Tíminn - 04.11.1977, Side 4
t,
Föstudagur 4. nóvember 1977
ÓLIK VINNUBRÖGÐ
Forstjóri SIS flytiír skýrslu á aöalfundi.
Ólik vinnubrögð
Þegar Svarthöföi tekur sig til
viB aö fræöa og upplýsa les-
endur Visis um samvinnumál,
vandar hann sig mjög. Til
sannindamerkis um þaö má
vitna til skrifa hans þann 27.
október. Hann vandar sig viö aö
hnoöa saman rakalausum
óhróöri og ósannindum I þeim
tilgangi aö ^leöja hilsbændur
sina og blekkja lesendur blaös-
ins. Heldur er þó framleiöslan
óhrjáleg og vafasamt að
árangur veröi sem erfiði.
Málflutningur Visis gefur
raunar tilefni til nokkurra
spurninga og athugasemda.
Glögg reikningsskil
Visir reynir aö læöa þvi inn hjá
almenningi, aö ekkert sé aö
marka reikninga Sambands isl.
samvinnufélaga. Þeir séu falsk-
ir og þar sé „möndlaö með töl-
ur” af skattasérfræöingi. Visir
ætlar almenningi aö trúa þvi aö
eiginlega séu Sambands-
reikningar óendurskoöaöir og
,,S1S hafi aldrei lotiö kritiskri
endurskoöun.”
Langt er siöan álika rógur
hefir veriö fluttur um starfsemi
samvinnumanna og hefir þó
stundum ekki verib viö nögl
skoriö.
Almenningur veit aö fá — eöa
jafnvel engin — stórfyrirtæki á
Islandi birta reikninga sina önn-
ur en Sambandið. Arsskýrsla
þess og reikningar voru gefin út
i 60 blaösiöna riti áriö 1976.
Reikningarnir eru lagöir fram á
aöalfundi Sambandsins þarsem
á annað hundraö fulltrúar eiga
sæti. Þeir eru sendir bönkum og
opinberum stofnunum, sem
skipulags- og fjármál annast.
Þeim er fylgt úr hlaöi og þeir
eru skýröir I itarlegri ræöu sem
forstjóri Sambandsins flytur
aöalf undarf ulltrúum.
Reikningar Sambandsins
hafa veriö endurskoöaðir tölu-
lega og gagnrýndir af löggilt
um endurskoöenda og þar aö
auki er fjallað um þá af kjörn-
um endurskoöendum í umboöi
aðalfundar hreyfingarinnar.
Hlutverk þessara aöila er ekki
aö falsa og blekkja, ekki aö
„möndla meö tölur” eins og
Vísir lætur þaö blákalt heita,svo
smekklegt sem þaö nú er.
Þaö er rétt aö Sambandið er
stórt og rekstur þess margbrot-
inn. Um þaö vitna reikningar
þess og ársskýrsla. Réttum
aðilum i þjóöfélaginu er llka
gerð greinfyrir umfangi þess og
hag og skattayfirvöld fá
óumbeöið sundurliðaöa greinar-
gerö um einstök atriði rekstrar
þess og mun sú skýrsla vera á
viö meðalþykka bók.
Ekki er hægt aö gera kröfur til
Vísis um vandaðan málflutning
þegar blaöiö tekur aö fjalla um
samvinnuhreyfinguna. Reynsla
margra áratuga hefir sýnt þaö
og af framanrituöu er ljóst aö
sjaldan bregöur mær vana sín-
um.
Hvar eru reikningsskil
heildsala?
Kaupmenn og heildsalar eiga
aö gegna vissu þjónustuhlut-
verki i þjóöfélagi okkar. Þeir
gera þaö á mismunandi hátt —
svo varlega sé til orða tekið.Þeir
eiga að hafa bókhald sem
fullnægir vissum lögum lands-
ins. Reikningsskil þessara aöila
til þjóöfélagsins og almennings
eiga aö vera trúverðug og glögg.
Þaö er ekki nóg þótt þeir láti
löggilta endurskoöendur vera
með viö frágang bókhalds.
Frumgögnin þurfa aö vera rétt
og tæmandi. Faktúrur eiga ekki
aö vera geymdar I tunnum. Um-
boðslaun erlendis eiga aö koma
til skila. Söluskattur á aö renna
til rlkissjóös og öll velta aö
koma fram.
Sennilega eru þessir hlutir I
góöu lagi hjá mörgum framan-
greindra aöila. A þeirra starfi
og vinnubrögöum samvinnu-
manna er hins vegar regin mun-
ur. Reikningar Sambandsins og
kaupfélaganna eru birtir öllum
þeim, sem hlut eiga aö máli.
Um þá er fjallað fyrir opnum
tjöldum. Þetta eru þær starfs-
reglur sem 40 þúsund félags-
menn samvinnufélaganna hafa
sett sér til að starfa eftir. Þessi
stóri hópur og raunar miklu
fleiri spyrja, HVAR ERU
REIKNINGAR KAUPMANN-
ANNA?
HVAR ERU REIKNINGSSKIL
HEILDSALANNA?
Samvinnumaöpr.
Viö flytjum starfsemi okkar
ÚRHÁTÚNJ
BORGARTUN
Hér bjóðum við gamla sem nýja
viðskiptavini velkomna í nýtt og
fullkomið húsnœði og afnot af
rúmgóðu bílastœði fyrir utan.
María á
Kirkjulæk
heldur
sýningu á
Selfossi
Maria Jónsdóttir, Kirkjulæk
I Fljótshlíö, opnar sýningu á
verkum sinum I Safnahúsinu
viö Tryggvagötu á Selfossi á
morgun laugardaginn 5. nóv.
næstkomandi.
Þetta er þriöja einkasýning
Maríu, og hér eru sýndar 86
myndir.
María er mjög fjölhæf I list
sinni, en mesta athygli munu
þó vekja þær myndir er hún
gerir úr muldu grjóti og þá
sérstaklega hestamyndir
hennar.
Sýningin verður opnuö kl.
14.00 — klukkan tvö — laugar-
daginn 5. nóvember og stend-
ur til 13. nóvember. Opið um
helgar, laugardaga og sunnu-
daga kl. 14.00-22.00, en virka
daga kl. 15.00-21.00. Aðgangur
er ókeypis.