Tíminn - 22.09.1977, Síða 9

Tíminn - 22.09.1977, Síða 9
Fimmtudagur 22. september 1977 9 Útgcfandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grímur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð í lausasölu kr. 80.00. Áskriftargjald kr. 1.500 á mánuði. Blaðaprent h.f. Stærsta vandamál vestrænna þjóða Það virðist nú álit flestra hagfróðra manna, að mesta efnahagslegt vandamál hins vest- ræna heims sé mikið og vaxandi atvinnuleysi, þvi að alls kyns böl fylgir i kjölfar þess. í flest- um vestrænum löndum eru nú á prjónunum meiri og minni ráðstafanir, sem eiga að draga úr atvinnuleysiinu eða a.m.k. að koma i veg fyrir að það aukist. Þannig hafa Danir nýlega gert allviðtækar ráðstafanir sem eiga að auka atvinnu, en munu þó vart nægja meira en til að afstýra þvi að atvinnuleysi aukist. Talið er að þessar ráðstafanir hafi um 6% kjaraskerðingu i för með sér. Þá hefur stjórn Vestur-Þýzka- lands nýlega lagt til að framlög til að auka at- vinnu, verði verulega aukin i fjárlögum næsta árs, jafnframt þvi, sem skattar verði lækkaðir til að örva atvinnulifið. I Bandarikjunum vinna sérfræðingar rikis- stjórnarinnar að tillögum um ráðstafanir, sem dragi úr atvinnuleysinu, en það hefur aukizt að undanförnu, einkum meðal blökkumanna, og er Carter forseti sagður hafa miklar áhyggjur af þvi. Þannig mætti fara land úr landi i hinum vest- ræna heimi og benda á ráðstafanir, sem verið er að gera til viðnáms gegn atvinnuleysinu, sem viðast er nú talið stærsta efnahagslega vandamálið. íslendingar geta fagnað þvi, að hérlendis hefur ekki verið atvinnuleysi á undanförnum árum og þvi átt sér stað mikil og ánægjuleg uppbygging á mörgum sviðum. Gallinn hefur helzt verið sá, að atvinna hefur stundum verið of mikil, þvi að unnið hefur verið að of mörgum stórframkvæmdum samtimis. Það hefur átt sinn þátt i verðbólgunni. Takmarkið nú hlýtur að vera það, að halda slikum stórframkvæmd- um innan þeirra marka að ekki komi til at- vinnuleysis. Víðishúsið Mikill hvalablástur hefur verið i Þjóðviljan- um og Dagblaðinu vegna ráðagerða þess efnis, að menntamálaráðuneytið kaupi svonefnt Viðishús fyrir starfsemi sina. Menntamála- ráðherra hefur sent fjölmiðlum greinargerð, þar sem hann sýnir fram á, að húsnæðismál ráðuneytisins séu i mesta ólestri. Bezta lausnin væri að reisa nýtt húsnæði fyrir starfsemi þess, en það megi teljast „sæmilegur kostur að kaupa gamalt hús og gera það upp, ef kaupverð telst eðlilegt.” Það er um kaupverðið, sem deilan stendur. Glöggir fjármálamenn, eins og forsætisráðherra og fjármálaráðherra eru kaupanna fýsandi, en samgöngumálaráðherra og orkumálaráðherra, sem báðir eru fyrrver- andi fjármálaráðherrar, eru á öðru málg Eðli- legt virðist þvi, að þetta atriði verði athugað betur og málinu frestað þangað til þing kemur saman og þingmenn geta tekið þátt i endan- legri afgreiðslu þess. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Barre veitir mun betur en Mengistu Rússar veita báðum hernaðarhjálp Siad Barre SIÐUSTU tvær vikur hafa geisaö harðari bardagar i Ogaden-héraði i Eþiópiu en gegnt, en þó ekki getaö stöðv- að sókn Sómala Þannig þukir flota sinum, sem er banda- riskur aðuppruna, mun meira en áður, og orðið nokkuö á- gengt, en þó ekki getað stööv- að sókn Sómala.Þannig þykir það orðið vist, að Sómalir hafi um seinustu helgi hertekið Jij- iga, sem er að visu ekki nema lOþiis.manna bær, en er mjög mikilvæg samgöngustöö þvi aö þaðan er greið leið um Oga- denfjöll til borgarinnar Harar, sem er fjórða stærsta borg Eþi'ópíu og Diredawa, sem er þriðja stærsta borg Eþfópiu. Sómalir hafa áður reynt eftir öðrum torfærari leiðum að ná þessum borgum, en það mis- heppnaðist. Aðstaða þeirra við að hertaka þessar borgir er talin hafa stórbatnað með töku Jijiga. Sú von Eþiópiumanna að geta stöðvað sókn Sómala með loftárásum, er talin hæpin. Það veikir flugherinn mikið, að flugvélar hans eru banda- riskar, og herinn hefur ekki fengið varahluti til þeirra sið- an Eþiópiustjórn rauf sam- starfið við Bandarikin og leit- aði ásjár Rússa. Rússar hafa siðan sent bæði flugvélar og hergögn til Eþiópiu, en það tekur sinn tima aö læra að meðhöndla þessi tæki, sem á ýmsan hátt eru ólik hinum bandarisku sem herinn er vanur frá fyrri tið. Þó beita Eþiópiumenn oröið meira og meira rússneskum vopnum i átökunum i Ogaden, en vopnin sem Sómalir nota eru nær ein- göngu rússnesk. Það furöu- lega gerist i Ogaden, aö báðir strlösaðilar beita rússneskum vopnum, þvi Rússar hafa enn ekki slitiö tengslin við Somal- Iu, en þau eru þó hvergi nærri eins náin nu og þau voru áöur en vináttan hófst milli Rússa og stjórnenda Eþiópiu. Þá studdu Rússar Somaliu til að koma upp einum öflugasta hernum i Afriku, og sést ár- angur þess greinilega I átök- unum I Ogaden. OPINBERLEGA lætur stjórn Sómaliu lita þannig út, aö hér sé ekki um að ræða styrjöld milli rikja, þ.e. milli Eþiópiu og Sómaliu, heldur hafi þjóð- frelsishreyfing Somaliu i Oga- denhéraði risið upp gegn yfir- drottnurunum I Addis Ababa og vilji ekki lengur una undir- okun þeirra. Aö sjálfsögöu hafi stjórn Sómaliu mikla samúð meö þjóðfrelsishreyf- ingunni I Ogaden og styðji hana á ýmsan hátt, en hins vegarséþað ósatt, sem stjóm Eþfópiu haldi fram, aö her Sómaliu taki þátt i átökunum. Yfirleitt er þessi yfirlýsing Sóm aliustjórnar ekki tekin trúanlega, en hitt er þó talið rétt, að her Sómaliu hafi enn ekki tekið þátt i styrjöldinni I stórum stil, en hins vegar veitt þjóðfrelsishreyfingunni ýmsa mikilvæga hjálp, sem átt hafi mikinn þáttf sigursæld hennar hingað til. Eins og nú horfir þykir sennilegt að Sómölum takist að ná öllu Ogadenhéraði á vald sitt. Þeir ráöa þegar yfir 90% af héraðinu en stór hluti þess landsvæðis er eyðimörk sem litlu máli skiptir hvorum megin liggur. Meira máli skiptir að þeir hafa með töku Jijiga og fleiri slikra staða náð góðri hernaðarlegri stöðu til að taka stórborgirnar Harar ogDiredawa, en yfirráðin yfir þeim skipta mestu máli. BAK við tjöldin munu Rússar nú vinna að þvi að koma á sáttum og oröið litið ágengt til þessa. Einræðisherra Sómal- iu, Siad Barre, fór nýlega til Moskvu, þvi * aö hann telur ó- klókt að rjúfa tengsl við Sovét- rikin á þessu stigi. Hins vegar virðist hann ekki hafa farið neitt eftir óskum Rússa um að stööva átökin I Ogaden. RUss- um er hins vegar umhugað um, að styrjöldin lei.ði ekki til þess, að einræöisherra Eþióp- iuy Mengistu, missi völdin. Fyrir Rússa er það meira en torveldur leikur að ætla aö eiga vingott við þá Mengistu og Barre báða, enda þótt þeir rökstyðji aðstoðina við þá með þvi, að hér sé um sósialiskar stjórnir að ræða og þvi veiti þeir báðum stuðning. Fyrr eða siðar veröa Rússar aö velja á milli og vel geta þessi mál þróazt þannig, að þeir missi fótfestuna, sem þeir hafa nú I báðum löndunum. Þótt Barre láti enn eins og hann vilji varðveita tengslin við Rússa, sýnir hann þeim i verki að hann þurfi ekki að vera upp á þá kominn. Hann fór nýlega I heimsókn til Saudi-Arabiu og fékk þar lof- orð um mikla fjárhagslega aö- stoð. Þá hefur hann einnig lát- ið I ljós, að hann vilji bæta sambúðina viö Bandarikin og kaupa vopn af þeim. Banda- rikin hafa tekiö vinmælum hans vel, en ekki látiö hann enn hafa nein vopn. Banda- rikjamenn telja, að slik af- skipti þeirra af styrjöldinni I Ogaden myndi ekki mælast vel fyrir annars staöar i Afriku. Þeir vilja og ógjarnan lenda i miklum deilum við Rússa i þessum heimshluta, þvi að nógar eru þær á öörum stöðum. Þá óttast Banda- rikjamenn minna en áður að Rússar nái fótfestu i Afriku, þótt þeir reyni á vissu stigi að vingast við einstakar þjóöir þar. Endalokin hafa oftast orðið þau, að þeir hafa fengið1 litið fyrir snúö sinn og sú virð- ist ætla að verða raunin nú i viðskiptum Sovétrikjanna og Sómaliu. þ.þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.