Tíminn - 24.04.1977, Síða 26

Tíminn - 24.04.1977, Síða 26
26 Sunnudagur 24. apríl 1977 , ensk gólf teppi frá Gilt Edge og CMC Karl Guðmundsson GOLFTEPPADEMMSMIÐJUVEGI6 Vió bjóóum fjölbreytt úrval gólfteppa frá Gilt Edge og CMC til afgreióslu strax; og einnig má panta eftir myndalista meó stuttum afgreióslufresti. Festió ekki kaup á gólfteppum, án þess aó kynna yóur þessi gæóateppi - þaó borgar sig. Forstöðustarf Leikskólans Hlaðheimum i Mosfellssveit er laust til umsóknar. Upplýsingar gefa sveitarstjóri Mosfells- hrepps i sima 66-219 og forstöðukona leik- skólans i sima 66-351. Sveitarstjóri. Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við hina vel þekktu mitiá (x aðeins VERÐMERKI- BYSSUVÉL kr. 12 þús. m. ssk. 1 árs ábyrgð. Gerið gæðasamanburð. Varahluta- og viðgerðarþjónusta. PIíisím lil* W GRENSÁSVEG 7 ■ SÍMI 82655 ■ BOX 4064 Fæddur 30. des. 1898 Dáinn 15. april 1977. Hann var fæddur og uppalinn i Króki á Rauðasandi. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Einars- dóttir Thóroddsen og Guðmundur Sigfreðsson. , Þau hjón eignuðust sjö syni. Einn þeirra lézt á fyrsta ári, en hinir sex komust til full- orðins aldurs. Fjórir þeirra eru nú látnir: Torfi menntaskóla- kennari, Einar Thóoddsen læknir, Sigfreöur bóndi og nú siðast Karl. Eftir lifa tveir elztu bræðurnir, Jón rafvélameistari og dr. Krit- inn fyrrv. ambassador og ráð- herra. Heimili foreldra Karls i Króki var mikið myndarheimili. Vinnu- semi, hagsýni og snyrtimennska réði þar rikjum. Guðmundur nam búfræði i Ólafsdal og kom þaðan með það veganesti, sem lengi bar svipmót Torfa skólastjóra i bú- skapnum i Króki. Virðing hans fyrir Torfa sýndi sig m.a. i þvi, að hann lét yngsta son sinn heita nafni hans. Guðrún húsfreyja var ekki siðri á sinu sviði. Hún var ljósmóðir sveitarinnar áratugum saman og varð þvi að leggja á sig feröalög um fjöll sem byggðir, að vetri sem sumri og dvelja við þau skyldustörf fjarri barnmörgu heimili sinu. Af þessum sterku stofnum var Karl kominn. Hann sýndi það lika i mörgu á langri æfi. A uppvaxtarárum sinum i Króki vandist Karl hefðbundnum sveitastörfum, en stundaði jafn- framtsjómennsku um skeið i ver- stöðvum. Þetta var lögmál bænda og bændasona i þeirri sveit, þar sem jarðir voru litlar og rækt- unarmöguleikar á þeim timum þvi nær engir. En öll þessi störf mótuðu manninn. Það var stund- um kaldranalegt i opnum árabát úti á Atlantshafi þótt á vori væri. Þaö var heldur ekki áreynslu- laust að fara kaupstaðarferðir i misjöfnum vetrarveðrum yfir Skersfjall og út Patreksfjörð og bera svo varninginn yfir fjallið á heimleiðinni. En þetta var heim- ur Rauðsendinga og piltar kunnu þessum heimi vel. Þeir mega vera þakklátir fjöllunum og sjón- um þar vestra fyrir uppeldið. Hætt er við að kjarkurinn og þrekiö hefði oröið eitthvað minna ef umhverfið hefði verið Lauga- vegur eða Austurstræti. Rauðasandur er lftiö og af- skekkt hérað og mætti margur ætla að þar hafi rikt einangrun og félagslegt fásinni, en það var öðru nær. Bæirnir voru þar þrettán i byggð á uppvaxtarárum Karls, þótt nú sé þeir aðeins sex, en fólk- ið var alls um 120 til 130. Nú eru um 20 til 30 manns á Rauðasandi. Það mun hafa verið um 1910, eða skömmu siðar, að stofnaö var þar ungmennafélag. Það gerði Eyjólfur Sveinsson frændi Karls, er stundað hafði nám i Flensborg og siðan i Noregi, en gerðist i við heimkomuna barnakennari sveitarinnar. Þetta félag færði nýtt lif i unga sem gamla á Rauðasandi. Það starfaði mikiö með umræðufundum og samkom- um og efldi manndóm og mennta- þorsta æskufólks. Frá þessum fé- vana heimilum fóru siðar flestöli ungmennin, stúlkur sem piltar, til einhvers náms. Þó var hvorugu til að dreifa þá, námsstyrkjum né foreldrafé. Karl fór til náms að Hvanneyri 1923 og lauk þaðan búfræðiprófi 1925. Ekki er mér kunnugt um hvers vegna hann varð aldrei bóndi, ef til vill hefir honum verið handiðn öllu hugstæðari. Hér syðra stundaði hann rafvélastörf hjá Bræðrunum Ormsson og fleirum, en stundaði auk þess fleiri störf. Um 1930 varð hann sýningarmaður i Nýja Bió. Siðar varð hann sýningarstjóri i Tjarnarbió og svo i Háskólabió, en samhliða gegndi hann rafvéla- störfunum, sem hann lagði aldrei á hilluna með öllu, þótt heilsan bilaði, heldur hafði sér til dægra- styttingar. Þann 19. júni 1926 giftist Karl Margréti Tómasdóttur frá Hró- arsholti I Arnessýslu. Þau bjuggu alla sina hjúskapartið i Reykja- vik. Þau eignuðust niu börn, fjór- Karl Guðmundsson óg Margrét Tómasdóttir ar dætur og fimm syni, sem öll lifa og eru fyrir löngu upp komin. Margrét var glæsileg og aðlað- andi kona og það er hún enn i dag, þött hún sé rúmliggjandi sjúk- lingur, en á efri hæð Landakots- spitala lá hún þegar Karl maður hennar lézt á neðri hæðinoi. Margrét hefir gegnt miklu og vandasömu hlutverki eiginkonu og móður i meira en fimmtiu ár með einstakri sæmd og virðuleik. 1 langri og farsælli sambúð með eiginmanni sinum hugsaði hún eins og Rut forðum: „Þitt fólk er mitt fólk, þinn guð er minn guð”. Karl var allhávaxinn maður, þrekinn og kraftalegur, enda góð- ur glimumaður i gamla daga. Hann var glaður og frábærlega spaugsamur i góðra vina hópi. Þykir mér liklegt að hann hafi bú- ið yfir leikarahæfileikum, þótt aldrei legði hann það fyrir sig. Hann var hagyrðingur góður en gagnrýninn á kveðskap svo og á ritað mál almennt. Hann sætti sig litt við sumar kenningar og stað- hæfingar manna, sem honum fannst ekki á rökum reistar og lét sig engu skipta hvort i hlut áttu lærðir menn eða leikir. Hann var fullur af nýjum hugmyndum til framfara i ýmsum efnum, sem að sjálfsögðu var honum ofvaxið að framkvæma. Ég kveð þenna kæraleikbróður minn og frænda, fermingarbróð- ur og vin með þakklæti fyrir ógleymanlegar samverustundir á langri æfi okkar beggja. Margréti konu hans, börnum og barna- börnum, flyt ég innilegar samúð- arkveðjur. Sigurvin Einarsson ^c^^^Hitablásarar fyrir heitt vatn og gufu ,,TYPE ISLANDAIS” sérbyggð fyrir hitaveitu. Nokkur stykki 17.700 K cal/klst. óráðstafað úr siðustu sendingu. HELGI THORVALDSSON Háagerði 29 — Reykjavik Sími 3-4932 BÍLA- PARTA- SALAN auglýsir Nýkomnir varahlutir í: Plymouth Valiant Citroen Ami Land/Rover BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.