Fréttablaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 16
16 27. maí 2006 LAUGARDAGUR E in n t v e ir o g þ r ír 3 6 2 .0 13 SVfi - Samtök verslunar og fljónustu flakka sveitarstjórnum í landinu samstarfi› á flví kjörtímabili sem nú er a› lí›a og hvetja n‡jar sveitarstjórnir til a› n‡ta hin fjölmörgu tækifæri til a› búa fyrirtækjunum enn betri starfsskilyr›i. fia› ver›ur me›al annars gert me› flví • A› færa verkefni frá sveitarfélögum til einkarekinna fljónustufyrirtækja ef flau geta reki› verkefnin hagkvæmar. • A› vi› flróun skipulags ver›i tryggt nægt frambo› ló›a fyrir verslunar- og fljónustufyrirtæki á samkeppnisfæru ver›i. SVfi óska landsmönnum til hamingju me› daginn og hvetja fólk til a› n‡ta kosningaréttinn og a› hafa flannig áhrif á hverjir fara me› stjórn sveitarfélaganna næstu 4 árin. SVfi- Samtök verslunar og fljónustu eru málsvari verslunar- og fljónustugreina á Íslandi. Samtökin ry›ja n‡jum hugmyndum braut og koma á framfæri röksemdum fyrir jákvæ›u starfsumhverfi atvinnulífsins. Í tilefni dagsins VÍSINDI, AP Þó að 25 ár séu liðin síðan fyrstu alnæmisjúklingarnir voru greindir hafa vísindamenn fyrst nú fengið staðfestan gruninn um að HIV-veiran hafi upphaflega borist úr mannöpum í mannfólkið. Þetta kemur fram í bandaríska tímaritinu Science á föstudag. Vísindamenn hefur lengi grun- að að veiran kæmi úr simpönsum, en hingað til hefur enginn getað fært sönnur á það. Nú hefur veir- an fundist í simpönsum í Suður- Kamerún, en þeir eru í útrýmingar- hættu þó að HIV-veiran valdi þeim engum skaða. Yfir 1.300 saursýnum var safn- að úr öpunum, en áður höfðu vís- indamenn eytt sjö árum í að þróa leið til að erfðagreina vírusinn sem lifir í öpunum án þess að þurfa að taka simpönsunum blóð. Enn er óljóst hvernig veiran barst í mannfólkið, en líklegt þykir að mannapi hafi bitið íbúa í Kamerún eða að maður hafi skorið sig á meðan hann var að gera að mannapahræi og smitast þannig. Veiran hafi síðan borist um allan heim með þeim hætti sem hún smitast nú. Læknar telja að fyrstu alnæmisjúklinganna hafi orðið vart í Kongó árið 1930. - smk Vísindamenn staðfesta gamlan grun um HIV: Kom úr mannöpum MANNAPAMÓÐIR Vísindamenn hafa staðfest að HIV-veiran barst úr mannöpum í fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NÝFÆTT JARÐSVÍN Jarðsvínið Paatsy er nýjasta viðbót Brookfield dýragarðsins í Illinois í Bandaríkjunum, en hún fæddist 30. mars síðastliðinn. Jarðsvín eru afrískar mauraætur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍBÚÐALÁN Eftirstöðvar íbúðalána hafa hækkað verulega á örskömm- um tíma, jafnvel svo nemur millj- ónum króna, eftir því hver upp- hafleg fjárhæð lánsins var og til hversu langs tíma það var tekið. Hækkun eftirstöðva getur skipt hundruðum þúsunda króna og jafnvel allt upp í milljón. Hjá Glitni fást þær upplýsing- ar að 10 milljóna króna lán, sem tekið var 1. júní í fyrra miðað við 7,5 prósenta verðbólgu í eitt ár aftur í tímann, standi nú í tæplega 10,2 milljónum króna hafi lánið verið tekið til 25 ára með jöfnum mánaðarlegum afborgunum. Ef lánið hefur verið tekið til 40 ára með jöfnum mánaðarlegum afborgunum stendur það í rúm- lega 10,3 milljónum króna. Hjá Kaupþingi banka eru eftir- stöðvar af 10 milljóna króna láni sem tekið var í maí í fyrra með 4,15 prósenta vöxtum og jöfnum afborgunum nú tæplega 10,3 millj- ónir króna hafi það verið tekið til 25 ára. Hafi það verið tekið til 40 ára eru eftirstöðvarnar rúmar 10,4 milljónir króna. Hafi lántaki fengið 25 milljónir króna að láni til 25 ára eru eftir- stöðvarnar nú ríflega 25,7 milljónir króna og 40 ára lánið stendur nú í rúmlega 26,1 milljón. Það er hækk- un upp á 1,1 milljón. - ghs Eftirstöðvar íbúðalána hafa hækkað verulega á aðeins einu ári: Skipta hundruðum þúsunda HÖFUÐSTÓLLINN HÆKKAR Íbúðalán tekið hjá Kaupþingi banka í maí í fyrra með 4,15 prósenta vöxtum og jöfnum af- borgunum. Annars vegar er það 10 milljónir og hins vegar 25 milljónir króna. 10 millj. 25 ár Eftirstöðvar 10.299.977 10 millj. 40 ár Eftirstöðvar 10.440.359 25 millj. 25 ár Eftirstöðvar 25.749.945 25 millj. 40 ár Eftirstöðvar 26.100.894 Eins og sjá má er 25 milljóna króna lán sem tekið var til 40 ára í maí í fyrra búið að hækka um rúma 1,1 milljón króna á einu ári. 10 milljóna króna lán hefur hækkað um tæplega hálfa milljón. ÁFENGI Einn áfengur drykkur á dag getur komið í veg fyrir hjartasjúkdóma hjá karlmönn- um, en ekki hjá konum, sam- kvæmt nýrri danskri rannsókn sem fjallað var um í breska læknatímaritinu British Medical Journal í vikunni. Rannsóknin náði til 50.000 manna og kom í ljós að karlar sem drukku daglega voru 41 pró- sentum minna líklegir til að fá hjartasjúkdóma, á móti 7 pró- senta minni líkum hjá þeim sem drukku einu sinni í viku. Sérfræðingarnir sögðu að óhófleg drykkja væri eftir sem áður óholl fyrir bæði kynin. - smk Hjartasjúkdómarannsókn: Áfengisdrykkja hollari körlum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.