Tíminn - 04.11.1977, Page 11
Föstudagur 4. nóvember 1977
n
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 80.00. Askriftargjald kr. 1.500 á
mánuði. Blaðaprenth.f.
Um það verður spurt
í lýðræðisriki með frjálsu athafnalifi og samn-
ingsrétti launþegasamtaka er það ljóst að allar
róttækar stjórnunaraðgerðir i efnahagsmálum
verða að njóta mjög almenns skilnings og atfylgis
ef þær eiga að ná fullum árangri. Þetta kom ljós-
lega fram á árinu 1974 þegar Framsóknarmenn
lögðu fram ýtarlegar tillögur um viðnám gegn
verðbólgunni. Þáverandi stjórnarandstaða
hljópst þá undan merkjum, og ekki náðist sam-
staða um stjórnarstefnu fyrr en að loknu þingrofi
og kosningum.
Þvi miður hefur reyndin orðið sú, að allmargir
hafa leikið þann leik að ýta undir verðbólguna i
von um stundargróða. Á það verður ekki of oft bent
að allt heiðarlegt ráðdeildarfólk tapar beinlinis á
verðbólgu. Skuldarar og sukkarar geta grætt um
hrið, en þegar dæmið verður gert upp mun einnig
spilaborg þeirra falla.
Nú er mikið um það rætt að verðbólgan muni
aftur taka kipp upp á við á næstu mánuðum i kjöl-
far þeirra kjaraákvarðana sem teknar hafa verið
á þessu ári. Það er ekki að efa að rikisstjórnin mun
leita eftir viðtæku samkomulagi um það að hjá
slikri öfugþróun verði komizt. Stjórnarstefnan
hafði náð þeim árangri á fyrra hluta þessa árs að
verðbólgan hafði gengið niður i sem næst 27% á ári
og án þess að atvinnuöryggi raskaðist.
Þetta er meiri árangur en rikisstjórnir
nágrannalandanna geta státað af flestar hverjar,
og einkum ef litið er til verðbólgunnar hérlendis
næstu árin á undan.
Á næstu mánuðum verður spurningin með öðr-
um orðum sú, hvort allur almenningur hefur gert
sér grein fyrir þvi sem I húfi er og er reiðubúinn til
þess að bera þær byrðar sem óhjákvæmilegar
verða. Þær byrðar eiga að geta verið léttbærar
vegna þess að með þeim er verið að leggja grunn
batnandi kjara og betri þjóðarhags, sé við það
miðað að þeim verði réttlátlega skipt. Og það skil-
yrði verður vitanlega að uppfylla.
í þessu efni verður ekki sizt tekið eftir viðbrögð-
um þeirra sem forystu hafa fyrir launþegasam-
tökum og samtökum atvinnuveganna. í hópi
þeirra verður m.a. fylgzt með viðbrögðum for-
ystumanna þeirra launþegafélaga sem á siðast-
liðnu vori notuðu sérkröfur sinar til þess að riðla
þeirri launajöfnunarstefnu sem samið hafði verið
um i almennum heildarsamningum.
Það kemur fyrir litið að krefjast þess að rikis-
stjórnin taki fast I taumana ef fjármagnseigendur
og launþegasamtökin leggjast á eitt um að toga
hver i sina áttina. Af sliku geta aðeins hlotizt átök
um það hver það er sem forystu á að hafa fyrir
þjóðfélaginu og stefnu þess, en þannig yrði nauð-
synlegum viðbrögðum við vanda efnahags-
málanna slegið á frest. Og sá frestur getur orðið
dýrkeyptur.
Þeir sem hafa gert sér fulla grein fyrir skaðan-
um sem hlýzt af óðaverðbólgunni vita að hún vinn-
ur gegn ráðdeildarfólkinu, gegn viðskiptalegum
heiðarleika, dugnaði, sparsemi og nýtni. Á þessum
eiginleikum byggist hvert það þjóðfélag sem hvilir
á traustum grunni. Þjóðfélag skuldarans, sukkar-
ans, braskarans og letingjans er reist á sandi.
Fyrstu veður munú brjóta það niður.
Á næstu mánuðum verður spurt hversu margir
og áhrifarikir þeir eru sem raunverulega vilja
takast á við verðbólguna. Rikisstjórnin mun leita
atfylgis þeirra við aðgerðir sinar.
JS
ÍÍUiM'Íi
ERLENT YFIRLIT
Klofnar Júgóslavía
við fráfall Titós?
Pjóðernisvandamál valda ágreiningi hans
og konu hans
HUNG
RUMANIA
Total popúlation:
21,560,000,
SLOVENIA
.1,792,000
N\ BOSNIA & “7
1HERZEGOVINA.
\ 4,029,000 \
SERBIA
8,860,000
4,530.000
MACEDONI
1,784,000.
565,000
Uppdráttur, sem sýnir fylkin sex i Júgöslavfu og Ibúatölur
FJÖLMIÐLAR ræöa fátt
meira um þessar mundir en
ágreining þann, sem bersýni-
lega hefur risið milli Titós og
konu hans og leitt hefur til
þess, að hún hefur veriö höfð I
eins konar stofufangelsi und-
anfarna mánuði og hvergi
fengið að koma fram opinber-
lega. Helzt virðist það orðin
niðurstaðan, að þjóð-
ernismál hafi valdið
ágreiningi þeirra.
Kona Titos, Jovanka Broz
Titó, er Serbi að ætt, alin upp
i fjallahéraði I Króatiu, þar
sem Serbar eru allstór minni-
hluti. Jovanka, sem er 32 ár-
um yngri en hinn 85 ára gamli
eiginmaður hennar, er hjúkr-
unarkona að menntun. Hún
gerðist skæruliði siðustu ár
heimsstyrjaldarinnar og bar
þá saman fundum hennar og
Titós og giftust þau skömmu
siðar. Jovanka var þá og hefur
verið siðan eldheitur serb-
neskur þjóðernissinni og
hefur viljaö tryggja yfirráö
Serba í Júgóslavíu, en þeir eru
fjölmennasta þjóðin þar, en
alls eru þær sex talsins. Tltó er
hins vegar Króati aö uppruna
og markmið hans hefur verið
aö halda þessum þjóðum sam-
an á jafnréttisgrundvelli.
Þannig hafa allar stöðuveit-
ingar innan flokksins og rlkis-
kerfisins miðazt viö þaö.
Jovanka er talin hafa farið
dult með skoðanir sinar eftir
að hún giftist Titó, en hins
vegar hafi boriö á þvi siðustu
misserin, að hún hafi reynt að
hafa áhrif á mikilvægar stöðu-
veitíngar á þann hátt, að hlut-
ur Serba yrði meiri en áöur.
Þetta á hún að hafa gert á bak
við Titó og hann brugðizt illa
við, þegar honum bárust
fregnir af því. Viðbrögö hans
hafi orðið aö einangra konu
sina og hætta öllum skiptum
við hana.
HVAÐ, sem hæft kann að vera
i þessu, spá flestir þvi, að
miklar þjóðernisdeilur muni
blossa upp við fráfall Titós.
Það er þvi engan veginn ólik-
legt, að Jovanka hafi viljað
treysta hlut Serba áður en til
þess kæmi. Júgóslavia skipt-
ist nú i sex fylki, sem hafa
talsverða heimastjórn.
Fylkjaskipunin fer í stórum
Titó fær sér sneið af afmæliskökunni, sem Jovanka gaf honum,
þegar hann varð 84 ára.
dráttum eftir búsetu hinna sex
þjóða, sem eru I landinu (sjá
meðfylgjandiuppdrátt). Ibtíar
Júgóslaviu eru alls tæpar 22
milljónir og eru Serbar lang-
fjölmennastir eða tæpar 9
milljónir. Næst koma Króatar,
sem eru 4,5 milljónir. Fyrir
fyrri heimsstyrjöldina nutu
aðeins Serbla og Montenegro
fulls sjálfstæðis, en hin fylkin
voru hluti austurriska keis-
aradæmisins. Þau voru þá
sameinuð Serbiu gegn vilja
ibúanna, enda uröu Serbar
brátt mestu ráðandi I hinu
nýja ríki, sem hlaut nafnið
Júgóslavla. Sterk þjóðernis-
hreyfing myndaöist þvl hjá
öllum þessum þjóöum. Serbar
kepptu að þvl að halda yfir-
ráðum slnum, en hinar þjóð-
irnar kröfðust meira sjálf-
þeirra.
stæöis, einkum þó Króatar.
Titó hefur reynt aö koma á
meira jafnræði milli þjóö-
anna, eins og áöur segir, og
hefur honum tekizt það furðu
vel til þessa. Hvað eftir annaö
hefur hann þó á sfðari árum
gripið til hreinsana I kommún-
istaflokkum hinna einstöku
fylkja sökum þess, aö þjóö-
ernissinnar hafa verið búnir
að koma sér I valdastöður þar.
EINS og áður segir, er Titó
orðinn 85 ára gamall og á því
vart langt eftir. Sá ótti virðist
nokkuð almennur, að þjóð-
emishreyfing muni magnast I
öllum fylkjum Júgóslavíu við
fráfall hans og ekki er óllklegt
að Jovanka hafi haft það I
huga, ef það er rétt, að hún
hafi verð að reyna að styrkja
stöðu Serba. Sumar ágizkanir
eru á þá leiö, að Rússar kunni
að róa undir, þvl að þeir vilja
gjarnan innlima Júgóslavlu I
áhrifasvæði sitt. Samkvæmt
þessum ágizkunum leita
Rússar helzt eftir samstarfi
við Serba, og láta llklega um
stuöning við þá. Bandarlkja-
menn og Vestur-Evrópumenn
myndu illa una þvl, ef RUssum
tækist aö ná undirtökunum I
Júgóslavíu. Það vakti þvl
verulega athygli á dögunum
þegar Harold Brown, varnar-
málaráðherra Bandarlkjanna
kom I heimsókn tíl Belgrad og
ræddi við varnarmálaráð-
herra JUgóslaviu og fleiri yfir-
menn hersins. Varnarmála-
ráðherra frá Natdrlki hefur
ekki áður heimsótt Júgósla-
vlu. Talið er, aö Titó hafi meö
þessu viljað láta RUssa fá
vissa viðvörun um aö fara sér
hægt. Titó þykir hins vegar
óllklegur til að semja við
Bandarlkin um varnarmál.
Stjómlist hans hefur veriö
fólgin I þvi að ánetjast hvorki I
austrieða vestri, en hafa vin-
samleg sambönd ibáðar áttir.
Þetta hefur honum tekizt
furöu vel. Spurningin er, hvort
eftirmenn hans geta leikið
þetta eftir honum.
Þ.Þ.