Fréttablaðið - 20.02.2006, Síða 72
28 20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Framherjinn Arnar
Gunnlaugsson fór á kostum í
tveimur leikjum ÍA á Akureyri
um helgina en þá mætti liðið KA
og Þór í deildarbikarnum. Arnar
skoraði þrennu í fyrri hálfleik
gegn KA á föstudag þegar ÍA
sigraði 4-0 og eitt mark í 3-3 jafn-
tefli gegn Þór á laugardaginn og
er augljóslega að ná vel saman við
Þórð í fremstu víglínu Skagaliðs-
ins.
„Það er æðislegt að hafa leik-
mann eins og Þórð fyrir aftan sig.
Hann er ennþá toppleikmaður,“
sagði Arnar við Fréttablaðið í gær
og gerði lítið úr eigin frammi-
stöðu. „Ég finn mig ágætlega en
enn er bara febrúar og það má
ekki tapa sér.“
Arnar og Þórður léku síðast
saman með félagsliði á Íslandi
árið 1992 þegar Skagaliðið varð
Íslandsmeistari. Þá voru þeir
einnig samherjar í einhverjum
sterkasta yngri flokki sem um
getur á Íslandi og skoruðu þeir
ófá mörkin. En eftir að hafa farið
ungir í atvinnumennskuna eru
þeir báðir komnir á heimaslóðir
á ný og virðist samvinna þeirra í
framlínunni ekki hafa beðið neinn
hnekki þótt langt sé um liðið.
„Þetta er á byrjendastigi hjá
okkur en ég er bjartsýnn á fram-
haldið,“ segir Þórður, sem hefur
spilað rétt aftan við Arnar í
fremstu víglínu. „Það er frábært
að spila með honum og ég held að
hann eigi eftir að njóta sín vel hjá
okkur. Honum líður vel og þegar
svo er skorar hann alltaf mörk.
Hann er í hörkuformi og ef fram
heldur sem horfir á hann eftir að
skora mörg mörk í sumar,“ segir
Þórður.
Arnar sneri aftur til ÍA í haust
eftir að hafa spilað með KR und-
anfarin ár og viðurkennir að gula
treyjan muni ávallt skipa sérstak-
an sess hjá sér. „Ég ber auðvitað
miklar taugar til Skagans en ég
held að það muni mestu um að
einbeitingin er meiri en áður og
skrokkurinn er í fínu standi,“
segir Arnar, sem spilað hefur
fjóra leiki með ÍA á undirbúnings-
tímabilinu og var leikurinn gegn
Þór sá fyrsti sem hann tekur þátt
í fram yfir fyrri hálfleik. „Ég spil-
aði í 65 mínútur gegn Þór svo að
þetta er allt í áttina,“ segir Arnar
sem er að sjálfsögðu ánægður
með að hafa Þórð til að mata sig á
góðum sendingum.
„Hann á eftir að setja sitt mark
á sumarið. Það er áberandi hversu
mikið hungur er í honum eftir
að hafa verið úti í kuldanum hjá
sínum liðum síðustu ár og ég hef
mikla trú á honum. Hann á ekki
eftir að bregðast neinum. Annars
er ég er orðinn rosalega spennt-
ur fyrir sumrinu. Þetta er mjög
skemmtilegur hópur, góð blanda
yngri og eldri og ég hef góða til-
finningu fyrir framhaldinu. Ég
viðurkenni það alveg. vig
Gömlu félagarnir ná vel
saman í fremstu víglínu
Fyrir um 15 árum mynduðu Arnar Gunnlaugsson og Þórður Guðjónsson eitt
hættulegasta framherjarpar sem sést hefur í yngri flokkunum á Íslandi. Fljót-
lega skildu leiðir en nú eru þeir sameinaðir á ný og hafa engu gleymt.
Í GÓÐU FORMI Mark Arnars gegn Þór á laugardaginn var einkar glæsilegt. Þá barst boltinn til hans fyrir utan teig og hann hamraði boltan-
um í markvinkilinn. Hér sést Arnar vera við það að skora markið og Þórður er ekki langt undan. FRÉTTABLAÐIÐ/PETROMYNDIR
Dagur Sigurðsson, spilandi þjálfari
hjá Bregenz í Austurríki, varð í gær
bikarmeistari með liði sínu. Bregenz
sigraði AON Fivers í úrslitaleiknum í
gær, 33-27, eftir mikla törn um helgina
en bikarfyrirkomulagið í Austurríki er
á þann veg að 8-liða úrslit eru spiluð
á föstudegi, undanúrslit á laugardegi
og úrslit á sunnudegi. „Þetta var mjög
sætt,“ sagði Dagur skömmu eftir leik, í
skýjunum með að hafa unnið sinn fyrsta
bikarmeistaratitil í Austurríki.
Röddin í Degi var ekki með besta
móti þegar Fréttablaðið ræddi við Dag í
gær og sagði hann aðspurður að fagn-
aðarlætin ættu þar vissulega einhvern
hlut að máli. „En svo er ég líka búinn að
vera veikur í næstum tvær vikur og er
ekki enn búinn að jafna mig fullkomn-
lega eftir það. Ég virðist hafa fengið
þessa heiftarlegu flensu en það var gott
að vera búinn að ná sér fyrir helgina og
eiga möguleika á að taka þátt í þessum
leikjum um helgina,“ sagði Dagur, sem
skoraði fimm mörk í leiknum. „Mér gekk
mjög vel í leiknum,“ sagði hann.
Dagur hefur orðið austur-
ískur meistari með Bregenz
síðustu tvö ár en aldrei
unnið bikarkeppnina
eins og áður segir.
„Við vorum mjög
óheppnir með drátt
í þessari keppni í
fyrra, fengum erfiða
leiki alla dagana og
svo fór að leikmenn
voru of þreyttir í úrslit-
unum. Nú fengum við auðveldan
leik á föstudaginn og laug-
ardag og gátum fyrir vikið
leyft liðinu að rúlla nokkuð
jafnt. Annars er þetta svona
í það mesta - að spila þrjá
leiki á þremur dögum,“ sagði
Dagur.
Úrslitakeppnin er við það
að hefast í Austurríki og
segur Dagur að stefnan
sé að sjálfsögðu sett
á titilinn. „Við erum
meistarar og nú orðnir
bikarmeistarar svo að
við getum ekkert falið
okkur á bakvið einhverjar
afsakanir. Við ætlum okkur
að vinna deildina líka.“
DAGUR SIGURÐSSON HJÁ BREGENZ: VARÐ BIKARMEISTARI MEÐ LIÐI SÍNU Í GÆR
Hristi af sér flensuna og vann bikarinn
Kolbeinn til HK
Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson, einn
allra efnilegasti knattspyrnumaður
landsins, hefur ákveðið að söðla um og
ganga í raðir HK í Kópavogi. Kolbeinn
hefur leikið með Víkingi alla sína tíð en
mun nú njóta handleiðslu hins færa
yngri flokka þjálfara Zeljko Sankovic.
> Bradford mætti á klakann
Margir körfuboltaáhugamenn ráku upp
stór augu á laugardaginn þegar þeir sáu
bandaríska leikmanninn Nick Bradford
á áhorfendapöllunum í bikarúrslitaleik
Grindavíkur og Keflavíkur á laugardag-
inn. Bradford mætti til landsins gagngert
til að styðja við bakið á sínum gömlu
félögum en hann lék með Keflavík
síðustu tvö ár áður en hann gekk til liðs
við lið Reims í frönsku úrvalsdeildinni
yfir núverandi tímabil. Bradford fer af
landi brott í dag en
að sögn kunnugra
skemmti hann
sér konunglega
í Bítlabænum
yfir helgina,
þrátt
fyrir tap
Keflavíkur í
úrslitaleikn-
um.
FRJÁLSAR Engin íslandsmet féllu
á Meistaramóti Íslands í frjáls-
um íþróttum sem fram fór í nýju
frjálsíþróttahöllinni í Laugardal
um helgina en þó náðist ágætis
árangur í mörgum greinum og
fjölmörg aldursflokkamet voru
slegin. Maður mótsins að öðrum
ólöstuðum var hinn 16 ára gamli
spretthlaupari Sveinn Elías Hall-
dórsson, sem bætti drengjametið
í 400 metra hlaupi og setti einnig
met í 60 metra hlaupi í flokki 16-17
ára og 18-19 ára þegar hann hljóp á
6,97 sekúndum.
Ásdís Hjálmsdóttir setti met í
flokki 21-22 ára þegar hún kastaði
kúlu 13,70 metra og þá bætti Þor-
steinn Ingvarsson met í þremur
aldursflokkum en hann stök 14,66
metra í þrístökki.
Silja Úlfarsdóttir var sigursæl
á mótinu en hún kom gagngert
til landsins frá Bandaríkjunum
til að taka þátt í meistaramótinu.
Silja tók þátt í 60 metra hlaupi, 60
metra grindahlaupi og 400 metra
hlaupi og sigraði nokkuð örugg-
lega í öllum greinum þrátt fyrir að
hafa verið eðlilega nokkuð frá sínu
besta vegna veikinda. „Ég er ekki
búin að halda neinum mat niðri
síðan á föstudag og síðan vaknaði
ég fárveik í morgun [í gær]. Ég var
nálægt því að hætta keppni en mig
langaði bara svo mikið að vinna
þessi hlaup í nýju höllinni að ég lét
mig hafa það,“ sagði Silja.
Meistaramót Íslands í frjálsum fór fram í Laugardal um helgina:
Silja sigraði í þremur greinum fárveik
SILJA ÚLFARSDÓTTIR Hljóp fárveik í tveimur
keppnisgreinum í gær en sigraði þrátt fyrir
það nokkuð örugglega. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DHL-deild kvenna:
HAUKAR-FRAM 31-30
STAÐA EFSTU LIÐA
VALUR 13 11 0 2 358-298 22
HAUKAR 13 11 0 2 405-343 22
ÍBV 13 10 1 2 343-290 21
STJARNAN 13 9 1 3 342-293 19
Enska bikarkeppnin:
PRESTON-MIDDLESBROUGH 0-2
0-1 Yakubu Aiyegbeni (52.), 0-2 Yakubu Aiyegbeni (77.)
STOKE-BRIMINGHAM 0-1
0-1 Mikael Forsell (47.).
CHELSEA-COLCHESTER 3-1
0-1 Richardo Carvalho, sjálfsm. (28.), 1-1 Paulo Fer-
reira (37.), 2-1 Joe Cole (79.), 3-1 Joe Cole (91.).
ASTON VILLA-MAN. CITY 1-1
1-0 Milan Baros (72.), 1-1 Michael Richards (94.).
Enska úrvalsdeildin:
TOTTENHAM-WIGAN 2-2
0-1 Andreas Johansson (10.), 1-1 Hossam Mido
(23.), 1-2 Andreas Johansson (67.), 2-2 Jermain
Defoe (68.)
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Meistaralið Chelsea
slapp með skrekkinn gegn 2.
deildar-liði Colchester í 16-liða
úrslitum ensku bikarkeppninar í
gær. Chelsea sigraði 3-1 eftir að
hafa lent undir í upphafi leiks og
átt á brattann að sækja framan
af.
Í síðari hálfleik tóku meist-
ararnir hins vegar öll völd og
skoraði Joe Cole tvö góð mörk.
„Við vorum í draumaheimi þegar
við komumst yfir en þeir voru
aðeins of góðir í síðari hálfleik,“
sagði Wayne Brown, varnarmað-
ur Colchester og brosti í leikslok
en leikmenn Colchester uppskáru
dynjandi lófaklapp frá stuðnings-
mönnum Chelsea í leikslok fyrir
hetjulega frammistöðu. Eiður
Smári Guðjohnsen var ekki í
hópnum hjá Chelsea.
Íslendingaliðið Stoke féll úr
leik með 1-0 tapi á heimavelli gegn
Birmingham og þá vann Middles-
brough öruggan sigur á Preston,
2-0, þar sem Yakubu Aiyegbeni
skoraði bæði mörkin. Þá skildu
Aston Villa og Man. City jöfn 1-1
í leik þar sem Michael Richards
skoraði fyrir Man. City á 94. mín-
útu og tryggði liðinu annan leik.
Í ensku úrvalsdeildinni fór
fram einn leikur í gær þar sem
Tottenham og Wigan skildu jöfn,
2-2, í fjörugum leik. - vig
16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í gær:
Chelsea marði Colchester
Sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad hefur keypt Magnus Arvidsson,
sænskan framherja sem leikið hefur
með Hansa Rostock undanfarin ár.
Arvidsson þessi er mikill markaskorari
og hafa sænskir fjölmiðlar verið að
gera sér mat úr því að með kaupunum
séu forráðamenn Halmstad að tryggja
sér verðugan arftaka Gunnar Heiðars
Þorvaldssonar, sem verður að öllum
líkindum seldur frá félaginu í sumar.
Í talska lögreglan ruddist inn á híbýli austurrískra skíðagöngumanna á laug-
ardag og gerði leit að ólöglegum lyfjum.
Það var alþjóðlega ólympíunefndin
sem stóð fyrir húsleitinni vegna gruns
um að Walter Mayer, sem úrskurðaður
var í ævilangt bann vegna lyfjaskandals
á síðustu vetrarólympíuleikum, hefði
aðstoðað austuríska liðið fyrir ÓL í Tór-
ínó. Engin lyf eru talin hafa fundist og
eru forsvarsmenn austuríska liðsins æfir
vegna uppákomunnar.
Argentínska knattspyrnugoðið Diege Maradona skoraði tvö mörk fyrir
Argentínu í sýningar- og góðgerðarleik
gegn Brasilíu á
laugardag. Leik-
urinn var á milli
gamalla landsliðs-
manna þjóðanna
og í leiknum mátti
sjá leikmenn eins
og Dunga, Bebeto,
Careca og Aldair
hjá Brasilíu og Jose Basualdo, Sergio
Goycochea og Jorge Burruchaga hjá
Argentínu.Leikurinn endaði 8-4 fyrir Arg-
entínu en um tíu þúsund manns mættu
á völlinn til að berja gömlu hetjurnar
augum.
Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk og Vilhjálmur Halldórsson eitt
þegar lið þeirra Skjern sigraði Ringsted
í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta
í gær. Daníel Ragnarsson skoraði tvö
mörk fyrir Helsinge sem tapaði fyrir
Álaborg, Sturla Ásgeirsson skoraði tvö
mörk fyrir Árósa í jafntefli gegn Silkiborg
og það gerði Gísli Kristjánsson einnig í
tapleik Ajax gegn Viborg.
Guðmundur E. Stephensen hafði betur gegn bróður sínum, Matthíasi
Stephensen, í úrslitum Grand-Prix móts
Rafkaups sem fram fór um helgina.
Guðmundur sigraði örugglega, 4-0.
Guðrún Björnsdóttir bar sigur úr býtum í
kvennaflokki.
ÚR SPORTINU
Tryggvi Guðmundsson skoraði þrennu og Sigurvin Ólafsson setti tvö þegar
FH burstaði Þrótt, 6-0, í deildabikarnum
í gærkvöldi.
Hvorki Logi Geirsson né Ásgeir Örn Hallgrímsson komust á blað
hjá Lemgo þegar liðið bar sigurorð af
Nordhorn í þýsku úrvalsdeildinni í gær.
Magdeburg burstaði Dusseldorf 36-20
þar sem Arnór Atlason skoraði eitt mark
en Sigfús Sigurðsson skoraði ekki fyrir
Magdeburg. Þá skoraði Snorri Steinn
Guðjónsson sex mörk fyrir Minden sem
náði óvænt jafntefli gegn Flensburg, 27-
27. Fjögur marka Snorra komu úr vítum.
Samuel Eto´o, sóknarmaður Bar-celona, segir ekkert hæft í þeim
orðrómi sem segir hann á leið til
Chelsea eftir leiktíðina fyrir fimm millj-
arða króna.
Alan Smith hjá Man. Utd hefur þakkað leikmönnum, sjúkraþjálfurum og
stuðningsmönnum Liverpool fyrir hlýleg
viðbrögð í kjölfar fótbrotsins sem hann
varð fyrir í leik liðanna á laugardag. Að
sögn umboðsmanns Smiths ber hann sig
nokkuð vel miðað við aðstæður en hann
fór í aðgerð í gær og er búist við því að
hann verði frá keppni í níu mánuði.
ÚR SPORTINU