Tíminn - 04.11.1977, Side 3
Föstudagur 4. nóvember 1977
3
Kirkjukór Akraness
syngur í Betlehem
starf I þvi skyni. En auðvitaö
verður það fé sem safnazt hefur
aðeins dropi i hafið fyrir þennan
60 manna og kvenna kór. En þessi
starfsemi hefur sýnt okkur, aö
það verður samstilltur hópur,
sem fer þessa för, staöráöinn i að
gera hana sem bezta á allan hátt.
Okkur er það ljóst, að er til
Israel kemur erum viö ekki að-
eins Akurnesingar heldur íslend-
ingar fyrst og fremst.
Fjáröflunin hefur aö mestu ver-
iö með sama hætti og hjá öðrum
félagasamtökum. Basarar, flóa-
markaðir, skemmtun með blönd-
uðu efni. Gefið var út auglýsinga-
blað og ennfremur stóðu kór-
félagar vaktir fjórar helgar við
mannvirki á Grundartanga.
Munu flestir meðlimir kórsins
hafa komið þar við sögu.
í sambandi við þetta má sér-
staklega geta höfðinglegrar gjaf-
ar, sem barst á liönu sumri frá
Félagi borgfirzkra kvenna i
Reykjavik, en þær sendu 100 þús-
und krónur aö gjöf til fararinnar.
Sýnir þetta frábæra ræktarsemi
og áhuga á menningarmálum
heimahéraösins.
Það þarf mikiö átak til að
hrinda i framkvæmd svona ferö
og margt sem athuga þarf. Meöal
annars hafa kórfélagar komið sér
upp sérstökum klæðnaði til að
koma fram i við söng. T.d. munu
konur veröa klæddar batikkjól-
um, sem hannaðir voru sérstak-
lega fyrir þetta tækifæri af frú
Katrinu Agústsdóttur, en konur i
kórnum önnuðust saumaskapinn.
Framundan er svo jólabasar
með handunnum munum eftir
kórfélaga. Siðast en ekki sizt
verða svo að sjálfsögöu tónleikar
á vegum kórsins áður en haldiö
verðurutan. Söngstjóri kórsins er
Haukur Guðlaugsson.
AS-Mælifelli, 3/11. Undir náttmái
sl. þriðjudag urðu hjónin á Vala-
gerði f Seyluhreppi i Skagafirði
elds vör í fjárhúshlöðu, sem er
skammt frá bænum. Höfðu þau
þegar samband við slökkviliðið i
Spari-
sjóðurinn
í Kefla-
vík 70 ára
Mánudaginn, 7. nóv. voru liðin 70
ár frá stofnum Sparisjóðsins i
Kefiavik. Aðaihvatamenn að
stofnun sjóðsins voru: Þorgrimur
Þórðarson, læknir í Kefiavik og
Kristinn Danielsson, prestur að
Útskálum.
Sparisjóðurinn i Keflavik er
einn af öflugustu sparisjóöum
landsins. Innistæður viðskipta-
manna eru yfir 1600 millj. króna.
Stjórnarformaöur er Þorgrim-
ur St. Eyjólfsson, en sparisjóðs-
stjórar eru: Páll Jónsson og
Tómas Tómasson.
Gatnagerðarframkvæmdir
fyrir útsvarstekjurnar
áþ-Rvik. Miklar gatnagerðar-
framkvæmdir hafa verið á Sauö-
árkróki I sumar. Þekja var steypt
og malbikuð að hluta á hafnar-
garðinum, þannig að nú er komið
varanlegt slitlag frá höfninni og
að frystihúsum bæjarmanna.
Unnið er samkvæmt tiu ára
áætlun sem hófst i fyrra og eru
framkvæmdir aðeins á eftir
áætlun. Þess ber þó að geta að
þær götur sem voru teknar fyrir i
sumar, reyndust erfiðar viður-
eignar, þar sem skipta þurfti bæði
um jarðveg og allar lagnir i þeim.
Jarðvegsskiptingin og endur-
nýjun á lögnum nemur um það bil
60 til 70% af heildarkostnaði.
Þekjan er 200 metra löng og 15
metra breið, hún var siðan tengd
með varanlegu slitlagi við
Heiðarveg, en hann var mal-
bikaður I sumar.
— Hafnarsvæðið hefur alveg
gjörbreytt um svip, sagöi Þórir
Hilmarsson bæjarstjóri á Sauðár-
króki. — Við erum núna búnir aö
malbika að frystihúsunum og
sláturhúsinu, og það á eftir aö lita
betur út kringum húsin næsta
haust, þegar búið verður aö
snyrta til i kringum þau.
Gatnagerðin I ár, ásamt fram-
Framhald á bls. 23
Varmahliö og kom það að vörmu
spori, en skammt að fara. Eldur-
inn var orðinn það magnaður, er
hans varð vart, að hlaðan gjör-
eyðilagðist, — sjö ára hús, sem
tók á áttunda hundrað hesta og
var troöfullt upp i mæni I hey-
skaparlok i haust.
1 gær kom i ljós, hjónum i Vala-
gerði, Hauki Ingvarssyni og Val-
disi Gizurardóttur, til mikillar
undrunar, að heyið var vátryggt
en hlaðan ekki. Eru orsakir þær,
að fyrir nokkrum sumrum vá-
tryggðu þau hey og hafa siðan
endurnýjaö þá tryggingu með af-
gjaldi árlega, en þau álitu aö þau
væru að greiða iðgjöld af útihús-
um.
A nágrannajörðinni, Valadai,
sem hefur verið nytjuð án fastrar
búsetu sl. fimm ár, eru ágæt fjár-
hús og hlaða. I ráði er að Vala-
gerðisféð veröi haft þar að mest-
um hluta i vetur, og heyinu, sem
til verður keypt, komið þar fyrir.
A það má minna, sem frá var
sagt I blaðinu þann 20. september
sl., að hlöðubruni varð á Bjarma-
landi I Lýtingsstaðahreppi, en þar
býr Jóhanna Björnsdóttir móðir
Hauks I Valagerði. Fé hennar
haföihann tekið vegna heybrunans
hjá henni.
Kirkjukór Akraness undirbýr
nú ferð sina til Landsins helga.
En sem mörgum mun kunnugt
var honum boðið um siðustu jói,
aö syngja við jólahátiðina i Betle-
hem. Ekki varð þó af þvi að kór-
inn gæti þegið boðið i það sinn, en
nú er unnið af fullu kappi við æf-
ingar og annan undirbúning.
Kórinn hefur meðal annars
staðiö fyrir fjáröflun á liðnu ári
og hafa félagar lagt fram mikiö
Viktor Pikaizen fiðluleikari, Alexei Krassilnikof fyrsti sendifuiitrúi Sovétmanna hér á landi, tvar Jóns-
son formaöur MtR, Evgenia Seidel pianóleikari og Veronika Kazbanova söngkona. Mynd: Haukur Már
— Sovézkt listafólk og fyrsti sendifulltrúinn hér
komin í heimsókn af því tilefni
SJ-Reykjavik. 60 ára afmæiis
Októberbyitingarinnar i Rúss-
landi veröur minnzt á hátiðar-
fundi og tónleikum i Austur-
bæjarbiói laugardaginn 5.
nóvember kl. 14.
I upphafi samkomunnar flytja
stutt ávörp þeir Einar Agústsson
utanrikisráðherra, Antoni
Szymanowski sendifulltrúi Pól-
verja, Bjarni Þórðarson fyrrum
bæjarstjóri i Neskaupstað og
prófessor Alexei Krassilnikof
fyrsti sendifuiltrúi Sovétrikjanna
á Islandi, en hann starfaði hér á
árunum 1943-46, hann er einn af
varaformönnum félagsins Sovét-
rikin-Island.
Sérstakir gestir eru komnir
hingað frá Sovétrikjunum I tilefni
byltingarafmælisins og koma þau
fram á hátiðarfundinum. Þau eru
Viktor Piakaizen, einn fremsti
fiðluleikari Sovétmanna og
margverðlaunaður sem sllkur,
Veronika Kazbanova einsöngvari
hjá Moskonsert og Evgenia Seidel
pianóleikari, kunn listakona og
undirleikari. Þau héldu einnig
tónleika i Fjölbrautaskólanum á
Akranesi I gærkvöldi.
A hátiðarfundinum koma
einnig fram islenzkir og tékk-
neskir listamenn. Pavel Smid
leikur á rafmagnsorgel, tékk-
neskt-islenzkt trió flytur verk eft-
ir Bach, en trióið skipa þau Anna
Rögnvaldsdóttir, Stefan Sojka og
Violeta Smidova.Fjögur félög
gangast fyrir hátiðarfundinum og
tónleikunum i Austurbæjarblói:
Tékknesk-íslenzka félagið.
Félagið Island—DDR, Pólsk-is-
lenzka félagiö og MIR, ásamt
sendiráðum viðkomandi rikja.
Aögangur að samkomunni og
tónleikunum er öllum heimiil og
ókeypis.
Prófessor Alexei Krassilnikof
starfar nú viö háskóla I stjórn-
málafræðum og alþjóðaviðskipt-
um iMoskvu. A blaðamannafundi
vegna byltingarafmælisins
minntist hann erfiðrar sóknar
Sovétrikjanna til að skipuleggja
stórveldi sitt, styrjaldir heföu
verið þar þrándur i götu, en nú
ættu Sovétmenn 20% aðild að iðn-
framleiðslu heimsins i staö 4%
1913. Hann gat þess einnig að 25%
af öilum læknum i heiminum
væru sovézkir.
Framhald á bls. 23
Konur úr kórnum við vinnu á batikkjólunum.
Verzlunarráð þingar um ný-
sköpun íslenzkra f jármála
GV-Reykjavik. 1 gær var sett viðskiptaþing Verzlunarráös íslands
I Kristalsal Hótel Loftleiöa og stendur ráðstefnan I tvo daga. Ráð-
stefnustjóri er Albert Guðmundsson alþingismaður og varafor-
maður V í. GIsli V, Einarsson formaður VI. setti ráöstefnuna og
næstur flutti Geir Hallgrimsson ávarp. Gisli V. Einarsson flutti þá
stefnuræðu og f jallaöi i henni um nýsköpun Islenzkra f ján^ála.
1 ræðu sinni setti Gisli fram
drög að tillögu um nýskipan
fjármagnsmarkaðar á íslandi,
sem skiptast i sjö aðalatriði:
Tillögu um bretingar á starfs-
semi Seðlabankans, að laga-
ákvæðum um vexti i viöskiptum
þurfi að breyta I lögum um
lausafjárkaup og I lögum um
bann við okri.dráttarvexti, o.fl.
Að lögum um verðtryggingu
fjárskuldbindinga verði breytt,
að i lögum um erlendar fjártök-
ur eru settar hömlur sem þarf
að afnema. Að rýmka skuli
ákvæöi i ýmsum sérlögum um
atvinnugreinar, um erlendan
eignarhluta i félögum, að al-
menn þátttaka I atvinnustarfs-
semi verði aukin og tillögur um
hvernig það geti oröiö. Að lok-
um talaði GIsli um i þessu sam-
bandi útlánakjör fjárfestinga-
cíóða oe brevtingar á þeim, ef
gerðar yrðu þær breytingar á
fjármagnsmarkaði sem áöur
voru raktar.
A ráðstefnunni var siðan fariö
nánar út i þau atriði, sem Gisli
rakti i ræðu sinni. Ólafur B.
Ólafsson flutti erindi um þjón-
ustu innlendra lánastofnana við
atvinnulifið. Þá flutti næstur er-
indi Viglundur Þorsteinsson og
fjallaði hann um spurninguna:
Hverjir hafa aðgang að erlendu
fjármagni. Erindi Ottós
Schopka var um grundvallar-
skilyröi eðlilegs fjármagns-
markaðar á Islandi. Fyrri ráð-
stefnudeginum lyktaði með hóp-
umræöum i sjö hópum:
1. Þjónusta viöskiptabank-
anna við atvinnulifið
2. Lánasjóöir og opinber fjár-
skömmtun
3. Erlent fjármagn, eðlileg
fjármögnun
4. Seölabankinn og stjórn
peningamála.
5. Fjárfesting, arðsemi og
hagvöxtur
6. Skilyrði og þörf veröbréfa-
markaðar
7. Vextir, visitölubinding og
verðbólga.
Siöari ráöstefnudaginn flytur
Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri ræöu. Þvi næst munu um-
ræðuhópar skila niðurstöðum.
Siðan verða pallborösumræöur
um: Er þörf á nýsköpun is-
lenzkra fjármála? Þátttakend-
ur eru: Benedikt Gröndal, Jón
Skaftason, Lúövik Jósepsson,
Magnús Torfi ólafsson og Ólaf-
ur G.Einarsson. Spyrjendur eru
Höskuldur Ólafsson og önundur
Asgeirsson. Ráðstefnunni lýkur
með almennum umræöum og
verða þá ályktanir afgreiddar.
60 ára afmælis Október-
byltingarinnar minnzt
Hlöðubruni í
Seyluhreppi