Tíminn - 22.09.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 22.09.1977, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. september 1977 13 Friöriksson iönrekenda um auölindaskatt o. fl. Tónleik- ar kl. 10.40 Morguntónleikar kl. 11.00: NathanMilstein og Leon Pommers leika Fiölu- sónötu nr. 12 „La Follia” op. 5 eftir Corelli/Auréle Nicol- et og Hátiöarhljómsveitin i Lucerne leika Flautukon- sert i G-dilr eftir Tartini, Rudolf Baumgartner stj./Maurice André og Marie-Claire Alain leika Konsert i d-moll fyrir trompetog orgeleftir Albin- oni/Anton Heiller og kamm- ersveitleika Sambalkonsert nr. 1 i d-moll eftir Bach, Militiades Caridis stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni Margrét Guömundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miödegissagan: „(Jlt- hildur” eftir Hugrúnu. Höf- undur les (17) 15.00 Miödegistónleikar. Sin- fóniuhljómsveitin i Vinar- borg leikur Svitu i sex þátt- um fyrir strengjasveit eftir Loes Janácek: Henry Swoboda stjórnar. Regine Crespin syngur meöfrönsku útvarpshljómsveitinni „Wesendonksöngva”, laga- flokk eftir Richard Wagner: Georges Prétre stjórnar. Filharmoniusveit Lundilna leikur „Mazeppa”, sinfón- iskt ljóö nr. 6 eftir Franz Liszt, Bernard Haitink stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). s 16.20 Tónleikar. 17.30 Lagiö mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál.Gisli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 Fjöllin okkar Siguröur Kristinsson kennari talar um Snæfell. 20.05 Samleikur I útvarpssal: Valva Gisladóttir og Agnes Löve leika á flautu og pianó tónverk eftir Poulenc og Debussy. 20.20 Leikrit: „Of seint aö iör- ast” eftir Walter K. Daly. Þýöandi Eiöur Guönason. Leikstjóri: Helgi Skúlason. Persónur og leikendur: Normann.....Randver Þor- láksson, Kevin.....Hákon Waage, Mamma.........Guö- björg Þorbjarnardóttir, Billy..Jón Sigurbjömsson, Kata.....Margrét Guö- mundsdóttir, Hjúkrunar- kona...Jóhanna Noröfjörö, Læknir....Ævar R. Kvaran, Dyravöröur....Flosi Ólafs- son, Jói frændi......Arni Tryggvason, Aörir leikend- ur: Kristin Jónsdóttir, Skúli Helgason, Kjartan Bjarg- mundsson, Erla Skúladóttir og Guörún Jónsdóttir. 21.25 Tónverk eftir Jón Þórar- inssona. Prelúdia, kóral og fúga. Ragnar Björnsson leikurá orgel. b. Sónata fyr- ir klarinéttu og planó. Egill Jónsson og Guömundur Jónsson leika. c. „Of Love and Death”. Kristinn Halls- son og Sinfóniuhljómsveit Islands flytja, Páll P. Páls- son stjórnar. d. Sex gamlir húsgangar meb nýjum lög- um. Gubrún Tómasdóttir syngur. ólafur Vignir Al- bertsson leikur á planó. — Atli Heimir Sveinsson flytur formálsorö. 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir KviSdsag- an: „Dægradvöl” eftir Benedikt Gröndal. Flosi Ólafsson leikari les (10) 22.40 Kvöldtónleikar a. „Þjóf- ótti skjórinn”, forleikur eft- ir Rossini. Sinfóníuhljóm- sveit Lundúna leikur: Pi- erino Gamba stjórnar. b. Sinfónia nr. 6 i F-dúr „ Sveitalifshljómkviban” eft- ir Beethoven. Cleveland hljómsveitin leikur: George Szell 23.30 Fréttir. Dagskrarlok. SÚSANNA LENOX börðu skeiðunum í tóma diskana. Brátt komu svartir þjónar í hvítum, óhreinum jökkum með gríða stóra bakka, sem á voru kúf uð föt og skálar og rjúkandi könnur. Blökkumenn eru f Ijótir að gera sér grein fyrir stétt og stöðu fólks. Einn þjónanna veitti Súsönnu strax athygli, brosti alúðlega og hneigði sig af þeirri falslausu kurteisi, sem er einkenni hins svarta kynstofns í Vesturheimi. Hann ýtti til hennar stól og sagði: „Góðan dag, ungfrú. Þetta verður f agur dagur." Og hún var ekki f yrr setzt en hann fór að raða góðgætinu kringum hana: steiktum fiski, steiktu kjöti, steiktum eggjum, brúnuðum kartöfl- um, pönnukökum, niðursoðnum ferskjum og kaffi. Svo sótti hann sírópskrukku, rjómaköku og sykurskál handa henni. „ Væri það f leiri?" spurði hann brosandi, svo að skein í hvítar, hraustlegar tennurnar. „Nei, ekki neitt. Ég þakka innilega fyrir". Stimamýkt hans jókst um allan helming við bros henn- ar. „Sumir vilja ekki eggin mikið steikt. Ætti ég ef til vil að skipta?" „Nei, þessi eru hæfilega steikt." Kannski — betra kjöt?" „ Nei — þetta er ágætt." Hrif ning hennar var ekki nein uppgerð. „Ég hef steingleymt að koma með volga hnúða handa yður." Og svo brunaði hann af stað að sækja þá. Þegar hann kom aftur með fullan disk af glóðvolgu maísbrauði og hnúðum, var hún byrjuð að matast af engu síðri lyst en fólkið, er sat við borðið hjá þenni. Henni fannst, að hún hefði aldrei bragðað eins góðan mat og þann, sem borinn var fram í þessum hvíta og gullna sal. Allt var svo framandlegt og heillandi, og hún fann eitthvað laða sig að þessu ókunnuga fólki — þessu brúna, heillandi fólki. Karlmennirnir hámuðu í sig með hnífum sínum, og allir lágu þeir fram á borðin og breiddu úr sér sem mest þeir gátu. Konurnar voru hátt- prúðari, eins og vera bar á almannafæri. Börnin hvom- uðu í sig eins og bezt gekk og ötuðu allt úr: sig sjálf, disk- ana og dúkinn. Súsanna var jafn hrifin af þessu öllu. Augu hennar Ijómuðu. Að lokinni máltíð stóð hún upp og skauzt f ram í gang- inn, sem næstu var. Þar laumaðist hún til að taka tíu sent upp úr buddu sinni og kallaði síðan á þjóninn, er stjanað haf ði við hana, og rétti honum. Hún stokkroðnaði, því að þetta var í fyrsta skipti, sem hún gaf þjórfé, og henni datt í hug, að Svertinginn kynni að misskilja sig og af- þakka gjöfina. „Ég þakka yður innilega fyrir," sagði hún. „Þér voruð svo ástúðlegur." Þjónninn hneigði sig eins og konungssonur og brosti innilega. Peningurinn hvarf undir svuntu hans. „Það var ekki hægt annað en vera ástúðlegur, þegar þér áttuð hlut að máli," sagði hann blátt áfram. Hún þakkaði honum aftur og gekk síðan út á þilfarið. Henni sýndist báturinn þegar kominn á ákvörðunarstað. Á f Ijótsbakkanum voru óslitnar húsaraðir — allt snotur hús og garðar í kringum þau. Og þarna sá hún vagna, sem gengu fyrir raf magni. Niðri við f Ijótið brunaði hver lestin af annarri. Sumar stuttar og vatnarnir smáir, aðr- ar langar og sumir vagnanna stærri og fallegri og renni- legri heldur en hún hafði áður séð. Hún vissi, að þetta mundu vera þessir stóru járnbrautarvagnar, sem hún hafði lesið um, — í þeim var bæði matazt og sof ið. Og nú var allt íeinuorðiðfulltaf bátum og prömmum kringum skipið, og langt framundan blasti við ein af hengibrún- um, sem hún haf ði svo oft séð myndir af. Súsanna skimaði í allar áttir og reyndi að sjá sem mest, en samt sem áður f annst henni, að það myndi vera miklu færra, er henni vannst timi til að horfa á, en hitt, sem fór alveg framhjá henni. „Hvað? Súsanna Lenox?" var skyndilega sagt rétt hjá henni. Hún kæfði ópið á vörum sér. Undralandið hvarf henni sýnum á svipstundu. Hún sneri ser við. Andspænis henni stóð smávaxin kona, frú Waterbury , og maður hennar með hrokkið, gljáandi hár og langt og snúið yfirskegg. „Komið þið sæl", stamaði hún. „Við höfðum ekki hugmynd um, að þú værir á bátn- um", sagði frú Waterbury,heimsk og kiðfætt og ank- annaleg í perluskreyttum silkikjól. „Jú— jú, ég — ér er hér", stamaði Súsanna. ,í kynnisferð til borgarinnar?" „Já", svaraði Súsanna. Hún hikaði við, en endurtók svo svarið: „já". „Það er dálaglegur morgunverður, sem maður fær á þessum bátum. Það kemur auðvitað fólk að sækja þig? Við Mort skulum haf a auga með þér þangað til það kem- ur". „ó-ó, það er óþarf i", sagði Súsanna. Báturinn var að fara undir brúna. Það voru miklar byggingar á báðum bökkum, blökk múrsteinshús og breiðar götur. Nýtt og nýtt bar fyrir sjónir. „Nú erum við víst bráðum komin", sagði hún. „Bryggjanerviðnæstu brú — Covington-brúna", sagði Waterbury með svip þaulkunnugs ferðalangs. „Sú þriðja er dálítið ofar, en hún sést ekki f yrir reyknum". Hann lét dæluna ganga og hampaði því óspart, hve kunnugur hann væri í þessum stóra bæ, þótt raunar kæmi hann ekki þangað nema einu sinni á ári i verzlunarerindum og væri þar þá að jafnaði aðeins tvo eða þrjá daga. Hann lauk máli sínu með því að segja: „Guð minn góður! Þvílík sóðahola!" Ef til vill var Cincinnati sóðahola, en Súsanna hefði ekki kosið sér bæinn öðru visi en hann var. Reykjurinn var óaðskiljanlegur hluti af bænum og eitt af því, sem setti á hann töf randi blæ og gerði hann ólíkan sveitahér- uðum og smábæjum — ólíkan þeim og æðri Hún læddist burt frá hjónunum og faldi sig í klefa sínum og hélt áfram að stara á umhverf ið út um gluggann. Hún var dáhrifin af nýstárleik þess, sem fyri augun bar. Borgin! Þetta var þá borgin! Nú voru draumar hennar um ferða- lög, fjarlæga staði og kunnugt fólk að rætast. Hún gleymdi sjálfri sér, gleymdi því, sem hún átti sér að baki, gleymdi því, sem framundan kunni að biða. öll at- hygli hennar beindist að þeirri furðusjón, er við henni blasti, og allar hugsanir hennar snerust um þær. Og þeg- ar júnísólin tók allt í einu að skína gegnum þokuna og reykjarhuluna, baðaði hún út höndunum og hvíslaði: „Dásamlegt ! ó, hve þetta er dásamlega fagurt!" Og nú var báturinn kominn kominn að f lotbryggjunni, sem var að mörgu leyti svipuð og f lotbryggjan í Suther- land, en þó eins og örk Nóa við hliðina á barnaleikfangi í samanburði við hana. Og frá þessum yfirbragðsmikla bæ barst óskapa-hávaði, fimbulrödd borgarinnar. Mörgum lét þessi rödd illa í eyrum. En í eyr- um Súsönnu hljómaði hún sem fegursta tónlist þenn- an morgun. „Vaknaðu, vaknaðu," hrópaði hún. „Vakn- aðu og njóttu lífsins!" Hún opnaði dyrnar til þess að heyra betur hávaðann — skröltið, öskrin, gaulin og bjöllukliðinn. Og fólkið! Það streymdi þúsundum saman eftir götunum „Vaknaðu — og njóttu lífsins!" Ysinn inni í setusalnum minnti hana á það, að hún var komin á leiðarenda og varð að fara á Læknirinn segir hann þurfa aö vera einn dag I rúminu og svo veröur hann góöur. Það verour þá I dag Marta! DENNI i; 'DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.