Tíminn - 24.04.1977, Blaðsíða 26
26
Sunnudagur 24. apríl 1977 ,
ensk gólf teppi
frá Gilt Edge og CMC
Karl Guðmundsson
GOLFTEPPADEMMSMIÐJUVEGI6
Vió bjóóum fjölbreytt úrval gólfteppa
frá Gilt Edge og CMC til afgreióslu strax;
og einnig má panta eftir myndalista
meó stuttum afgreióslufresti.
Festió ekki kaup á gólfteppum, án þess
aó kynna yóur þessi gæóateppi -
þaó borgar sig.
Forstöðustarf
Leikskólans Hlaðheimum i Mosfellssveit
er laust til umsóknar.
Upplýsingar gefa sveitarstjóri Mosfells-
hrepps i sima 66-219 og forstöðukona leik-
skólans i sima 66-351.
Sveitarstjóri.
Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við hina
vel þekktu
mitiá
(x aðeins
VERÐMERKI-
BYSSUVÉL
kr. 12 þús. m. ssk.
1 árs ábyrgð. Gerið gæðasamanburð.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta.
PIíisím lil* W
GRENSÁSVEG 7 ■ SÍMI 82655 ■ BOX 4064
Fæddur 30. des. 1898
Dáinn 15. april 1977.
Hann var fæddur og uppalinn i
Króki á Rauðasandi. Foreldrar
hans voru hjónin Guðrún Einars-
dóttir Thóroddsen og Guðmundur
Sigfreðsson. , Þau hjón eignuðust
sjö syni. Einn þeirra lézt á fyrsta
ári, en hinir sex komust til full-
orðins aldurs. Fjórir þeirra eru
nú látnir: Torfi menntaskóla-
kennari, Einar Thóoddsen læknir,
Sigfreöur bóndi og nú siðast Karl.
Eftir lifa tveir elztu bræðurnir,
Jón rafvélameistari og dr. Krit-
inn fyrrv. ambassador og ráð-
herra.
Heimili foreldra Karls i Króki
var mikið myndarheimili. Vinnu-
semi, hagsýni og snyrtimennska
réði þar rikjum. Guðmundur nam
búfræði i Ólafsdal og kom þaðan
með það veganesti, sem lengi bar
svipmót Torfa skólastjóra i bú-
skapnum i Króki. Virðing hans
fyrir Torfa sýndi sig m.a. i þvi, að
hann lét yngsta son sinn heita
nafni hans. Guðrún húsfreyja var
ekki siðri á sinu sviði. Hún var
ljósmóðir sveitarinnar áratugum
saman og varð þvi að leggja á sig
feröalög um fjöll sem byggðir, að
vetri sem sumri og dvelja við þau
skyldustörf fjarri barnmörgu
heimili sinu. Af þessum sterku
stofnum var Karl kominn. Hann
sýndi það lika i mörgu á langri
æfi.
A uppvaxtarárum sinum i
Króki vandist Karl hefðbundnum
sveitastörfum, en stundaði jafn-
framtsjómennsku um skeið i ver-
stöðvum. Þetta var lögmál bænda
og bændasona i þeirri sveit, þar
sem jarðir voru litlar og rækt-
unarmöguleikar á þeim timum
þvi nær engir. En öll þessi störf
mótuðu manninn. Það var stund-
um kaldranalegt i opnum árabát
úti á Atlantshafi þótt á vori væri.
Þaö var heldur ekki áreynslu-
laust að fara kaupstaðarferðir i
misjöfnum vetrarveðrum yfir
Skersfjall og út Patreksfjörð og
bera svo varninginn yfir fjallið á
heimleiðinni. En þetta var heim-
ur Rauðsendinga og piltar kunnu
þessum heimi vel. Þeir mega
vera þakklátir fjöllunum og sjón-
um þar vestra fyrir uppeldið.
Hætt er við að kjarkurinn og
þrekiö hefði oröið eitthvað minna
ef umhverfið hefði verið Lauga-
vegur eða Austurstræti.
Rauðasandur er lftiö og af-
skekkt hérað og mætti margur
ætla að þar hafi rikt einangrun og
félagslegt fásinni, en það var öðru
nær. Bæirnir voru þar þrettán i
byggð á uppvaxtarárum Karls,
þótt nú sé þeir aðeins sex, en fólk-
ið var alls um 120 til 130. Nú eru
um 20 til 30 manns á Rauðasandi.
Það mun hafa verið um 1910,
eða skömmu siðar, að stofnaö var
þar ungmennafélag. Það gerði
Eyjólfur Sveinsson frændi Karls,
er stundað hafði nám i Flensborg
og siðan i Noregi, en gerðist i við
heimkomuna barnakennari
sveitarinnar. Þetta félag færði
nýtt lif i unga sem gamla á
Rauðasandi. Það starfaði mikiö
með umræðufundum og samkom-
um og efldi manndóm og mennta-
þorsta æskufólks. Frá þessum fé-
vana heimilum fóru siðar flestöli
ungmennin, stúlkur sem piltar, til
einhvers náms. Þó var hvorugu
til að dreifa þá, námsstyrkjum né
foreldrafé.
Karl fór til náms að Hvanneyri
1923 og lauk þaðan búfræðiprófi
1925. Ekki er mér kunnugt um
hvers vegna hann varð aldrei
bóndi, ef til vill hefir honum verið
handiðn öllu hugstæðari. Hér
syðra stundaði hann rafvélastörf
hjá Bræðrunum Ormsson og
fleirum, en stundaði auk þess
fleiri störf. Um 1930 varð hann
sýningarmaður i Nýja Bió. Siðar
varð hann sýningarstjóri i
Tjarnarbió og svo i Háskólabió,
en samhliða gegndi hann rafvéla-
störfunum, sem hann lagði aldrei
á hilluna með öllu, þótt heilsan
bilaði, heldur hafði sér til dægra-
styttingar.
Þann 19. júni 1926 giftist Karl
Margréti Tómasdóttur frá Hró-
arsholti I Arnessýslu. Þau bjuggu
alla sina hjúskapartið i Reykja-
vik. Þau eignuðust niu börn, fjór-
Karl Guðmundsson óg Margrét Tómasdóttir
ar dætur og fimm syni, sem öll
lifa og eru fyrir löngu upp komin.
Margrét var glæsileg og aðlað-
andi kona og það er hún enn i dag,
þött hún sé rúmliggjandi sjúk-
lingur, en á efri hæð Landakots-
spitala lá hún þegar Karl maður
hennar lézt á neðri hæðinoi.
Margrét hefir gegnt miklu og
vandasömu hlutverki eiginkonu
og móður i meira en fimmtiu ár
með einstakri sæmd og virðuleik.
1 langri og farsælli sambúð með
eiginmanni sinum hugsaði hún
eins og Rut forðum: „Þitt fólk er
mitt fólk, þinn guð er minn guð”.
Karl var allhávaxinn maður,
þrekinn og kraftalegur, enda góð-
ur glimumaður i gamla daga.
Hann var glaður og frábærlega
spaugsamur i góðra vina hópi.
Þykir mér liklegt að hann hafi bú-
ið yfir leikarahæfileikum, þótt
aldrei legði hann það fyrir sig.
Hann var hagyrðingur góður en
gagnrýninn á kveðskap svo og á
ritað mál almennt. Hann sætti sig
litt við sumar kenningar og stað-
hæfingar manna, sem honum
fannst ekki á rökum reistar og lét
sig engu skipta hvort i hlut áttu
lærðir menn eða leikir. Hann var
fullur af nýjum hugmyndum til
framfara i ýmsum efnum, sem að
sjálfsögðu var honum ofvaxið að
framkvæma.
Ég kveð þenna kæraleikbróður
minn og frænda, fermingarbróð-
ur og vin með þakklæti fyrir
ógleymanlegar samverustundir á
langri æfi okkar beggja. Margréti
konu hans, börnum og barna-
börnum, flyt ég innilegar samúð-
arkveðjur.
Sigurvin Einarsson
^c^^^Hitablásarar
fyrir heitt vatn og gufu
,,TYPE ISLANDAIS” sérbyggð
fyrir hitaveitu.
Nokkur stykki 17.700 K
cal/klst. óráðstafað úr siðustu
sendingu.
HELGI THORVALDSSON
Háagerði 29 — Reykjavik
Sími 3-4932
BÍLA-
PARTA-
SALAN
auglýsir
Nýkomnir varahlutir í:
Plymouth Valiant
Citroen Ami
Land/Rover
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97