Tíminn - 11.03.1977, Síða 5
Föstudagur XI. marz 1977
5
gébé Reykjavik — t dag lýkur
fundi framkvæmdanefndar
AlþjóBasamvinnusambandsins
(ICA) I Reykjavik, en fundur
þessi hófst þann 7. þ.m. Þaö var
i tilefni 75 ára afmælis Sam-
bands isl. samvinnufélaga, að
þessi fundur var haldinn hér á
landi að þessu sinni og i sama
tilefni sem Erlendur Einarsson,
forstjóri SIS, afhenti forseta
ICA, Roger Kerniec, tiu þúsund
pund, eða tæpar 3,3 millj. isl.
kr., sem framlag StS i Þróunar-
sjóð ICA. Þetta er fimmfalt
hærra framlag en SIS leggur
fram árlega til ICA. Roger
Kerniec, forseti ICA, þakkaði
hið höfðinglega framlag og ósk-
aðiStSalIs velfarnaðar. t sama
streng tók John J. Musundi,
fulltrúi Kenya i framkvæmda-
nefnd ICA, um leið og hann
þakkaði framlagið fyrir hönd
þróunarlandanna. — Athöfn
þessi fór fram að Hótel Sögu i
Fulltrúar framkvæmdanefndar Alþjóðasamvinnusambandsins á fundi sinum á Hótel Sögu I gærmorgun.
Samband ísl. samvinnufélaga:
Afhenti rúmar 3 millj. kr.
í Þróunarsjóð Alþjóða-
samvinnusambandsins
Erlendur Einarsson forstjóri StS, afhendir Roger Kerniec, for-
seta ICA, ávisun aö upphæð lOþúsund pund Igærmorgun.
gærmorgun, þegar fundarstörf
framkvæmdanefndarinnar voru
að hefjast.
Þetta er i fyrsta skipti sem
framkvæmdanefndin heldur
fund á tslandi.
Alþ j óða s a m vinnus am-
bandið
Alþjóðasamvinnusambandið
(ICA) varstofnaðárið 1895 og er
það þvi meðal allra elztu
alþjóöasamtaka sem starfandi
eru I heiminum. Það er sam-
band samvinnusambanda I öll-
um heimshlutum og I dag eru
innan þess 169 slik sambönd i 66
löndum. Innan vébanda þessara
samvinnusambanda eru um 673
þúsund samvinnufélög með
samtals 326 milljónir félags-
manna. Stærsti hluti þessara fé-
laga eru neytendasamvinnufé-
lög, 38%, en næst i röðinni hvað
fjölda snertir eru sam-
vinnusparisjóðir og lánafélög,
33% og samvinnufélög bænda,
19%. önnur félög eru bygginga-
samvinnufélög, framleiðslufé-
lög verkamanna og iðnaðar-
manna og samvinnufélög um
fiskveiöar.
Markmið Alþjóðasamvinnu-
sambandsins eru þessi:
— Koma fram sem sameigin-
legur fulltrúi allra þeirra fé-
lagasamtaka, sem starfa eftir
alþjóðlegum reglum um sam-
vinnufélög.
— Útbreiða hugsjónir og
starfsaðferðir samvinnuhreyf-
ingarinnar á öllum sviöum.
— Efla samvinnustarf i öllum
löndum heims.
— Standa vörð um hagsmuni
samvinnuhreyfingarinnar á öll-
um sviðum.
— Treysta sambandið á milli
aðildarsambanda sinna.
— Efla vinsamleg viöskipta-
leg samskipti hvers konar sam-
vinnusamtaka, jafnt innan
landa, sem á alþjóðavettvangi.
— Vinna aö þvi að varanlegur
friður og öryggi komist á i
heiminum.
— Stuðla að efnahagslegum
og félagslegum framförum fyrir
verkamenn allra landa.
Það á við um alla starfsemi
ICA að hún er fyrst og fremst á
félagslegum grundvelli, en það
fæst ekki sem slikt viö neins
konar verzlun eöa viðskipti.
Aðalskrifstofa samtakanna er i
London, en svæðaskrifstofur eru
i Nýju Delhi á Indlandi og i
Moshi i Tanzaaniu. Starfsmenn
á þessum skrifstofum eru sam-
tals 75 talsins. Tekjur sinar
hefur ICA fyrst og fremst af
framlögum aðildarsamtaka
sinna.
Aðili að ICA getur orðið hvert
það landssamband eða alþjóð-
legt fyrirtæki samvinnufélaga,
sem starfar á samvinnugrund-
velli og fylgir i raun hinum al-
þjóðlegu reglum um samvinnu-
félög. Þessar reglur eru að
stofni til reglur vefaranna i
Rochdale frá 1844, en endur-
skoðaðar i samræmi við nú-
timaaöstæður á 23. þingi
Alþjóðasamvinnusambandsins i
Vin 1966.
Skipulag
Æösta vald i málefnum ICA er
hjá þingi þess, sem haldið er
fjórða hvertár. Siðasta þing var
haldið i Paris haustið 1976, hið
26. I rööinni. Meginverkefni
þessara þinga er að ræöa og
móta stefnuna aö þvi er varðar
framtiðarverkefni sambands-
ins. Næsta þing veröur i Moskvu
árið 1980.
önnur stofnun ICA er
miðstjórn þess, en verkefni
hennar eru fyrst og fremst að
marka stefnuna i smærri atrið-
um og taka ákvarðanir um það,
hvernig framkvæmdanefndin
skuli vinna að framkvæmd ein-
stakra málaflokka. Fulltrúi SIS
hefur um langt skeið veriö Er-
lendur Einarsson forstjóri.
Þriðja stofnun ICA, er siðan
framkvæmdanefndin sem nú
heldur fund sinn á Islandi, Hún
kemur að öllum jafnaði saman
tvisvar á ári, og er verkefni
hennarað fara með yfirstjórn á
framkvæmdum ICA á milli
miðstjórnarfunda. Fram-
kvæmdanefndin skipuleggur
starfiö á skrifstofum ICA og
hefur auk þess sérstaka umsjón
með fjármálum þess og málefn-
um, sem snerta einstök aðildar-
sambönd. Þá hefur hún og
einnig vald til að samþykkja eða
hafna umsóknum um aðild að
ICA.
Þróunarárangur
Starf ICA i þróunarlöndunum
hófst fyrst að marki árið 1954,
en siðan hefur það stööugt veriö
að aukast. Arið 1971 hófst siðan
sérstakur „samvinnuþróunar-
áratugur” ICA, sem skipulagð-
ur var i nánu samstarfi við
stofnanir Sameinuðu þjóðanna.
A áratugnum 1971-1980 stefnir
ICA aö þvi aö sameina krafta
aöildarsambanda sinna til þess
aö styðja myndarlega við bakið
á samvinnufélögum i þriöja
heiminum og einnig til þess að
útbreiða samvinnuskipulagið i
þessum löndum.
Hlutverk ICA i þessu starfi er
fyrst og fremst að koma fram
sem ráðgefandi og skipuleggj-
andiaðili.Starfsemiþess á sviöi
þróunaraðstoðar er fjármögnuö
úr sérstökum þróunarsjóði
samtakanna, sem fyrst og
fremst er byggður upp af frjáls-
um framlögum aöildarsamtak-
anna. Þá vinnur ICA að ýmsum
verkefnum I nánu samstarfi viö
sérstofnanir Sþ, og starfsemi
þess hefur oftar en einu sinni
hlotið sérstaka viðurkenningu
frá aðalstöðvum þeirra.
ísland og Alþjóða-
samvinnusa mbandið
Samband isl. samvinnufélaga
hefur innt af hendi allveruleg
framlög til Þróunarsjóðs. Sá
háttur hefur verið hafður á, allt
frá stofnun hans 1971, að Sam-
bandið hefur lagt fram til hans
árlega upphæð sem samsvarar
5 pence (brezkum) á hvern fé-
lagsmann i Sambandskaupfé-
lögunum. A s.l. ári var fram-
lagiö þannig 2.000 sterlings-
pund, eöa um 600-700 þús. kr.
Isl., en það hefur fariö smá-
hækkandi eftir þvi sem félags-
mönnum i kaupfélögunum hefur
farið fjölgandi. Þessi háttur is-
lenzkra samvinnumanna á
framlögum til sjóðsins hefur
oftar en einu sinni vakiö veru-
lega athygli á alþjóðavettvangi
samvinnumanna. M.a. hefur Is-
land oftlega komizt i sviðsljósið
á fundum ICA af þessum sökum
og þetta fyrirkomulag veriö
talið til fyrirmyndar.
I ávarpi sinu á fundi fram-
kvæmdanefndarinnar aö Hótel
Sögu i gærmorgun sagði Er-
lendur Einarsson forstjóri m.a.
um þetta atriði: „Þaö varð að
ráði, aö islenzka samvinnu-
hreyfingin hefði framlag sitt til
aðstoðar við þróunarlöndin á
þróunaráratugnum i formi
framlags i Þróunarsjóös ICA,
og var ákveðið að leggja i sjóð-
inn ákveðna upphæð fyrir hvern
félagsmann innan Sambands-
kaupfélaganna. Þessi upphæð
hefur numið 5 enskum penzum á
ári eöa tæpum 2000 pundum.
Mig langar i þessu sambandi að
vitna til þess, sem ég sagði i
ræðu á þinginu i Varsjá 1972,
þar sem ég bað þingið að skoða
framlag islenzku samvinnu-
hreyfingarinnar sem fordæmi
til eftirbreytni.
Nú hefur þvi miður ekki orðið
sú raunin á, aö þetta hafi orðið
fordæmi fyrir önnur samvinnu-
Framhald á bls. 23
John J. Musundi, fulltrúi Kenya, þakkar framlag SÍS í Þrúunarsjóð ICA fyrir hönd þróunarlandanna.
Tfmamyndir G.E.