Tíminn - 24.04.1977, Síða 32
28644 HY'rm.l 28645
fasteignasala öldugötu 8
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né f yrirhöf n til að veita yður sem
bezta þjónustu
Sölumadur: Finnur Karlsson Valgarður Sigurðsson
■■**■**■ heimasimi 4-34 70 lögf ræðingur
UREVnil
Slmi B 55-22
-
fyrir góöanmaM
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
■- ' ■ " -
Flokkun uUar ef tir nýj-
um ullarmatslöenum
o
— verulegt skref í þá átt að bæta ullina og
meðferð hennar, segir Stefán Aðalsteinsson
MÓ-Reykjavtk —Lögin um mat
á ull sem samþykkt voru f fyrra
eru verulegt átak i þá átt að
bæta stórlega meðferð og gæði
ullarinnar og auka þar með
verðmæti hennar, sagði Stefán
Aðalsteinsson formaður ullar-
matsnefndar i samtali við Tim-
ann i gær. Vetrarklippta ullin,
sem nú er að berast vcrður met-
in i ullarþvottastöðvunum eftir
þessum lögum og þeirri reglu-
gerð.sem settvar i framhaldi af
samþykkt laganna. Siðan er
stcfnt að þvi að næsta vetur geti
bændur fengið ull sina metna
þegar þeir koma með hana á
ullarmóttökustöðvarnar.
Þar til þessi lög voru sam-
þykkt var engin löggjöf til um
mat á ull og mjög mismunandi
reglur giltu hjá ullarþvotta-
stöðvunum um matið. En nú eru
þessi mál komin f mjög sam-
bærilegt kerfi og mat á kjöti og
á það að verða það sama um
allt land.
Sexmannanefnd ákvað við
verðlagningu búvara 1. marz sl.
véröið á mismunandi flokka ull-
ar og er það nú sem hér segir.
Fyrir hvíta úrvalsull á
bóndinn að fá 731 kr. Fyrir 1.
flokk 527 kr. 211 kr. fyrir annan
flokk og 79 kr. fyrir þriðja flokk.
Fyrir svarta úrvalsull á hann
aö fá 731 kr., 527 kr. fyrir gráa
og 862 kr. fyrir mórauða.
A þessu sést að það skiptir
miklu fyrir bóndann f hvaða
gæöaflokk ull hans lendir, en
hingað til hefur verömunur ver-
ið það lítill, að það hefur litil
áhrif haft.
Samkvæmt lögunum eiga
bændur rétt á að ull þeirra sé
metin, þegar þeir skila henni til
verzlunaraðila og verður svo
gert þegar kerfi matsmanna
veröur komið á um land allt. Þá
þurfa bændur sjálfir að flokka
ullina eftir þeim reglum, sem i
gildi eru en ullarmatsmenn á
hverjum staö meta siðan hvort
flokkunin sé rétt gerö.
Landbúnaöarráöuneytið réð
nú i vikunni ullarmatsmenn og
gærumatsmenn sem hafa mun u
yfirumsjón með matinu hver I
sinum fjórðungi. og munu þeir
starfa undir umsjá ullarmats-
formanns Stefáns Aðalsteins-
sonar og gærumatsformanns,
Sveins Hallgrimssonar.
Yfirgærumatsmaöur á Suöur-
og Vesturlandi var ráðinn Sig-
urður Einarsson Akranesi, en
yfirullarmatsmaður á þvi svæði
var ráðinn Hermann Jóhanns-
son Kleyfum.
A Norðurlandi var Gunnlaug-
ur Karlsson Borgarhóli ráðinn
bæöi sem yfirullarmatsmaöur
og yfirgærumatsmaður og á
Vestfjöröum var Július Reynir
Ivarsson Móbergi ráðinn i starf-
ið. A Austfjöröum var Sigurður
Eiriksson Sauðanesi sfðan ráð-
inn sem yfirgærumatsmaöur og
Sigfús Þorsteinsson Fossgerði
sem yfirullarmatsmaöur.
Til skamms tima var smalað til rúnings á vorin, og féð rúið við
rcttina. t seinni tiö hafa fleiri og fleiri bændur, sem hafa góð fjár-
hús, farið að rýja fé sitt að vetrarlagi, að minnsta kosti hið yngra.
Þannig fæst stórum betri ull, og það skiptir miklu máli, þegar ull-
ariðnaður er oröinn mikill þáttur I atvinnulifinu og gjaldeyrisöfl-
uninni. —Timamynd: Gunnar.
-
* , o c .
Iskyggileg niðurstaóa rannsóknar:
Fjórðungur birkiskóga
í landinu í afturför
JH-Reykjavfk.— Allt skóglendi
á Islandi er 125.469 hektarar að
flatarmáli, og er sú mæling að
mestu leyti byggð á loftmynd-
um. Viðátta skóglendis er þvi
nokkru meiri en áður var talið,
og munar þar mestu, að kjarr I
hrauni er miklu viðar en fyrr
var gert ráð fyrir.
Þetta segir þó ekki alla sög-
una. 26.4% af þessu skóglendi er
I afturför vegna ániðslu og
42,1% staðnaö. Tæpur þriöjung-
ur 31,5% er I framför, og er
verulegurhluti þessa skóglendis
innan girðinga.
Þetta er niöurstaöa skýrslu,
sem gerð hefur veriö að tilhlut-
an skógræktunarsamtakanna
siöustu árin, og Haukur Jörund-
arson safnaði gögnum til árin
1972-1975 ásamt aðstoðarmönn-
um sinum.
Birkið vex allt frá sjávarmáli
upp i 550 metra hæö yfi
sjó, en mikill hluti þess er lág-
vaxinn — á 80.8% skóglendis er
meðalhæð hrislnanna innan við
tvo metra, en 4-8 metrar á 2,4%
og 8-12 metrar á 1,7%. Glöggt
kemur fram i þessari skýrslu,
hve vel birkið verndar annan
gróöur, og er gróinn að tveim
þriöju i 44,1% skóglendis og al-
gróinn I 40,8%. Viða leynist
birkigróður I jörðu við jaöra
skóglendis eða I grennd viö það,
og myndi þar vaxa upp skógur
sjálfkrafa, ef ekki kæmi til beit.
Svo til allt það skóglendi, þar
sem tré eru hæst, er innan girö-
inga. Hæsta birkitré, sem mælt
hefur verið i skógum landsins,
12,7 metrar, óx I Fellsskógi I
Kinn, en brotnaöi undan snjó-
þunga, varla talið meira en sex-
tiu ára gamalt.
Sérstaklega eru tilgreindir
margir staðir, þar sem birki-
skógar eru i mikilli afturför. I
Borgarfjaröarsýslu er nefndur
Hafnarskógur og skóglendi i
neðri hluta Botnsdals, I Snæ-
fellsnessýslu Skógarströnd, þar
sem svo horfir, aö ekki veröi
annaö eftir en nakin klapparholt
innan fárra áratuga, i Dölum
Fellsendaskógur, sem þegar er
nær horfinn og berar liparit-
skriður eftir, skóglendi á
Barðaströnd, sem talið er sumt I
bráðri hættu. 1 Norður-Múla-
sýslu er skóglendi viða taliö I
hraðri afturför, sem og niöri á
fjöröunum, og i Vestur-Skafta-
fellssýslu en meginhluti alls
skóglendis á undanhaldi og
framtið þess I Skaftártungu
mjög hæpin. 1 nánd við nokkra
bæi efst I Rangárvallasýslu eru
miklar og sums staðar hroöa-
legar skógarskemmdir. í
Laugardal og Biskupstungum,
þar sem veriö hefur eitt sam-
felldasta skóglendi landsins, eru
sums staðar hroðalegar
skemmdir, bæði af völdum beit-
ar og átroðnings manna.
BBIM VÍÐ EYJASAND
Sjaldan er ládauður sjór við sandströndina sunnlenzku ,,því haf-
gang þann ei hefta veður blið, sem voldug reisir Rán á Eyjasandi,
þar sem hún heyir heimsins langa strið”. En myndin sýnir einmitt
Landeyjasand — þaðan sem heyrist öldufallaeimur”. Þar hefur
engin breyting á orðið siðan á dögum þeirra Gunnars og Kol-
skeggs á Hliðarenda.
—Timamynd: Róbert.
PALLI OG PÉSI