Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2006, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 20.02.2006, Qupperneq 18
 20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is Þeir sem ráða í Bandaríkjunum standa fyrir illa undirbúnum inn- rásum í önnur lönd og handahófs- kenndum pyntingum á mönnum sem þeir telja nóg að saka um herfilegar fyrirætlanir. Nú vitum við hvað þessir ráðamenn gera sér til skemmtunar þegar þeir eiga frí. Þeir fara í byssó. Erfitt er að ímynda sér átakanlegri útmálun á stefnu og framferði Bandaríkja- stjórnar en skothríð varaforseta Bandaríkjanna á vin sinn sem hann mun hafa ruglast á og akur- hænu í rökkrinu. Sú stefna ein- kennist öll af voðaskotum í myrkri – nema þar eru á ferðinni viljandi voðaskot. Það er sama hvar borið er niður í stefnumörkun þessarar ríkisstjórnar: það er bara skot- ið eitthvað út í lofti í fullkomnu trausti þess að geta ekki brugðist bogalistin, enda hafa þessir menn aldrei farið dult með að þeir telja sig starfa í sértöku umboði Drott- ins á jörðinni. Skothríð Dicks Cheney lýsir sem sé vissu hugar- fari sem gegnsýrir þessa ríkis- stjórn – fullkomnu sjálfstrausti hins fullkomlega vanhæfa manns sem hlustar ekki á neinn, horfir ekki í kringum sig, dregur engar ályktanir, en anar út í ófærurnar í blindri trú á mátt sinn og megin. Og vinirnir súpa seyðið: eða halda menn að Danir hefðu gengið í gegnum þær hremmingar sem hin frámunalegu mótmæli gegn skrípamyndum af Múhameð hafa framkallað ef þeir hefðu ekki bundið trúss sitt við Bandaríkja- menn í feigðarflani þeirra í Mið- Austurlöndum? Farið með þeim í byssó. Þessum byssudólgum vill ríkis- stjórn Íslands treysta fyrir vörn- um og öryggi landsins; þeim vill ríkisstjórn Íslands tengja ímynd Íslands í heiminum. Gengur meira að segja með grasið í skónum á eftir þeim til að fá þá nauðuga til starfrækja áfram herstöð hér, sem þó mun víst eingöngu þjóna táknrænum tilgangi en ver engan fyrir neinum, enda vandfund- ið fólk sem vill ráðast á Ísland, nema ef væru menn í byssó við Bandaríkjamenn. Svo langt hefur ríkisstjórn Íslands meira að segja gengið í skýlausum hollustueiðum sínum við Bandaríkjastjórn að forsætisráðherra landsins – sem samkvæmt nýjustu könnunum nýtur fylgis 7% landsmanna – dró íslensku þjóðina inn í ófrið Banda- ríkjamanna í Írak, án þess að það kæmi til kasta alþingis eða væri svo mikið sem rætt í þingflokki ráðherrans – og hvað þá að þjóðin væri spurð – og var þó um að ræða gjörtækustu grundvallarbreyt- ingu á íslenskri utanríkisstefnu frá því að Íslendingar fengu þau mál í sínar hendur. Uppáskrift Íslendinga í þessum hernaði var eins og við munum ýmist kennd við „staðfestu“ eða „viljugheit“ en alla tíð hefur verið óljóst hvað í þessu felst nákvæmlega og þess jafnan gætt að hylja aðild Íslands að hernaðinum í myrkum orða- vaðli, en þegar Geir Haarde tók við sem utanríkisráðherra virðist hann þó hafa haft vit á að uppræta þann vísi að íslenskum her sem Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson höfðu reynt að koma á fót og hafði að því er manni skild- ist það verkefni með höndum að koma á friði í Afganistan þar sem ófriður hefur ríkt frá því að Alex- ander mikli reyndi að brjóta undir sig landið um 329 fyrir Krist en varð frá að hverfa um síðir; eins og Halldór Ásgrímsson með sinn her. Nú hafa meira að segja bresk yfirvöld játað að fangaflutninga- vélar CIA hafi fengið að milli- lenda á enskum flugvöllum, en þegar málið kom til umræðu á alþingi í kjölfar sterkra vísbend- inga um að slíkar vélar hefðu notið fyrirgreiðslu íslenskra flugmála- yfirvalda svaraði Geir Haarde því einungis með vífilengjum og útúrsnúningi, taldi enga þörf á að kanna málið því engar „sannanir“ lægju fyrir – sem er ámóta gáfu- legt og að segja að maður ætli ekki að komast að einhverju því maður hafi ekki þegar komist að því. Fangaflug Bandaríkjamanna snýst annars vegar um pyntingar í hálfloftunum og hins vegar um að flytja menn til Guantanamo í fangabúðir sem sérstök rannsókn- arnefnd á vegum Sameinuðu þjóð- anna hefur hvatt Bandaríkjamenn til að loka. Þeir menn sem sloppið hafa úr þessu víti segja hroða- legar sögur af vistinni þar, og upplýst hefur verið að menn hafa lent í þessum fangabúðum fyrir þær sakir meðal annars að rugl- ast hefur verið á nöfnum þeirra og nöfnum terrorista. Með þessu framferði er Bandaríkjastjórn ekki bara að rústa líf einstaklinga sem enginn veit nákvæmlega um hvað eru sekir – en Bush segir vera „vonda menn“ – heldur er hún að kalla reiði og ógn yfir þjóð sína.– Og vini sína. Sérstaklega þá vini sem hún heldur að séu hænsni. ■ Vopnaburður varaforsetans Í DAG Í BYSSÓ GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Erfitt er að ímynda sér átak- anlegri útmálun á stefnu og framferði Bandaríkjastjórnar en skothríð varaforseta Banda- ríkjanna á vin sinn sem hann mun hafa ruglast á og akur- hænu í rökkrinu. Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Allir segja satt Fyrir helgi fengu allir fjölmiðlarnir í hendur sömu talnagögnin frá Gallup um lestur dagblaða dagana 20. til 26 janúar síðasltiðinn. Með áherslu á „sömu talnagögnin“ er áhugavert ef ekki beinlínis skemmtilegt að skoða hvernig dagblöðin matreiða upplýsingarnar á mismunandi hátt. Lítum aðeins á Morgunblaðið og Fréttablaðið. Frétt Morgunblaðsins á blaðsíðu fjögur á laugardaginn var hefst svona: „Meðallestur Morgunblaðsins jókst um rúm fjögur prósentustig í janúar frá því sem var í október síðastliðnum og mældist 50,2 prósent...“ Á blaðsíðu átta í Frétta- blaðinu sama dag er frétt sem byrjar svona: „Ekki hefur mikið breyting orðið á lestri dagblaðanna hér á landi frá því fjölmiðlakönnun var gerð í október.“ Fréttablaðið birtir súlurit og ber saman lestur dagblaðanna fjögurra í janúar og sem áður er súla Fréttablaðsins hæst. Morgunblaðið birtir línurit yfir lestur blaðanna allar götur frá ársbyrjun 2003 sem sýnir að lestur Morgunblaðsins og Blaðsins eru á uppleið í nýjustu könnuninni en lestur Fréttablaðsins og DV á niðurleið. 70 prósent er fínt Þarna er eðli sannleikans ef til vill rétt lýst. Allir leggja sömu gögn til grundvallar en draga upp mismunandi sjónarhorn. Allir hafa rétt fyrir sér með einhverjum hætti en geta aldrei fært fram eina rétta sjónarhornið. En lestur Blaðsins og Morgunblaðsins er sem sagt á uppleið en lestur Frétta- blaðsins og DV á niðurleið. Einnig er rétt að Fréttablaðið er enn sem fyrr mest lesna blað landsins og breytingarnar ekkert ýkja miklar. Meira að segja hefði mátt búast við meira hruni í lestri DV en raunin er eftir reiðiofsann sem greip um sig vegna forsíðufréttar blaðsins af manni sem síðar stytti sér aldur. Verðugt er að hafa í huga gamalt máltæki Gyðinga sem pólska nóbel- skáldið Czeslaw Milosz setti í inngang bókar sinnar um Fjötra hugans: Það er ljómandi gott ef einhver kveðst hafa 70 prósent rétt fyrir sér. Enn betra er ef einhver góður maður kveðst hafa 90 prósent rétt fyrir sér og ber að fagna því ákaft. En sá sem segist hafa 100 prósent rétt fyrir sér er þorpari og illmenni og engin ástæða til að taka mark á slíkum fanti. Talsverður urgur er meðal margra þeirra sem sóttu um ein-býlishúsalóðir við Úlfarsfell. Hugmyndin með útboðinu var að gefa annars vegar byggingafyrirtækjum og hins vegar einstaklingum tækifæri til að bjóða í lóðir í útboðinu. Niðurstaðan er hins vegar sú að einn aðili er með hæsta boð í nánast allar lóðir í nýju hverfi. Niðurstað- an er klaufaleg í ljósi þeirra markmiða sem menn settu sér og ekki skrýtið þótt kurr sé í þeim sem ekki fengu. Gagnrýnin á að því leyti rétt á sér að úr því að markmiðið var að einstaklingar fengju tækifæri til að byggja einbýlishús, þá hefði með skýrum hætti þurft að tryggja að sami einstaklingur gæti ekki keypt nema eina lóð. Vandinn er að allar tilraunir til þess að takmarka aðgang í slík- um útboðum bjóða heim hættu á að menn finni leiðir í kringum reglurnar. Minnihluti sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur gagn- rýnt þessa úthlutun, en gagnrýnin er einkum á tveimur forsend- um. Annars vegar að Reykjavík hafi ekki staðið sig í stykkinu með að tryggja nægt framboð lóða. Hin virðist af þeirri rót að uppboðin séu á einhvern hátt óeðlileg. Sú gagnrýni er illskiljanleg, sérstak- lega úr þeim flokki sem lengst hefur gengið í markaðshyggju. Uppboð á takmörkuðum gæðum eru sanngjarnasta leið sem hægt er að fara. Með þeirri aðferð eru lóðir seldar á því verði sem kaupendur eru tilbúnir til að borga. Ein röksemd sem hefur heyrst í því sambandi er að uppboð á lóðum valdi hærra fasteigna- verði. Þetta er rangt. Hátt lóðaverð endurspeglar fyrst og fremst væntingar kaupandans um fasteignaverð, þegar búið er að byggja. Þannig reiknar sá sem kaupir með því að hann fái inn bæði fyrir lóðaverði og byggingakostnaði, auk framlegðar af starfseminni þegar upp er staðið. Það hversu hátt verð menn eru til í að borga fyrir lóðir sýnir fyrst og fremst að þeir hafa trú á að fasteigna- verðið muni haldast hátt. Helstu áhrifaþættir í fasteignaverði eru fjármagnskostnaður og kaupmáttur. Lægri vextir og aukinn kaupmáttur hafa verið drifkraftar hækkunar íbúðarhúsnæðis síðustu misserin. Uppboð á lóðum hefur lítið með það að gera. Þeir sem gagnrýna harðast þetta kerfi verða að koma með lausn- ir sem eru sanngjarnari en að selja hæstbjóðanda lóðir. Úthlutun þar sem menn eru dregnir út er ekkert annað en happdrætti á vegum hins opinbera. Þannig fá þeir sem eru heppnir afhent verð- mæti sem þeir græða á, þegar við afhendingu. Íslendingar voru lengi heimsmeistarar í að gera allt sjálfir. Venjulegt fólk byggði húsin sín sjálft að mestu leyti og heilu fjöl- skyldurnar eyddu megninu af frítíma sínum í að skafa timbur og binda járn. Sumum kann að finnast eftirsjá að þessu, en þeim fer sennilega fækkandi. Sérhæfing samfélagsins fer vaxandi og fag- menn og sérhæfð fyrirtæki byggja nú heilu hverfin og sjá um þau allt frá hönnun til afhendingar. Nágrannaþjóðir okkar hafa haft þennan hátt á um áratuga skeið. Auðvitað á ekki að útiloka fólk frá því að standa sjálft í bygg- ingu húsa sinna. Það er hins vegar vafamál hvort eigi að sérgreina einstaklinga og fyrirtæki þegar lóðir eru boðnar upp. Sennilega er best að láta verðið eitt ráða. Taki menn hins vegar þá afstöðu að hafa slíkan aðskilnað, þá verða menn að standa betur að málum, en gert var við Úlfarsfell. SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Lóðaúthlutun við Úlfarsfell tókst ekki sem skyldi. Uppboð eru sanngjörn leið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.