Fréttablaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 66
27. maí 2006 LAUGARDAGUR46
EINS OG JAPÖNSK GEISHA Leikkonan Cate
Blanchett sést hér á frumsýningu myndarinnar
Babel sem hún leikur aðalhlutverkið í ásamt
Brad Pitt. Hún var í fallegum svörtum og hvít-
um kjól úr smiðju Alexanders McQueen.
FLAMENCO-HITI Í CANNES Spænski
dansarinn Joaquin Cortes er hér mættur
ásamt unnustu sinni, spænsku fyrirsætunni
Marisa Jara. Hún er í sægrænum síðkjól og
hann er svartklæddur. Takið eftir skónum,
sem eru með óvenjulega háum hæl.
FALLEGAR MEÐ EINDÆMUM Leikkonurnar
Halle Berry og Rebecca Romijn voru mætt-
ar á frumsýningu X-Men 3: The Last Stand
en þær leika báðar í myndinni og voru að
vonum ánægðar með sitt. Þær stöllur eru í
stíl í gulllituðum kjólum.
Mikið hefur verið um dýrðir í Cannes þessa vikuna en kvikmyndahátíðin er
haldin í 59. skipti í ár og flykkjast stjörnurnar til Frakklands. Úti um allt eru
partí og auðvitað hver frumsýningin á fætur annarri. Rauði dregillinn er því
til staðar með tilheyrandi ljósmyndurum og allir kappkosta að skarta sínu
fegursta. Kjólarnir eru í forgrunni og mikið um skemmtileg og tilraunakennd
snið og fallega liti. Fjölbreytni var áberandi og kjólarnir jafnt stuttir sem síðir.
Hátískuhönnuðir á borð við Dior, Versace og Balmain settu sinn svip á hátíð-
ina sem og minna þekktir hönnuðir. Látum myndirnar tala sínu máli.
HÖNNUÐUR MEÐ PUTTANA Á PÚLSINUM
Bandaríski hönnuðurinn Tommy Hillfiger
er hér mættur á hið árlega Grisogno-partí
í Cannes. Hvítar buxur og dökkblár blazer
klikka sjaldan.
SKUGGALEG SAMAN Rokkarinn Marilyn Man-
son og kærasta hans, fyrirsætan og dansar-
inn Dita Von Teese, voru svartklædd frá toppi
til táar fyrir utan smá rautt þema sem greina í
skónum hans og blóminu hennar.
RAUÐI DREGILLINN
Á CANNES-HÁTÍÐINNI
HJÓLABRETTASTELPAN OG SÖNGKONAN
AVRIL LAVIGNE Avril var mætt til frumsýn-
ingar teiknimyndarinnar „Over the Hedge“
en hún ljáði rödd sína í myndinni. Hún var
í flottum röndóttum kjól úr smiðju Giorgio
Armani.
Í SILFRI FRÁ TOPPI TIL TÁAR Paris Hilton var
mætt til að sjá frumsýningu myndarinnar
X-Men 3. Hún er þekkt partíljón og lætur
sig sjaldan vanta á rauða dregilinn.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
SVART ER LITURINN Hönnuðurinn Roberto
Cavalli var mættur í hið árlega Grisogno-
partí með Camillu Al-Fayed. Hann er í
fallegum svörtum jakkafötum og hún í
dimmbláum hippalegum kjól.
SÆT Í BLÁU Leikkonan unga Anna Paquin
mætir hér á frumsýningu myndarinnar
X-Men í flottum turkísbláum kjól með
einum hlýra.
FEGURÐARDROTTNING Leikkonan Halle
Berry er hér á frumsýningu myndarinnar
X-Men 3 og er hún glæsileg í fallegum
gulllituðum kjól og er berustykkið alsett
skrauti.
X-FÓLKIÐ KOMIÐ AFTUR Leikararnir Famke
Janssen og Hugh Jackman koma á frum-
sýningu X-Men 3. Janssen er í fallegum
hvítum síðkjól og hann í hefðbundnum
svörtum jakkafötum.
FRASIER MÆTTUR Á SVÆÐIÐ Leikarinn
góðkunni Kelsey Grammer og kona hans
Camille Grammer voru mætt á frumsýn-
ingu myndarinnar X-Men 3: The Last Stand.
Hann leikur einmitt blátt loðið skrímsli í
myndinni og því ekki annað við hæfi en að
hjónin voru í bláu í stíl, hún í bláum kjól og
hann með blátt bindi.
JAÐARDROTTNINGINN Leikkonan Chloë
Sevigny sést hér á frumsýningu myndar-
innar Babel. Hún er í flottum blöðrulaga
svörtum kjól og poppuðum skóm í stíl.
Smart eins og henni einni er lagið.
DA VINCI LYKILLINN Franska leikkonan Audrey Tautou leikur aðalhlutverkið í myndinni Da
Vinci lyklinum og er hér á frumsýningu myndarinnar ásamt leikstjóranum Ron Howard.
Hún var í flottum stuttum hvítum kjól úr smiðju Balmains og silfurlituðum skóm.