Tíminn - 03.07.1977, Síða 23

Tíminn - 03.07.1977, Síða 23
Sunnudagur 3. júli 1977 23 Með kærri kveðju frá Matta Mattibróðir tilheyrir þeirri ein- stöku manngerö, sem getur breytt kyrkislöngu i elskulegasta gæludýr með þvi einu að brosa hinu ómótstæðilega brosi sinu. Jæja, þetta er fcannski svoíftíð ýkt, en þó ekki mjög langt frá sannleikanum. Þess vegna er ekki svo undar- legt þó honum hafi alltaf tdcizt að pranga öllu á mig, sem hann vildi ekki hafa lengur, allt frá leiðinda- kaninum niður I rottugrislinga Núna erum við bæði eldri og höf- um annan smekk, en samt eru hlutirnir svipaðir og áður. Ég þarf alltaf að hlau pa undir bagga. Annað hvort er um að ræða leiða vinkonu, sem þarf að hugga eða svangan vin, sem þarf að elda ofan i i hvelli. En ég mótmælti þó, þegar fariö var að tala um Lindsey Camp bell. Þaö var þegar ég ók Matta út á flugvöll. Hann er arki- tekt og var að fara til starfa i Þýzkalandi i eitt ár. — Ég mundi allt i einu eftir dálitlu, Linda, sagði hann, I sömu tóntegund og þegar hann talaði um klukkuna. En ég lét ekki gabba mig, þvi ég hafði tuttugu og þriggja ára reynslu i aö túlka tóntegundir hans. Eitthvaö bjó undir. — Þú mannst liklega eftir bandariska pennavininum min- um, Lindsay Campbell? — Nei, svaraði ég stuttlega. Ég mundi vel að hann hafði eignast pennavini um allan hnöttinn, þeg- ar hann fékk frimerkjabakt- eriuna, en sá áhugi lognaðist út af eins og s vo ótal m argt annað, sem hann hafði tekið sér fyrir hendur. Þess vegna kom mér á óvart, að heyra að hann skrifaðist ennþá á við einhvern. Enginn gæti haldið þvi fram að bréfaskriftir væru sterka hliðin á bróður minum. — Ég hélt að þú hefðir hætt við þá alla fyrir löngu, sagði ég. Hann hristi höfuöiö. — Við Lindsay höfum alltaf haldið sam- bandinu og ég gæti vel hugsað mér að skreppa einhvemtima til Bandarikjanna. Það er að minnska kosti ágætt að eiga vin þar. Lindsay hefur liklega hugsað svipað. Égfæ ekki mikinn tíma til að skrifa þegar ég er kominn til Þýzkalands, gætir þú ekki tekið við af mér? Það mætti ætla að ég hefði ekki mikið annað að gera en sitja og fitla við fingurna á mér. En það er langt í frá Ég vinn mjög at- hyglisvert og erfitt starf sem inn- kaupastjóri i tízkufatadeild stærsta vöruhúss bæjarins. I fritimanum er ég svo heilmikiö með Even nokkrum Gregersen. Þess vegna langaði mig ekki hið minnsta til að taka að mér ókunna bandariska stúlku vegna þess eins að Matti var orðinn leiö- ur á henni. Ég ætlaði einmitt aö fara að þverneita þvi, þegar Matti tók um axlir mér. *— Vertu nú svolitið almenni- leg, Linda min. Ykkur mun koma stórvel saman! Ég byrjaði að bráöna. Hann yröi burtu i heilt ár og á meðan átti ég að fá að hafa fallega, litla sportbilinn hans. Það var ákaf- lega fallegt af honum. — Jæjaþá, svaraði ég og brosti dauflega. — Láttu mig heyra hvers konar fyrirbæri þetta er. — Hvaö? — Lindsay Campbell auðvitað. — Ójá. Hávaxið, ljóshært og laglegt fyrirbæri. Ég á mynd ein- hvers staðar. Ef ég finn hana, skal ég senda þér hana. Þú færð skemmtileg bref, þvi get ég lofaö þér. Áhugamálin eru siglingar og beisbolti. — Beisbolti, sagði ég hissa. — Ég hef bara séð það einu sinni i sjónvarpinu. Ég helt aö það væri bara fyrir karlmenn. Matti hló Æ, þú veist hvernig þessir Bandarikjamenn eru. Allir með iþróttadellu. Þeir læra að synda, áður en þeir geta gengiö. — Um hvað á ég að skrifa? spuröi ég ráövillt. — Ég hef ekki nema tvisvar komið um borð i seglbát. — Hvað sem er, svaraði Matti kæruleysislega. — Skrifaðu bara það sem þér dettur i hug. Hann lét mig hafa heimilis- fangið hennar i Boston og sagði að hann hefði þegar skrifaö og sagt að ég tæki við, meðan hann væri I burtu . Greinilegri sönnun þess hvað honum finnst um mig, er varla finnanleg. Hann veit að hann getur snúið mér um litla fingurinn á sér. Hann beið þangað til farþega- röðin fór af stað að flugvélinni, *********** .. 11 ^ Matti bróðir minn taldi mig á að taka á móti bandarisku pennavin* konunni sinni, sem var að koma i heimsókn. Sjálfur var hann að fara burt í heilt ár. Þetta varð dálitið öðruvísi en ég hafði hugs- að mér....... — áður en hann lét sprengjuna falla. Ég hefði áttað vita það, svo lengi haföi ég þekkt hann. — Já, svo var það eitt enn, Linda —Lindsay kemur til Oslóar bráðlega. Ég gleymdi að segja þér það. Þú lifar að vera notaleg við hana ekki satt? Hann brosti, sendi mér fingur- koss og þaut af stað Ég er allt of vel upp alin. Hver sem er annar hefði kallað einhver ókvæöisorð á eftirhonum, en ég gatekki annað en grett mig reiðilega. Það var meira að segja fyrir gýg, þvi Matti var farinn að kjá framan i eina flugfreyjuna, langlegg»jaða stúlku með eirrautt hár. Kvöldið eftir, þegar Even haföi tilkynnt forföll, vegna þess aö hann þurfti út með viðskiptavini og mér leið heldur laklega settist ég niður og skrifaði Lindsay, Reyndarskrifaði ég ekki mikið. Það eina sem við áttum sam- eiginlegt var Matti og tilfinningar minar til hans þessa stundina voru ekki beinlinis bllðar. En ég lofaði að gera mitt til að henni liði sem bezt þessa daga 1 Noregi og i góðsemiskasti sagði ég meira að segja, að hún mætti gista hjá mér ef hún þekkti enga aðra hérna. Seinna hugsaöi ég ekki mikið um það. Svarið frá Lindsay hlýtur að hafa komið um gervihnött svo fljótt var það á leiðinni. Það var notalegt bréf. Hún sagðist hlakka svo til að hitta systur Matta. Leitt að hún gæti ekki hitt Matta sjálf- an, en verið gæti að hún skryppi til Þýskalands, fyrst hún væri komin til Evrópu. Það seinasta hafði mest áhrif á mig. Lindsay vildi gjarnan búa hjá mér og fannst fallegt af mér að hafa hugsað um það. Ég var löngu farin að sjá eftir þvi. Satt að segja vissi ég ekki hvernig hún kæmist fyrir i litlu ibúðinni, sem ég deildi með vhi- konu minni. Hún var bara tvö ör- litil svefnherbergi, stór dagstofa og eldhúsklefi. Ekki einu sinni mús gæti almennilega snúiö sér viö þar, hvað þá hávaxin, ljós- hærð, bandarisk stúlka með iþróttadellu. Ég yrði að hafa hana á vindsæng inni i svefnher- berginu minu. Hvaða áhrif hefði hún svo á Even? Ég vissi að hann var veik- urfyrir þeim ljóshærðu. Það hafði hann oftar en einu sinni sagt. Beisbolta þekkti hann lika — sið- an hann var við nám í Bandarikj- unum. Þetta var ekki efnilegt. Ég hafði ekkert á móti þvi að deila ibúöinni með Lindsay, en Even vildi ég hafa ein. Hvers vegna þurfti Matti alltaf að skapa mér þessa erfiðleika? — Ég lofaði vist að taka aðmér bandariska pennavinkonu Matta þegar hún kemur hingaö I sumar- leyfi, sagði ég við Even. — Hún er afar lagleg og leikur beisbolta Hann gretti sig. — Þá er hún áreiðanlega karate-meistari lika, sagði hann og kyssti mig á nef- broddinn. Ég vonaði bara að þetta áhugaleysi hans héldist eft- ir að hún væri komin. — Þær i Bandarikjunum kunna lagið á þvi að stinga upp i karlmenn, bætti hann við. — Agætt, sagði ég og reyndi meö hálfum huga að ýta honum frá mér. . Ef hann var með þessu að gefa i skyn, að ég kynni ekki að stinga upp i karlmenn eða væri ekki karate-meistari, þá hafði hann al- veg á réttu að standa. Ég var jafn veik fyrir honum og Matta. Þess vegna þóttist ég ekki heyra, þeg- ar Mari sagði, að Even væri glaumgosi. Matta hafði reyndar ekki heldur likað við Even. — Þú sóar bara timanum með þessari figúru hafði hann sagt, en ég fyrirgaf honum þaö strax og brosti dularfullu brosi til hans. Matti þekkti Even ekki. Hann hafði aðeins hitt hann nokkrum sinnum með mér. Ég haföi gert ráð fyrir að þeim kæmi vel sam- an, en þar hafði mér skjátlast. En mér geðjaðist vel að Even. Hann var skemmtilegur og ég naut þess að sjá hvernig augnafað aðrar stúlkur sendu honum. Hvaða máli skipti þó hann væri svolitið laus i rásinni? Ég ætlaði heldur ekki aö binda mig strax. Ég hafði góða stöðu, góð laun og möguleika á stöðuhækkun. Þetta tæki allt enda ef ég gifti mig og stofnaði fjöl- skyldu. Ég var ánægö með lifiö eins og það var — eða þaö sagði ég sjálfri mér aö minnsta kosti. Ég trúði þvi varla sjálf, en ég naut þess að skrifast á við Lind- say. Þaðgekk meira að segja svo langt að ég fór að biða eftir bréf- unum. Matti hafði haft á rettu aö standa — hún skrifaöi skemmti- leg bréf En hann hafði ekki minnzt á að hún skrifaði svona oft. Lindsay var efnafræðingur og starfaöi I rannsóknarstöð og lifði um þessar mundirá hnetum til að hafa efni á Evrópuferðinni. Hún hélt meira að segja fyrirlestra á kvöldin og mér fannst störkost- legt aö hún skyldi hafa tima til að skrifa mér lika. Ekki leið á löngu unz mér fannst ofur eölilegt að seg ja henni frá öllu, sem ég aðhafðist. Ég trúði þvi varla sjálf. Fyrir aðeins fáum mánuðum hafði Lindsay veriö bláókunnug manneskja, sem ég vissi ekkert um — og nú leit ég á hana sem trúnaðarvin- konu mina. Auðvitað sagði ég frá Even, en hins vegar skrifaði hún ekki orð um pilta sem hún fór út með. Ef til vill var hún svo önnum kafin, aö hún hafði ekki tima til að vera með hneinum. Eða þá að hún var hrifin af Matta. Ég var svo altek- in tilfinningum minum til Evens, að ég hugsaöi litiö um þá hliö málsins. Svo gerCást þaö. Dag einn sem við Even höföum ákveöið að hitt- ast, hringdi hann til mln I vinnuna og sagöist ekki geta komið. Það hafði svo oft gerzt að ég hugsaði ekki mikið um það, en auðvitaö varö ég þó fyrir vonbrigðum. Þegar ég kom heim og sagði vin- konu minni þaö, Mari, leit hún fast á mig og sagði: — Þaö er eiginlega ágætt. Ulrik ætlar aö halda samskotaveizlu i kvöld og það vantar nokkrar stúlkur. Það koma alltaf of margir strákar. Hvað segirðu um þaö? Auðvitað sagði ég nei. Mig

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.