Tíminn - 03.07.1977, Side 32

Tíminn - 03.07.1977, Side 32
32 Sunnudagur 3. júU 1977 Anton Mohr: Árni og Berit Ævintýraför um Asiu klukkan þrjú i dag, og mættu nú nota timann þangað til, til að skoða bæinn og fara i búðir. Einn af varðmönnunum átti þó að fylgja þeim og gæta þess, að þær væru komnar aftur að lestinni klukkan þrjú. Þetta leyfi vildu þær strax nota. Anna, sem var mjög trúhneigð, vildi að þær gengju fyrst til kirkju. Kirkjan var ný og mjög fögur bygg- ing. Berit hafði aldrei komið áður i rússneska kirkju, og henni fannst mikið um skautið og hátiðleikann i kirkjunni. Af sjálfri guðsþjónust- unni skildi hún litið. Hún fór fram eftir rússnesk- um siðum, á rússnesku máli, sem hún átti erfitt með að skilja. Á eftir fóru þær i búðir og keyptu ýmsa smá- hluti, sem þær vanhag- aði um, svo sem: alls konar hreinlætisvörur, upphá leðurstigvél, skinnhanzka og slæður til vamar mýflugum. Varðmaðurinn, sem aldrei vék eitt skref frá þeim, var dauðhræddur um, að þær yrðu of sein- ar aftur á jámbrautar- stöðina, og var alltaf að reka á eftir þeim. Varð það til þess, að þær voru komnar þangað aftur klukkan tvö, eða klukku- tima fyrir burtfarar- tima, en svo var ekki lagt upp fyrr en klukkan fimm. Berit hafði áður ekið i þessum rússnesku hest- vögnum, og vissi hvernig þeir vom. En þá hafði Sörensen, vinur þeirra systkinanna, þakið vagninn með dýn- um og púðum, til að liggja á, og þó hafði þeim fundizt að hvert bein i likama þeirra ætl- aði að brotna fyrsta áfangann, en i þessum vagni var aðeins hálm- bingur, og vegirnir þarna voru enn harðari og ósléttari en i Turke- stan. Hraðinn var hinn sami. Hestarnir voru alltaf látnir valhoppa fyrir vagninum. Ekki höfðu konurnar farið langt, er Berit fór að öf- unda Áma af þvi, að fá að ganga i hægðum sin- um eftir þjóðveginum i þessu ágæta veðri. Það hlaut að vera betra en hristast i þessum vagni, jafnvel þótt hlekkir væru um fætuma. Rúss- nesku konumar sættu sig möglunarlaust við hristinginn. Þær voru þessu vanar. 1 rökkurbyrjun var komið i næturstað. Það var um 35 km frá Irk- utsk. Á þessum þjóðveg- um þar sem fangaflutn- ingar fóru fram, hafði keisarastjórnin látið reisa eins konar gistihús fyrir fanga og fanga- verði. Allir þessir skálar voru mjög svipaðir. Inn- an i fjögra metra hárri plankagirðingu var byggður sterkur glugga- laus skáli úr bjálkum. Um fjögra metra breitt svæði var innan girðing- ar i kringum húsið. Rétt utan við girðinguna var reist venjulegt bjálka- hús fyrir fangaverði og umsjónarmenn. I þessu húsi var lika venjulega svefnklefi fyrir konur, ef þær voru með i hópnum. Dyrnar út úr planka- girðingunni lágu út I gegnum svefnsal fanga- varðanna. Inni i þessum bjálka- húsum vom trébekkir meðfram veggjunum, sem fangarnir áttu að hvílastá. Aðrir húsmun- ir voru þar ekki. Á bekkjunum var rúm fyr- ir 60 menn, en ef fleiri fangar voru i ferðinni, eins og i þetta sinn, þá var þeim ekki séð fyrir legurúmi. Þeir urðu þá að liggja á gólfinu eða undir bekkjunum. Ætið var niðamyrk- ur inni i þessum gluggalausum bjálka- húsum, svo að venjulega fengu fangarnir að hvil- barnatíminn ast úti i garðinum, þar til háttatimi var kom- inn. En ef seint var kom- ið i náttstað, eða ef for- inginn var i vondu skapi, þá voru fangarnir strax reknir inn i niðdimma skálana og lokaðir þar inni. Þannig var einmitt farið að, þetta kvöld. Foringi fararinnar var reiður yfir þvi að hann varð að leggja upp frá Irkutsk degi fyrr en á- kveðið var, og hann lét reiði sina bitna á föng- unum. Allan daginn hefði hann látið skamm- imar dynja á þeim og lamið þá með svipunni, eins og hann væri að reka stóð. öðru hverju hafði hann þeyst inn i raðir þessara hlekkjuðu göngumanna og látið svipuhöggin dynja á þeim, án nokkurra saka. Og nú , þegar loks var komið i náttstað, skipaði hann að loka þá strax inni. Lykilinn að ytri dyrunum i virkisveggn- um tók hann með sér inn i sina svefnstofu. Gat þvi enginn komizt inn eða út úr þessum traustbyggða skála. Þetta kvöld lá Árna við örvilnun. I margar vikur og mánuði hafði hann verið lokaður inni i misjöfnum fangelsum. Þessi langa ganga með '0, ftLMÍRTTVGrJM HeFUR D0ff\ k/Ú.EíUU 5;jJj/í Eaj/j.vcRW fíÐ HoRFR 'r FofiJDUtokTTlNAJ ‘I 5jóN\//mPÍNU. hlekki um hendur og fætur hafði verið honum mikil þolraun og oft hafði hann fengið að kenna á svipunni. Á hálsinum vinstra megin, og langt niður á bakið, var blóðhlaupin rák eftir svipuólina. Fætur hans voru sárir og hann var rétt að örmagnast af þreytu er hann kom i náttstað. En sárast af öllu var þó það, að ferðafélag- arnir — útlagahópurinn — var gjörbreyttur. Flestir fangarnir, sem bætzt höfðu i hópinn, voru reglulegir glæpa- menn, þjófar og morð- ingjar, en ekki pólitiskir afbrotamenn eins og þessir sautjánsem lögðu upp frá Tomsk. Glæpa- mennirnir voru þvi i miklum meirihluta og þeir settu svip sinn á hópinn. öll framkoma þeirra var sóðaleg og ó- svifin. Allan daginn hafði Árni hlakkað til hvildar- innar úti, áður en gengið yrði til náða. Nokkrir fanganna höfðu áður verið dæmdir i útlegð og þekktu þessa venju. Þeir höfðu lika sagt Árna það, að i garðinum væri vatn. Þar gætu fagnarn- ir setið, hallað bakinu upp að plankagirðing- unni og fengið sér fóta- bað. Árni hlakkaði til þess allan daginn, að geta þvegið auma og særða fætur sina, en nú var þeim neitað um það. Þeir voru reknir inn i niðdimman skálann strax. Árni var ungur og óreyndur i þessum mis- leita hópi og gætti þess ekki að velja sér hvíld- arstað fyrir nóttina, og þegar hann fór loks að leita fyrir sér, voru allir bekkir fullir. Hann varð þvi að skriða undir bekk og leggjast þar flatur i gólfið. Þarna lá hann einmana i myrkrinu og grét hljóðlega. Hvilikt ó- lán að hafa lent i þessu! líkkert hafði hann af sér gert, og þó var hann dæmdur sakamaður. Árni sofnaði með sárum ekka. 3. Snemma næsta morg- un voru fangarnir reknir á fætur. En nú ætlaði

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.