Tíminn - 11.03.1977, Side 24
! Fasteignasalan sem sparar hvorki tíma néfyrirhöfntil að veita yður sem bezta þjónustu. HREVFILL
Föstudagur 11. marz 1977 SÖIumaður: Finnur Karlsson Valgarður Sigurðsson heimaslmi 4-34-70 lögfraeðingur. Sfmi 3-55-22
G-ÐI
fyrirgóóan mat
_ $ KJÖTIÐNAÐAftSTÖÐ SAMBANDSINS
Ekki enn búið að frysta
nema 3000 tonn af loðnu
og sama sagan ytra
Sendinefnd af Árborgarsvædinu í liðsbón:
gébé Reykjavlk — Loönufrysting
hefur ekki gengiö eins vel og
menn höföu gert sér vonir um.
Loönan er þegar aö veröa svo
mikiö hrygnd, aö álita má aö aö-
eins sé hœgt aö frysta úr austan-
göngunum örfáa daga f viöbót,
jafnvel aöeins næstu 2-3 daga.
Nokkrar vonir eru bundnar viö
loönugöngur fyrir vestan land, en
sökum óveöurs aö undanförnu, er
ekkert enn vitaö um þær göngur,
né heldur I hvernig ástandi sá
loöna er. A tveim siöustu loönu-
vertiöum, hefur veiözt ágætis
hrygningarloöna tii frystingar úr
vesturgöngum og I fyrra, veiddist
mjög vel dagana 17.-19. marz.
Ekki er þvi útilokaö aö enn séu
góöir dagar eftir fyrir frystingar-
loönu, en þó er greinilegt nú þeg-
ar, aö frystingin veröur mun
minni en vonazt haföi veriö eftir.
Samkvæmt þeim tölum sem
Tlminn aflaöi á miövikudag, mun
vera búiö aö frysta alls rétt rúm-
lega þrjú þúsund tonn. A vegum
Sölumiöstöövar hraöfrystihús-
anna sem er stærsti aöilinn, er
búiö aö frysta rétt rúm 2000 tonn,
aö sögn Eyjólfs ísfelds Eyjólfs-
sonar, framkvæmdarstjóra. A
vegum sjávarafuröardeildar SIS
mun hafa veriö fryst um 600 tonn,
aö sögn Arna Benediktssonar,
framkvæmdastjóra Kirkjusands
hf., og aö sögn Bjarna V. Magnús-
sonar, hjá Isl. umboössölunni,
hefur veriö fryst I kringum 500
tonn á þeirra vegum.
Erfiöleikarnir viö loönu-
frystinguna I ár, stafa fyrst og
fremst af hinum ströngu kröfum,
sem kaupendurnir, Japanir, hafa
gert, þ.e. aö hafa ekki fleiri en 50
stk I kg. Aö sögn Árna Benedikts-
sonar, munu Japanir, s.l.
fimmtudag, þó hafa hækkaö þetta
magn upp I 55 stk. I kg. a.m.k.
hvaö snertir framleiöslu Sam-
bandsins.
Mikiö er þvl undir vesturgöng-
unni komiö, en loönan, sem fryst
var á slöustu vertlö, veiddist aö
langmestu leyti úr loönugöngum
fyrir vestan.
Áskorendaeinvigið:
Enn eitt
iafnteflið
Meöfylgjandi Tfmamynd tók Róbert viö Orfirisey nýlega, þegar veriö var aö landa loönu úr
Helgu II. Þarna eru starfsmenn viö loönuskiljuna, þ.e. þar sem hrognin eru skilin frá loönunni.
A.E.-Reykjavlk. Boris Spassky
og Vlastimil Hort geröu jafntefli
I 6. einvigisskák sinni á Hótel
Loftleiöum i gærkvöldi, i skák
sem lofaöi góöu I byrjun, en
dofnaöi þegar á leiö. Greinilegt
var, aö Hort ætlaöi sér stóra
hluti i þessari skák. Snemma
fékk hann betri stööu, vann peö
af Spassky en neyddist slöan i
allsherjaruppskipti. Eftir þaö
varstaöandauttjafntefli, þvi aö
upp kom biskupaendatafl og
sömdu stórmeistararnir um
jafntefli i 44. leik. Staöan er nú
þannig aö Spassky hef 3 1/2
vinning, en Hort 2 1/2, eftir aö
Spassky hefur unniö eina skák,
þá þriöju, en fimm skákir hafa
endaö meö jafntefli.
I fyrradag voru tefldar tvær
skákir i hinum einvigjunum.
Mecking og Polugajevsky geröu
jafntefli I stuttri skák. Mecking
þrálék og þegar komiö var fram
1 25. leik, haföi sama staöan
komiö upp þrisvar sinnum I röö.
Fyrir skákina haföi hann leitaö
aö besta hægindastól sem fyrir-,
fannst i húsinu. Og þegar and-
stæöingur hans hugsaöi leiki
sina, dottaöi hann örlltiö á meö-
an. Er greinilegt, aö Mecking
reynir nú eftir fremsta megni aö
slappa af þvi hann er ennþá
svefnvana. Eblugajevsky hefur
nú 2 1/2 vinning, en Mecking 1
1/2.
Einnig tefldu þeir Petrosjan
og Kortsnoj sina 4. skák. Hún
var fremurstutt, aöeins 22 leikir
og eins og allar fyrri skákir i
þessu einvigi þeirra endaöi hún
meö jafntefli. Hvorum sig hefur
nú 2 vinninga.
5. skák þeirra Larsens og Por-
tisch sem fór i biö um daginn,
var tefld áfram i fyrradag. Hún
fór aftur i biö eftir 74 leiki.
Framhaldiö veröur teflt á
morgun, en 6. skákin veröur
tefld i dag.
Vegna plássleysis i blaöinu er
ekki unnt aö birta skákirnar i
dag en þær veröa birtar fljót-
lega.
Brú á Ölfusárósa — slit-
lag á Eyrarbakkaveg
Brú yfir öifusárósa er nú tal-
in kosta tóif hundruð milljónir
króna meö vegum, sem henni
veröa aö fylgja á bába bóga, og
siitlagi á veginn frá Selfossi til
Eyrarbakka, sagöi óskar
Magnússon, oddviti á Eyrar-
bakka, i viötali viö Timann. Og
kostnaöurinn æöir upp meö
hverju misseri sem liöur.
Hópur manna, sem berst fyrir
þvl, aö ráöizt veröi sem fyrst I
þessa brúargerö, sat á þriöju-
daginn fund meö fjárveitinga-
nefnd alþingis og lagöi aö henni
aö leggja sitt lób á vogarskál-
amar, svoaö sem fyrst yröi haf
izthanda um þessa miklu sam-
göngubót, sem nú er oröin enn
brýnni en ella sökum hins nýja
togara, er þorpin þrjú austan
Olfusár hafa fengiö.
— Okkur var vinsamlega tekiö,
sagöi Óskar enn fremur, en viö
vitum ekki, hvernig þessu reiöir
af. Þaö er vlst ekki venja þing-
manna aö láta uppi afstööu á
slikum viöræöufundum I fjár-
veitinganefnd. En I stuttu máli
sagt: Qkkur fannst rikja skiln-
ingur á þessu nauösynjamáli
byggöarlaganna i' neöan veröri
Arnessýslu.
Um Eyrarbakkaveginn sagöi
Óskar, aö hann þyldi ekki
lengur þá umferö, sem á honum
mæddi eins og hann væri úr
garöi geröur. Um hann fara um
720 bilar á dag þann tima árs,
er umferðin væri mest, en
sveiflan á milli árstlöa væri lltil,
svo aö meöaltaliö áriö um kring
myndi vera hátt á sjötta hundr-
aöi.
— I fyrra var varið tiu til tólf
milljónum króna til viöhalds á
þessum spotta, sem ekki er
nema tiu kilómetrar eöa liðlega
það, en sennilega veröur allt
komiö i sama horf aftur á kom-
andi sumri. Malarofaniburöur
stenzt ekki oröiö stundinni
lengur á þessum vegi meö þeirri
umferð, sem þar er.
n « • i i z1' r%
Enn eitt íbúðar
húsið sprakk
— Veiztu, hvaö
álkrónan er kölluð,
þessi létta?
— Nei, þaö hef ég
ekki heyrt.
— Nordalur.
gébé Reykjavik — Klukkan 11:40 I
gærmorgun varö mikil sprenging
I nýlegu einlyftu ibúöarhúsi aö
Klébergi 4 I Þorlákshöfn. Húsiö
skemmdist mikiö, en enginn
slasaöist, þar sem ibúar hússins
voru allir fjarverandi þegar
sprengingin varö. Taliö er aö litill
hitakútur hafi sprungiö meö fyrr-
greindum afleiöingum.
Orsök sprengingarinnar hefur
ekki veriö fullkönnuö, en talið er
að einhver bilun I rafmagnshitun
hússins og I hitakútnum hafi átt
sér staö. Mestar skemmdir uröu i
eldhúsi og þykkur inniveggur,
sem var á milli eldhúss og þvotta-
húss, sprakk, féllog varö aö dufti,
aö sögn fréttaritara Tlmans i
Þorlákshöfn, BenediktsThoraren-
sens. Þá fuku rúöur úr gluggum
út á hlaö I þúsund molum, en aör-
ar skemmdir voru ekki full-
kannaöar i gærkvöldi.
Þaö er ab veröa óhugnanlega
algengt, ab sprengingar veröi i
rafmagnshituöum húsum.
'7(0