Fréttablaðið - 20.02.2006, Page 71
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikkonan Sophia Bush neitar sögusögnum um að
hún og Jake Gyllenhaal séu
par og einnig neitar hún
sögusögnum um sig og
Austin Nichols. Bush
segist vera upp með
sér að vera orðuð við
þessa tvo. „Ef ég á að
vera í sambandi með
einhverjum þá er ég
alveg sátt við þessa
tvo.“
Breski leikarinn Colin Firth ætlar sér ekki að leika í
fleirum Bridget Jones
myndum. „Ég sé ekki
neitt sem mælir gegn
því að önnur Bridget
Jones mynd verði gerð,
eða þrettán ef svo ber
undir. En ég held
að það sé kominn
tími á nýjan Darcy.
Ég er orðinn þreytt-
ur á honum,“ sagði
Firth.
Leikkonan Keira Knightley hefur neit-að orðrómi um að hún hyggist flytja
til Los Angeles og segir sér
líða of vel í London. „Ég
ætla mér ekki að flytja til
Ameríku, ég er Lundúna-
stelpa. Ég myndi aldrei
fara. Ég er tuttugu ára
og fjölskylda mín og
vinir eru hérna. Auk
þess fæ ég mikla
vinnu hér,“ sagði
hún.
Leikarinn George Clooney vill ekki að hótel og spilavítið sem hann keypti
nýlega verði eingöngu
peningamaskína
og hyggst því gefa
hluta af gróðanum til
fátækra í Afríku.
„Ég ætla að taka
25 prósent frá og
gefa til Afríku,“
segir Clooney en
spilavítið verður
klassastaður þar
sem enginn kemst
inn nema spariklædd-
ur.
Leikarinn Daniel Craig varð fyrir því óhappi að brjóta tvær framtennur
í fyrstu bardagasenunni í næstu Bond
mynd og þykir það alls ekki nógu hörku-
tólslegt af sér. Craig var staddur við
tökur á senunni í Prag þegar áhættuat-
riðið fór úrskeiðis. Leikarinn hrökklaðist
aftur á bak í atriðinu og hélt höndinni
fyrir blóðugum munninum og
kvikmyndatökumennirnir
áttuðu sig fljótlega á
því að Craig var ekki
að leika. Hann var svo
illa meiddur að það
þurfti að senda
eftir hans eigin
tannlækni til að
bjarga málun-
um.