Tíminn - 13.08.1977, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.08.1977, Blaðsíða 7
Laugardagur 13. ágúst 1977 7 í spegli tímans Tryggur og góður verndari Kvennabósarnir hugsa sig um tvisvar áður en þeir reyna að ónáða þessa fallegu stúlku, sem hefur alltaf hund- inn sinn (tikina?) sem heitir Vanya með sér hvert sem hún fer. Vanya er æfður varð- hundur og hin bezta vörn gegn hverskonar ásókn. Stúlkan er fegurðardrottning og heitir Julie Moxon. Hún segist hafa fengið sér stóran varðhund, vegna þess að þessum titli og frægð sem hon- um fygli, fylgi lika annað heldur leiðin- legt. Það er sem sagt alltaf stór hópur af alls konar ævintýramönn- um og kvennabósum sem aldrei láta i friði fegurðardrottningar og aðrar stúlkur, sem oft birtast myndir af i blöðunum. — Ég opna ekki fyrir neinum nema að vita fyrirfram hver það er, segir Júlie og mér finnst mikið öryggi i að hafa Vanya alltaf hjá mér. HMSWK0inið með sandpokana ' að bátnum hérna megin, svo rA Cutlett sjái ekki hvaðr^^EWK^J i þið eruð að © Bulls [Við festumst^Eina lausnin alltaf meir y er að ná bát Hann er of önnum kafinn við að reyna að los.na ___. Sacks á okkar vald! - og meir Tíma- spurningin Myndiröu ganga i sértrú- arsöfnuð? Páll Karlsson, vélstjóri: Nei, ég er á móti öllu „kredderii”. Menn eiga bara að trúa á sjálfan sig. Þórarinn Árnason, starfsmaður i Búnaðarbankanum : Nei, ég held ekki. Mér liður ágætlega þar sem ég er. — i Frikirkjunni. Jakobina Jóhannesdóttir, hús- móðir: — Nei. Slikt kæmi ekki til greina. Maöur á að vera i þjóð- kirkjunni. Halla Arnardóttir, gangastúlka: — Nei, ég hef nú ekki svo mikinn áhuga á trúmálum, trúi bara á minn eigin guð. Ég reyndi að verða kaþólsk, þegar ég fór til Bandarikjanna, en leizt ekkert á betlistarfsemina eftir messur. Lúðvik Jónsson, starfsmaður i isafold: — Nei. Mér finnst engin ástæða til þess. Ég er ánægður þar sem ég er.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.