Tíminn - 13.08.1977, Page 8

Tíminn - 13.08.1977, Page 8
8 Laugardagur 13. ágúst 1977 borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgar Meira en helmingur innkaupa borgarsjóðs og fyrirtækja hans fer ,,fram hjá” Innkaupastofnun Athyglisverðar umræður 1 Borgarstjórn um fiskkassa- kaup BÚR og Á fundi borgarstjórn- ar Reykjavikur siðast- liðinn þriðjudag urðu snarpar umræður um Bæjarútgerð Reykja- vikur og Innkaupa- stofnun Reykjavikur- borgar, en tilefni um- ræðunnar voru vinnu- brögð BÚR við kaup á um 15.000 fiskikössum fyrir um 40 milljónir króna. fleira þjónustu fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavikurborgar. BX'.R. er ekki undanþegin regl- um Innkaupastofnunarinnar og verður að vænta þess, að fyrir- tækið lúti reglugerð hennar, meðan ekki hefur verið tekin ákvörðun um annað.” Alfreð Þorsteinsson hóf um- ræðuna með þvi að skýra frá einkennilegum vinnubrögðum i máli þessu Að visu hefði BUR og borgarstjórnarmeirihlutinn verið knúinn til þess að láta fara fram almennt útboð á nefndum fiskikössum, þrátt fyrir yfirlýs- ingar um að aðeins tvö fyrirtæki gætu útvegað nefnda kassa, þ.e. Kristján Skagfjörð hf og Asfu- félagið hf. Sniðgengur borgar- stjóri samþykktir borgarstjórnar? Til umræðu var fundagerð borgarráðs frá 19. júlis.l. en þar hafði Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi látiö bóka eftir- farandi: „Vegna fundargeröar B.Ú.R. frá 13. júli, þar sem rætt er um væntanleg kaup á 15 þúsund fiskikössum, vil ég mótmæla þeim vinnubrögðum B.O.R. aö sniðganga reglur Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar, sem kveða á um, að stjórn Innkaupastofnunarinnar taki ákvarðanirum kaupá vörum og RaKti ræöumaður einkenni- lega afstöðu borgarstjórnar- meirihlutans til innkaupa Bæjarútgerðarinnar og átaldi harðlega þau ummæli borgar- stjórans í Reykjavik i viðtali við dagblaö i Reykjavik, þar sem borgarstjóri taldi sérstööu Bæjarútgerðarinnar valda þvi að hún þyrfti ekki að beina við- skiptum sinum til Innkaupa- stofnunarinnar. Sagði Alfreð Þorsteinsson að ekkert væri i samþykktum borgarstjórnar, sem undanþægi Bæjarútgerð Reykjavikur frá þvf að gera viðskipti sin fyrir milligöngu Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar. Alfreð Þorsteinsson, borgar fulltrúi Meira en helmingur viðskipta borgarinnar fer framhjá Innkaupa- stofnun Reykjavikur- borgar. Þessi afstaða og hliðstæð ætti sinn þátt i því að rik tilhneiging væri hjá borgarfyrirtækjum aö sniðganga Innkaupastofnunina og minnti ræðumaður m.a. á Snorramálið svo nefnda, (þegar Borgarspitalinn vildi án af- skipta kaupa sjúkrarúm an út- boðs — og á hærra verði en hægt var að fá með útboði.) Að lokum minnti Alfreð á þá staöreynd að Albert Guðmunds- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins hefði að undanförnu ekki mætt á stjórnarfundum Innkaupastofnunarinnar, til þess (væntanlega) að mótmæla vinnubrögöum við innkaup borgarinnar. Meðal þeirra sem til máls tóku i umræðu þessari voru borgarstjórinn, Birgir ísl. Gunnarsson, Ragnar Júlfusson, borgarfulltrúi, Björgvin Guð- mundssonog Albert Guðmunds- son. Við umræðuna kom f ljós, að borgarstjóri telur að sérstaða bæjarútgerðarinnar sé slik, að hún verði að hafa svipaðar að- ferðir við innkaup sin og önnur útgerðarfélög. Hefði sami hátt- ur gilt frá stofnun hennar. Þó taldi borgarstjóri ekki fráleitt að bjóða út vissa þætti af rekstrarvörum B.Ú.R. Borgarstjóri hafnaði því að þurfa að hafa hliðsjón af sam- þykktum borgarstjórnar er hann tjáði sig opinberlega. Við umræðurnar kom í ljós að Bæjarútgerðin hefði aðeins talið fiskkassa frá tveim fyrirtækjum henta útgerðinni. Upphaflega hefðu 3000 kassar (tæpar 8 milljónir króna nú) veriö keyptir af fyrirtækinu Kristján Skagfjörð hf. óskað hefði verið munnlega eftir tilboðum i 15.000 slika kassa frá tveim fyrirtækjum. Kom fram i umræðunni aö munnleg tilboö fælu ekki f sér nægjanlega traustar upplýsing- ar um gæöakröfur, afhend- ingartima o.fl. og þvi hefði verið betra að óska skriflega eftir verötilboðum i ákveðna vöru. NU hefur, sem áður sagði, verið greint frá því að almennt útboð á að fara fram á þessum 15.000 kössum á vegum Innkaupastofnunar Reykjavik- urborgar. Albert Guðmundsson,borgar- fulltrúi, hvað fjarveru sina af fundum stjórnar Innkaupa- stofnunar Reykjavfkurborgar stafa af ýmsu. M.a. frámuna- lega lélegu og óframbærilegu endursölukerfi, en Innkaupa- stofnun hefur kjallara fullan af rusli undir endursöluvarning. Þá upplýsti borgarfulltrúinn, að sem dæmi um vinnubrögðin, þá færi rúmlega helmingur innkaupa fyrirtækja Reykjavík- ur framhjá Innkaupastofnun- inni, þar á meðal allur matur á sjúkrahús borgarinnar. Kvað hann veitingamenn og matvælaframleiðendur hafa kvartað undan þessu við sig, þar á meðal Þorvald Guðmundsson forstjóra i Sfld og Fiski. Annars kvaðst Albert vera andvigur stofnunum á borð við Innkaupa- stofnun og efaðist um gildi þeirra. Að lokum tók Alfreð Þor- steinsson aftur til máls og itrek- aði þá hættu, sem stafaði af þvi ef borgarstjóri og aðrir teldu það matsatriði hverju sinni, hvort fyrirtæki borgarinnar skiptu við Innkaupastofnun. Innkaupastofnunin hefði á sin- um tima verið stofnuð til þess að halda útgjöldum borgarfyrir- tækja og þá skattborgaranna i skefjum og hindra það, að borgarfyrirtæki væru að hygla sérstökum gæðingum i formi viðskipta viö borgina. Ekki hefði verið staðinn vörður um þessa stofnun, eins og ber- lega hefði komið fram, þar sem meira en helmingur innkaupa borgarsjóðs og fyrirtækja hans færu nú framhjá Innkaupa- stofnun. JG borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgar Taka ýmis hættuleg sér lyf sem lítið gagna, út af lyfjaskrá Kás-Reykjavik. t siðasta tölu- blaði Lögbirtingablaðsins er aug- lýsing frá Heilbrigöis- og trvggingarmálaráðuneytinu, varðandi sérlyf, sem tekin eru af sérlyfjaskrá. Samkvæmt henni hefur ráðu- neytið ákveðiö, aö frá og meö 1. september n.k. verði lyfin: Entero-Vioform, Mexaform, og Siogen, sem öll eru Ciba-Geigy sériyf, tekin af sérlyf jaskrá. Enn fremur verður frá og með 1. október óheimilt aö ávisa, selja, eða afhenda eftirtalin lög- bókarlyf: Mixtura Jodchloro- zichinoiini DAK, Tablettac jodchoroxichinolini 0,35 g DAK, og Solublettae chiniofoni 0,25 g Nord. Tfminn hafði samband við Ólaf Ólafsson landlækni vegna þessar- ar auglýsingar, og spurði hann um hvaða lyf væri að ræða og hvers vegna þeu væru tekin út af skrá. Sagði hann, að fengin væri mjög góð reynsla fyrir þvi, aö fyrrnefndi lyfjahópurinn gagnaði litið, en af þeim stafaði mikil hætta, ef þau væru tekin í stórum skömmtum, og gætu þau þá vald- ið sjúkdómum i taugakerfinu. Hvaðvið kæmi seinni flokknum, sagði landlæknir, að einfaldlega væri búið að finna önnur og betri lyf i þeirra stað. Þá var landlæknir spurður að þvf, hvað liði reglugerö um öryggislyfjaglös, en þessi mál voru töluvert i sviðljósinu sl. vet- ur. M.a. hefur fyrirtækið Bjalla- plast hannað sérstök öryggis lyfjaglös, sem börn eiga ekki að geta opnað. Ólafur sagöi að verið væri að ganga frá umræddri reglugerð, og tæki hún væntan- lega gildi á komandi hausti. Verö- ur Island þá annaö rikið i heimin- um sem setur reglugerð varðandi hönnun og húnað lyfjaglasa. örn Þorsteinsson og fjöiskylda skoða myndir Reykjavfkur sem eru tii sýnis á Kjarvalsstöðum. ÚR MÁLVERKASAFNI REYKJAVÍKURBORGAR Kás Reykjavik. I dag er opnuð sýning á Kjarvalsstöðum á listaverkum úr málverkasafni Reykjavikurborgar og stendur hún til 23. ágúst. 1 sýningarskrá stendur, að reynt sé eftir þvi sem efni og að- stæður leyfi, að setja nokkur þau málverk, sem Reykjavikur- borg á i lauslegt sögulegt sam- hengi, einkum til þess að gefa erlendum gestum einhverja mynd af þróun islenzkrar málaralistar siðustu 60 árin, — gegnum expressionsima frum- herjanna, kúbisma strfðsár- anna, afstraktlist eftirstriðsár- anna, raunsæi og síðan nýjustu hræringar. Uppsetningu sýningarinnar önnuðust Aðalsteinn Ingólfsson, Guðmundur Benediktsson og Gunnar örn Gunnarsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.