Fréttablaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 14
20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Ég er þessa dagana að semja tónlist og spila
á tónleikum. Við vorum með tónleika úti í Sal
um daginn, ég, Magnús Eiríksson og Manna-
korn sem tókust alveg frábærlega,“ segir Pálmi
Gunnarsson tónlistarmaður þegar Fréttablaðið
ónáðaði hann í gær. Hann segir að mikið standi
til því tónleikarnir voru teknir upp og því diskur
í farvatninu. Hann veit ekki hvenær það verður
en næst á dagskrá hjá honum er að fara í
tónleikaferð út á land. En það er ekki allt. „Það
stendur líka til hjá okkur að taka upp plötu með
nýju efni á þessu ári. Það er alveg hrikalega
gaman. Við þögðum nú í tíu ár samfleytt en gáfum svo út disk fyrir tveim-
ur árum. Það er ekki annað hægt því það er svo skemmtilegt að spila
með góðu fólki.“ Af hverju komuð þið aftur saman á þessum tíma?“ spyr
blaðamaður. „Menn á þessum stað í lífinu eru ekki bundnir af tímanum.“
Pálma Gunnarssyni er fleira til lista lagt en að semja og flytja frábæra
tónlit. Frá unga aldri hefur hann notið þess umfram flest annað að veiða
á stöng. Þeir sem hafa séð Pálma á árbakka vita að þar fer fullnuma
flugukastari sem ber mikla virðingu fyrir náttúrunni og
þeim sem í henni búa. Skiptir þar engu hvort í hlut á stórt
eða smátt, því lónbúanum sem hann leggur mikið á sig
til að krækja í, er jafnan sleppt aftur í hylinn og honum
þökkuð viðkynnin. „Að labba meðfram góðri á í góðum
félagsskap er klassi. Við ætlum að fara nokkrir félagar til
Grænlands. Það er alveg brjálæðislega gaman að koma
þangað. Það eru gríðarlega margar ár þarna og reyndar
vötn líka með sterkum bleikjustofnum. Bleikjan þar er
miklu stærri en hérna heima og langt yfir því sem við
getum látið okkur dreyma um. Þetta eru að mestu óveidd-
ir stofnar og þess vegna ná þeir 16 til 18 pundum. Ég hef
fengið stærsta 12 punda bleikju og hún var alveg ofboðslega öflug, mikið
öflugri en lax af sömu stærð. Svo er ég kannski á leiðinni til Kanada þar
sem þær verða stærstar. Metbleikjan sem hefur komið þar er 32 pund. Ég
á mynd af henni og hún er svakaleg, nýgengin.“
Blaðamaður kveður Pálma með myndina af bleikjunni ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum. En Pálmi? Kannski er hann farinn til að hnýta flugu eða
semja lag um lónbúann sem bíður hans.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? PÁLMI GUNNARSSON TÓNLISTARMAÐUR
Þögðum í tíu ár samfleytt
Í SÓL OG SUMARYL Íbúar og ferðamenn á Hawai þurfa ekki að klæðast úlpum og húfum
eins og Íslendingar þessa dagana enda blíðviðri hið mesta þar um slóðir.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Einmitt
„Það er alveg ljóst að þeir
sem eru óákveðnir munu
skipta sköpum þegar kemur
að kosningum. Ég er viss
um að öflugt innra starf
í flokknum mun skipta
sköpum.“
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
FRJÁLSLYNDA FLOKKNUM UM
SLAKA ÚTKOMU Í SKOÐANAKÖNN-
UN FRÉTTABLAÐSINS.
Akkúrat
„Framsóknarflokkurinn
hefur aldrei mælst neitt
sérstaklega vel í könnun-
um en í kosningum kemur
hann vel út, vegna þess að
fólk treystir okkur til góðra
verka.“
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
FRAMSÓKNARFLOKNUM UM
SLAKA ÚTKOMU Í SKOÐANAKÖNN-
UN FRÉTTABLAÐSINS.
Framkvæmdir við nýja brugg-
verksmiðju á Árskógssandi í
Eyjafirði hefjast á næstu dögum. Í
verskmiðjunni verður bruggaður
bjór að evrópskri fyrirmynd og er
stefnt á að hann komi í hillur vín-
búða fyrir næstu verslunarmanna-
helgi. Kostnaðaráætlun hljóðar
upp á um 60 milljónir króna en
verksmiðjan mun skapa fimm ný
störf í byggðarlaginu.
Hjónin Agnes Sigurðardótt-
ir og Ólafur Þröstur Ólafsson á
Árskógssandi standa fyrir fram-
kvæmdunum og stefna þau á 200
þúsund lítra ársframleiðslu innan
tveggja ára. „Við vonumst til að
byrjað verði að grafa fyrir 300
fermetra verksmiðjuhúsi í næstu
viku.
Búnaður hefur verið pantaður
frá Tékklandi og fer hann í skip
19. maí en sjálf framleiðslan hefst
í júní,“ segir Agnes.
Búið er að ráða tékkneskan
bruggmeistara en ekki er komið
nafn á ölið. „Við óskum eftir
góðum hugmyndum og sá sem
kemur með gott nafn verður
leystur út með góðum skammti af
eyfirsku eðalöli,“ segir Agnes.
- kk
Eyfirskt öl eins og evrópskt
BJÓRFRAMLEIÐANDINN
Á ÁRSKÓGSSANDI Agnes
hefur rekið matvöru-
verslunina á Sandinum
undanfarin 15 ár með
manni sínum Ólafi Þresti.
Þau hyggjast nú breyta
versluninni og reka í
henni líka litla sveitakrá
árið um kring.