Tíminn - 04.11.1977, Blaðsíða 24
Höfnin á Grundartanga ætti aö
veröa fullgerð innan tveggja
ára. Timamynd: Gunnar.
fiMitm Föstudagur 4. nóvember 197' ’s ■ 18-300 Auglýsingadeild Tímans.
Fjögui :a ára áæt
um ha: f] narsrerðir
Marks og Spencer
HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI
YTRIFATNAÐUR
Sýrö eik
er sígild
eign
A ” A 1»U&GQGil
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 - SÍMI: 86822
KEJ-Reykjavik — Út er komin á
vegum Hafnamálastofnunar
rikisins fjögurra ára áætlun um
hafnargeröir, eöa fyrir árin
1977-1980. Samtimis hefur ríkis-
stjórnin lagt fyrir Alþingi þings-
ályktunartillögu þess efnis, aö
Alþingi álykti aö stefnt skuli aö
þvi aö verja tii almennra hafnar-
framkvæmda á tímabilinu
1977-1980 fjárhæöum sem svara til
rikishluta I framkvæmdum þeim
sem áætlun Hafnamálastofn-
unarinnar gerir ráö fyrir.
Igreinargerö með frumvarpinu
segir: „Rétteraö vekja athygli á,
aö áætlunin nær aðeins til svo-
kallaöra almennra hafna, sem
yfirleitt njóta 75% rlkisframlags.
Hún nær hins vegar ekki til fram-
kvæmda við landshafnir og ferju-
hafnir, sem greiddar eru aö fullu
af rikissjóöi, og heldur ekki til
Reykjavikurhafnar, sem greiðir
sjálf allar sinar framkvæmdir.
Loks nær ályktunin ekki til fram-
kvæmda viö höfn á Grundar-
tanga, — en þótt sú hafnargerð
falli undir hafnarlögin aö öllu
leyti, er hún nokkuð sérstaks eölis
og veröur um sérstaka fjáröflun
til hennar að ræöa”.
t inngangi aö áætlunum i
hafnargerö segir að þar sé
mörkuö stefna framkvæmda i
hafnagerö á næstu fjórum árum.
„Áætluninni er ætlað aö auö-
velda þingmönnum skoðana-
myndun, og gefa þeim hugmynd
um þarfir hafnanna I heild.
Ákveðin áætlun er forsenda
þess, að hægt sé aö undirbúa verk
þannig aö viö verði unaö.
Hönnun , rannsóknir og kaup á
efni krefst mikils tima. Akvarö-
anir eitt ár fram I timann er
skemmsti tlminn sem nauðsyn-
legur er. Skyndiákvaröanir um
framkvæmdir valda þvi, aö verk
eru unnin á slæmum tima, I
vetrarveörum, án fullnægjandi
rannsókna, hönnunar og skipu-
lags. Niöurstaðan getur oröiö
gölluö og dýr mannvirki.
Hafnamálastofnuninni er nauö-
syn aö hafa ákveöna áætlun nokk-
Ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga:
Fagnar f jögurra
ára áætluninni
um hafnargerðir
F.l. Reykjavík. — Eins og skýrt var frá í blaðinu fyrir
skömmu var áttundi ársfundur Hafnasambands sveitar-
félaga haldinn á Húsavík dagana 31. okt. — 1. nóv. s.l.
Auk venjulegra fundarstarfa var lögö fram 4ra ára
áætlun um hafnargerðir 1977 til 1980« sem Hafnamála-
stofnun ríkisins hef ur gef ið út. I frétt frá f undinum seg-
ir, að fundarmenn hafi fagnað áætluninni og látið í Ijós
óskir um, að við gerð f járlaga verði miðað við, að fram-
kvæmdamagn áætlunarinnar haldist.
Er skoraö á Hafnamálastofnun aö
gera tillögur um samræmdan raf-
búnaö I þvi sambandi.
Þá voru geröar tillögur um
bætta gjaldtöku- og afgreiöslu-
hætti viö strandflutninga og betri
innheimtu hafnargjalda. Varnir
gegn oliumengun voru einnig á
dagskrá.
Fundinn sóttu 63 fulltrúar og
gestir. Stjórn Hafnasambandsins
var endurkjörin, en formaöur
hennar er Gunnar H. Guðmunds-
son, hafnarstjóri i Reykjavik.
Aörir i stjórn eru Bolli Kjartans-
son bæjarstjóri tsafiröi, Siguröur
Hjaltason, sveitarstjóri Höfn i
Hornafirði, Haukur Haröarson,
bæjarstjóri Húsavik og Alexand-
er Stefánsson, oddviti á Ölafsvik
tilnefndur af stjórn Sambands is-
lenzkra sveitarfélaga.
Nótaskip
keypt frá
Færeyjum
áþ-Rvik. i gærmorgun kom til
Grindavfkur 326 tonna skip, sem
Festi h/f keypti frá Færeyjum.
Skipiö er eingöngu útbúiö fyrir
nótaveiöar og er þriggja ára
gamalt. Aö sögn Erlings
Kristjánssonar skipstjóra og eig-
anda skipsins tekur þaö 390 tonn i
tank og einnig er hægt aö koma
fyrir rúmum eitthundraö tonnum
á millidekki. Skipiö kostaöi 312
milljónir króna og er áhöfnin 14
manns.
Fundurinn samþykkti tillögur i
sjö liöum, þar á meöal um 40%
hækkun gjaldskrár til samræm-
ingar viö veröhækkanir, sem orö-
iö hafa, og tillögu um að komiö
veröi upp aöstööu fyrir raforku-
sölu til skipa á hafnarsvæöum.
ur ár fram I tímann til að geta
gegnt hlutverki sinu á viðunandi
hátt.
Meö áætluninni veröur hafnar-
stjórnum ljóst hvaða verk eru
framundan, hvenær og hversu
mikla fjárfestingu er um aö ræöa.
Ef þeim finnst aö sinum málum
hafi ekki veriö sinnt, gefst þeim
tækifæri til aögeröa. Útgerðar- og
fiskvinnslustöövar sjá hvaö
framundan er, og auöveldar það
þeim ákvaröanir um fjárfestingu
og framkvæmdir”.
Þá segir um fyrri fjögurra ára
áætlanir, að í hinni fyrstu fyrir
árin 1969-1972, hafi veriö lögö
höfuöáherzla á aö gera grein fyrir
hafnarmálum á breiðum grund-
velli.
„Aætlunin 1969-1972 var frum-
áætlun og gafst ekki timi til að
ræöa verkin viö hafnastjórnir.
Um leiðbeiningar varðandi fjár-
útveganir var þar aö ræöa, en
ekki þingsályktun.
1. janúar 1974 gengu i gildi ný
hafnalög. Helztu nýmæli nýju
laganna eru þau, aö svonefnd
innri mannvirki, t.d. bryggjur og
viðlegukantar, uröu nú styrkhæf
með 75% framlagi rikissjóös I
stað 40% áöur. Hafnarmannvirki
voru nú almennt styrkt meö 75%
framlagi, en dráttarbrautir og
tæki hafna með 40% framlagi.
„Aætlunin er nú lögö fram sem
þingsályktunartillaga, en sam-
þykkt hennar mun festa mjög
áætlunina og gefur minni mögu-
leika til breytinga, þar sem Al-
þingi hefur þá lýst stefnu sinni i
hafnarmálum”.
Kostnaðarútreikningar sem
áætluninni fylgja eru allir mið-
aöir viö verölag áramóta 1976-77
og samkvæmt þeim er heildar-
kostnaðurinn viö almennar hafnir
nálega fimm og hálfur milljarö-
ur.
Byggð höfn á Grundartanga
KEJ-Reykjavik — A fjögurra ára
áætlunartimabili Hafnamála-
stofnunarinnar er gert ráö fyrir
aö verja mestu fé til hafnar-
geröar viö Grundatanga, fyrir
utan hafnargerö I Reykjavik, en
borgin stendur sjálf undir öllum
sinum hafnarframkvæmdum.
Ennfremur er áætlað aö verja
miklu fé, aö 429 millj. kr„ til
hafnargeröar á Akranesi.
Höfnin á Grundartanga veröur
byggö vegna málmblendiverk-
miðjunnar, hún mun heyra til al-
mennra hafna, og hefur aö
undanförnu veriö unnið aö rann-
sóknum hafnarstæðis og er
áætlað að höfnin veröi byggö á
næstu tveimur árum og kostnað-
urinn nemi nær hálfum milljarð
viö verölag áramóta 1976-77.
UM höfnina mun fara allt hrá-
efni til málmblendiverksmiðj-
unnar og framleiöslu hennar.
Einnig er ætlunin, aö um hana
fari aðrir almennir flutningar I
framtiöinni.
1 þingsályktunartillögu rikis-
stjórnarinnar um hafnargeröir
næstu f jögur árin er gert ráð fyrir
sérstakri fjáröflun til byggingar
hafnarmannvirkjanna á
Grundartanga.
200 hrygnur
og milljón
afkvæmi
áþ-Rvik. Undanfarna daga hafa
starfsmenn Laxeldisstöövarinnar
i Kollafiröi unniö aö hrognatekju.
Þegar hafa fengizt um 100 litrar
af hrognum, en þaö samsvarar
um 750 þúsund löxum. Verkinu á
aö ljúka um helgina og þá ættu aö
vera komnir 250 til 300 litrar eöa
rúmlega milljón laxar. Sala á
seiöum og laxi frá stööinni hefur
veriö mikil i sumar og taldi
stöövarstjórinn aö heiidarverö-
mætiöværu rúmar nitján milijón-
ir króna. Þaö nægir fyllilega til aö
greiöa starfsliöi stöövarinnar
kaup, en viðhald stöövarinnar er
mikiö og þvi er þörf á rlkisstyrk.
— Viö byrjuöum fyrir viku
siðan og höfum fengiö um 100 litra
sagöi Sigurður Þórðarson
stöövarstjóri. Að undanförnu höf-
um viö verið aö taka hrogn sem
hafa verið seld en eftir er aö taka
það sem viö notum sjálfir. Þvi
ætti aö ljúka I vikulokin. Hrogn
veröa tekin úr einum 200 hrygn-
um, en við höfum þegar tekiö
hrogn úr 55 eða 60 þeirra.
Sigurður sagöi aö yfirleitt væri
1,5 til 2 litrar af hrognum i hverri
hrygnu, þannig að lokum fær
stööin ellefu til tólf hundruö þús-
und seiöi. Stærsti laxinn er valinn
til undaneldis og eru þeir að
jafnaöi tiu til átján pund. Stærsti
kaupandinn á hrognum er
Stangaveiðifélag Rangæinga. Þá
kemur Þórir Kjartansson og
félagar, en þeir hafa klakhús
austur undir Eyjafjöllum. Seiði
og lax voru seld i sumar fyrir 19,3
milljónir.