldu svo-
kallaöa Petros-rússneska byrjun,
kennd að sjálfsögðu við Petrosj-
an. Og ekki nóg með það. Þetta
afbrigði er kallaö stundum -
„hraðskákaafbrigöið" þ.e. menn
beita þessu oft I hraöskák og sér-
staklega byrjendur. Greinilegt
var að keppendur tefldu stíft til
jafnteflis og skiptu upp á
mönnum I grlð og erg. Heyrðust
raddir vlðs vegar um keppnis-
staðinn, að samiö yrði jafntefli
mjög fljótf og aöeins tlma-
spursmál hvenær það mundi
gerast.
Hvorugur sýndi einhverja
„takta” en þegar llða tók á skák-
ina fannst mönnum, sem tafliö
ætlaöi að snúast Spassky I hag.
En við nánari athugun kom 1 ljós
að svo var ekki. Þeir sömdu síöan
jafntefli I 24. leik eftir aöeins 3
tlma setu.
Hvltt: Spassky
Svart: Hort
1. e4-e5
2. Rf3-Rf6
3. Rxe5-d6
4. Rf3-Rxe4
5. De2-De7
6. d3-Rf6
7. Bg5-Dxe2+
8. Bxe2-Be7
9. Rc3-c6
10. 0-0-0-Ra6
11. Hhel-Rc7
12. Re4-Rxe4
13. dxe4-Bxg5
14. Rxg5-Ke7
15. f4-Re6
16. Rh3-Rc5
17. Rf2-Hd8
18. Bf3-f6
19. h4-Be6
20. g4-a5
21. a3-h6
22. h5-Hd7
23. Rhl-He8
24. Rg3-Kd8
Mecking taugaslappur
AE-Reykjavik Og svo kemur hér
3. skák Polugajevskys, sem tefld
var I gær. Hún fór I biö eftir 50
leiki, en slöan þráléku keppendur
og þar með endaði skákin jafn-
tefli 146 leikjum. 4. skákin verður
tefld I dag, samkvæmt
stundatöflu, en óvlst er hvort
veröi úr henni. Mikill taugaslapp-
leiki háir nú Mecking, hann er
alveg svefnlaus þó svo hann taki
svefnpillur á hverju kvöldi.
Nú er svo komiö að hann hef
ur rekiö aðstoðarmann sinn
Mariotti, vegna þess að hann
kennir honum um tapiö nú á
dögunum. Ef Mecking tapar einni
skák I viðbót mun hann að öllum
llkindum hætta i einvlginu og
taka sér hvlld frá skákiökun I bili
alla vega. Framhald á bls. 23
GENS UNA SUMUS
Biðskák í Rotterdam
AE-Reykjavik — 5. skák þeirra
Larsens og Portisch var tefld I
gær eftir að henni haföi veriö
frestað I fyrradag. Hún fór I bið
eftir 40. leiki.Staðan er sögö
hreint jafntefli....
Hvitt Svart
1. e4-e5
2. Rf3-Rc6
3. Bc4-Bc5
4. d3-Rf6
5. Rc3-d6
6. Bg5-h6
7. Bxf6-Dxf6
8. Rd5-Dd8
9. c3-Re7
10. Re 3-0-0
11. 0-0-Rg6
12. d4-Bb6
13. dxe5-dxe5
14. Dxd8-Hxd8
16. Hfel-Rf8
17. Rd5-c6
18. Rxb6-axb6
19. He3-Rg6
20. a3-Kf8
21. h3-f6
22. Kh2-Ke7
23. Bb3-Be6
24. Bxe6-Kxe6
25. Hed3-Ha4
26. Hd7 -He7
27. H7d6+-Kf7
29. Hxe6-Kxe6
30. f3-Ke7
31. Rfl-Rf4
32. Re3-g6
33. g3-Re6
34. Rg2-Ha8
35. Rh4-Rf8
36. Kg2-Hd8
37. Hxd8-Kxd8
38. Kf2-Ke7
39. Ke3-Kf7
40. Rg2-Rd7