Fréttablaðið - 20.02.2006, Page 43
MÁNUDAGUR 20. febrúar 2006 25
HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA?
Austurhlið hússins.
Suðurhlið hússins.
Eftir tæpt ár verður nýbygg-
ing við Menntaskólann við
Hamrahlíð tekin í gagnið. Þar
verða íþróttasalir, raungreina-
stofur og fleira til húsa.
Nýbygging mun rísa við Mennta-
skólann við Hamrahlíð í desem-
ber næstkomandi. Eykt ehf. sér
um verkið en arkitektastofan
Hornsteinar teiknaði bygginguna.
Framkvæmdir hófust í september
á síðasta ári og er verkið á áætl-
un.
Húsið verður um 3.300 fer-
metrar að stærð og skiptist í meg-
indráttum í íþróttahús og kennslu-
stofur. Í Íþróttahúsinu verða
fjórir salir. Enn fremur verða tólf
kennslustofur, þar af átta raun-
greinastofur. Í nýbyggingunni
verður einnig bókasafn skólans og
vinnuaðstaða.
Lengi hefur verið beðið eftir
íþróttahúsi við Menntaskólann við
Hamrahlíð, allt frá því að skólinn
var byggður fyrir tæpum fjörtíu
árum.
Það verður því bæði starfs-
mönnum og nemendum skólans til
ánægju þegar byggingin kemst í
gagnið eftir tæpt ár.
Stækkun Menntaskólans við Hamrahlíð
Nýbyggingin verður austan við gömlu byggingu Menntaskólans við Hamrahlíð. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR
Nýja byggingin verður um 3.300 fermetra stór. Hér sést norðurhlið hússins.
neteign.is • Björn Daníelsson, héraðsdómslögmaður og löggiltur fasteignasali • Sími: 595 9090 • Holtasmára 1 • 201 Kópavogi
Ath. fjöldi eigna á söluskrá!
Raðpar - Hólmatún á Álftanesi
Fallegt 5 herbergja alls 196 fm parhús, ásamt 26 fm bílskúr á góðum stað á Álftanesi. Fallegur byggingarstíll
er á húsinu. Mikil lofthæð. Fallegar innréttingar, baðherbergi í flísalagt í hólf og gólf. Sturta og nuddbaðkar
eru á baði. Nýlega lagt parket. Rúmgóð svefnherbergi. Húsið er nýlega málað. Afhendist fljótlega. Verð 39,9
millj.
Hæð - Heiðarhjalli í Kópavogi
Glæsilega vel hönnuð 4 herbergja efri hæð í raðparhúsi á eftirsóttum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Eignin er
alls 137 fm. Íbúð er alls 110 fm og bílskúr er 27 fm. Þetta er útsýnisíbúð. Fínar innréttingar eru í húsinu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Herbergi eru rúmgóð. Afhendist mögulega strax.
Verð 34,5 millj.
NÝTT