Fréttablaðið - 20.02.2006, Side 13
13 20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Ísafirði
hefur nú í haldi tvo menn sem
grunaðir eru um að hafa ætlað að
selja fíkniefni á Ísafirði.
Mennirnir voru handteknir um
klukkan tíu á laugardagsmorgun í
Ísafjarðardjúpi en þeir voru þá að
koma akandi til Ísafjarðarbæjar
frá Reykjavík.
Lögreglan hafði rökstudd-
an grun um að för mannanna
tengdist fíkniefnamisferli og var
bifreið mannanna því stöðvuð
og leitað í bílnum. Þar fundust
fíkniefni í sölueiningum en lög-
reglan á Ísafirði neitaði að gefa
upp hversu mikið magn af efnum
var um að ræða. Báðir mennirnir
hafa komið við sögu lögreglu áður
vegna fíkniefnamála.
Lögreglan á Ísafirði hefur lagt
fram kröfu um gæsluvarðhald
beggja mannanna fyrir Héraðs-
dóm Vestfjarða. -mh
Teknir með fíkniefni:
Grunaðir um
sölu á Ísafirði
Bílslys í Hvalfjarðargöngum
Ölvaður ökumaður ók utan í vegg í
Hvalfjarðargöngum seint í fyrrakvöld.
Lögreglan á Akranesi kom fljótt á vett-
vang og færði manninn á lögreglustöð
þar sem tekin var af honum skýrsla.
Bíllinn skemmdist mikið og var dreginn
burtu úr göngunum.
LÖGREGLUFRÉTT
Árekstur á Breiðholtsbraut Tveir
bílar skullu saman á Breiðholtsbraut og
hálftvö leytið í fyrri nótt. Engin alvarleg
slys urðu á fólki en bílarnir skemmdust
töluvert. Lögreglan og sjúkrabíll komu
fljótt á vettvang og voru ökumenn
beggja bílanna fluttir á slysadeild.
VÍSINDI, AP Ein af afleiðingum
gróðurhúsaáhrifanna er líklega
útrýming fjölmargra froska-
tegunda víðs vegar um heim-
inn, meðal annars fjallafroska í
Yosemite-þjóðgarðinum í Banda-
ríkjunum.
Froskur þessi, sem nefndur er
eftir gulum löppunum, liggur í
dvala undir snjó og ís í allt að níu
mánuði á ári hverju í heimkynn-
um sínum í Sierra-fjöllunum. Eitt
sinn voru þeir svo margir að þeir
þöktu tjarnarbakka, en á seinustu
fimm árum hafa um 10 prósent
þeirra drepist á ári hverju. Ástæð-
an er sveppur sem sest á húð
þeirra svo þeir fá ekki það vatn
sem þeir þarfnast inn í kropp-
inn. Hlýnandi loftslag hefur gert
svepp þessum kleift að dreifa sér
afar hratt um víða veröld, og er
hann meðal annars talinn ástæða
útrýmingar 112 froskategunda í
Kosta Ríka.
Einnig stafar froskunum hætta
af aðfluttum silungi. Menn hafa
áratugum saman flutt silung í
vötn og ár Yosemite-garðsins svo
fólk geti veitt þá sér til skemmt-
unar, en silungarnir éta froskana.
Yfirvöld í þjóðgarðinum eru því
nú í óða önn að útrýma silungun-
um í von um að bæta heimkynni
froskanna. Þó óttast líffræðingar
að það sé um seinan. - smk
Froskar í útrýmingarhættu í Bandaríkjunum:
Hækkandi hitastig banvænt
FROSKURINN Einn af froskunum sem eru í
útrýmingarhættu sést hér synda í rólegheit-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LONDON, AP Rúmlega tíu þúsund
manns söfnuðust saman í miðborg
Lundúna um helgina til að mót-
mæla teikningunum af Múhameð
sem hafa vakið hörð viðbrögð út
um allan heim að undanförnu.
„Málfrelsi og móðganir“ stóð
á sumum mótmælaspjöldunum.
„Hvernig dirfist þið að móðga
hinn blessaða spámann Múha-
með?“, stóð á öðrum.
Engar fregnir bárust af ofbeldi
eða handtökum á Trafalgartorgi
þar sem mótmælin fóru fram. -fb
Teikningar af Múhameð:
Tíu þúsund
mótmæltu
MÓTMÆLI Rúmlega tíu þúsund manns
mótmæltu teikningunum af Múhameð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INDLAND, AP Frægð og frami eru
ekki nóg fyrir suma. Ein helsta
Bollívúdd-stjarna Indlands, Salm-
an Khan, hefur verið dæmdur í árs
fangelsi fyrir veiðiþjófnað og gert
að greiða 70.000 króna sekt.
Kahn var ákærður fyrir að veiða
fágæta antílópu innan eyðimerkur-
friðlands árið 1998, en skepnan er
talin heilög af frumbyggjum. Khan
er sagður hafa ekið inn á friðland-
ið í tökuhléi kvikmyndar sem hann
var að leika í, og hafist handa við að
skjóta antílópurnar.
Framleiðendur kvikmyndanna
sem hann leikur í eru ákaflega ugg-
andi yfir árinu sem Khan mun dúsa
í steininum - smk
Bollívúdd á Indlandi:
Stjarna reynist
veiðiþjófur
ÚTSKRIFT Palestínskur öryggisvörður gefur
skipanir á útskriftarathöfn í Rafah, suður
af Gazasvæðinu á sunnudag. Í baksýn sést
mynd af Yasser Arafat. FRÉTTABLAÐIÐ/AP