Tíminn - 09.12.1977, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 9. desember 1977
Fyrir nokkru varð stórtjón af
eldi i togaranum Arnari frá
Skagaströnd. Beina tjónið var
þó smámunir miðað við það
óbeina tjón, sem þessi bruni
veldur. Siðan hefur enginn
fiskur borizt i frystihúsið á
Skagaströnd og fjöldi manns
verið atvinnulaus i þorpinu.
Svipaða sögu er að segja frá
Þórshöfn. Þar varð bilun i eina
togskipi þorpsbúa. Skipið hefur
veriö frá veiöum um rúmlega
þriggja mánaöa skeið og þriðj-
ungur ibúanna á atvinnuleysis-
skrá. Slikt ástand er geigvæn-
legra en orð fá lýst.
Ráð verður aö finna til að geta
brugðizt fljótt við slikum vanda.
Auðveldast sýnist vera að ætið
séu til veiðiskip, sem færð eru
milli staða og látin leggja upp
þar sem þörfin er mest á hverj-
um tima. A þann hátt ætti að
vera unnt aö leysa slikt vand-
ræðaástand, sem bilanir eða
önnur óhöpp i flotanum geta
leitt af sér fyrir einstaka
atburði.
Onnur leið ersú að skylda tog-
ara frá öðrum útgerðarstöðum
aö miðla einhverju af sinum
afla til staða þar sem vantar
Skipuleggj um
togveiðarnar
og forðumst atvinnuleysi og örbirgð á
einstökum stöðum
fisk vegna slikra óhappa. Þetta
virðist eðlilegt með tilliti til
þess að meginhluti veiðiflotans
erað stórum hluta keyptur fyrir
lánsfé úr opinberum sjóðum.
Þetta fé hefur verið lánað til
þess að efla atvinnu og auka
framleiðslu landsmanna og
bæta þar með þjóðarhag.
Að visu er i augnablikinu svo
litil veiði við landið, að hvergi
berst of mikill fiskur á land. En
er ekki réttlætismál, að þegar
erfiðleikar verða i einu út-
gerðarþorpi, hlaupi aðrir Ut-
gerðarstaðir undirbagga? Hver
Umsjónarmenn: Magnús Ólafsson
Ómar Kristjánsson
veit nema vandræðin berji að
dyrum hjá þeim siðar og þá geti
verið gott að eiga einhvers
staðar innhlaup með að fá fisk.
En þetta leiðir hugann að
öðru. Er ekki nauðsyn að skipu-
leggja fiskveiðar og fisklöndun
betur hér við land en nú er gert?
Við höfum fordæmið frá loðnu-
veiðunum. Loðnunni er landað
þar sem unnt er að vinna hana á
hverjum tima. Þannig er hrá-
efnið nýtt sem bezt.
Er ekki jafn mikil nauösyn að
skipuleggja togveiðarnar á
sama hátt? Er ekki nauðsyn að
krefjast þess að togararnirlandi
þar sem mestir möguleikar eru
á að vinna sem bezta vöru Ur
hráefninu?
Iðulega berast fréttiraf þvi' að
svo mikill fiskur berst á land á
einstökum stöðum, að engin leið
er að komast yfir að vinna afl-
ann. A sama tima er fiskleysi i
öðrum vinnslustöðvum. Þessu
verður að breyta. Þjóðarhagur
krefst þess að eins mikið verð-
mæti sé unnið úr okkar dýr-
mætu sjávarafurðum, og frek-
ast er unnt. Allt annað er sóun á
verðmætum.
MÓ.
Magnús Gunnarsson verzlunarráðunautur Keflavik
UNGA FÓLKIÐ í
DREIFBÝLINU
— og flótti þess til þéttbýlisins
S.l. sunnudag var minnzt 60
ára lýðveldis i Finnlandi. Það
minnti mig á ánægjulega ferð
mina á ráðstefnu NCF sem
haldin var i Helsinki 9.til lO.mai
s.l. Ætla ég að þvi tilefni aö ræða
litillega um þetta ferðalag. Með
i feröinni var Gestur Kristins-
son erindreki SUF.
Þessi fundur var liður i sam-
skiptum NCF og ungra sósial-
ista i Póllandi.
NCF eru samtök ungra mið-
flokksmanna á Noröurlöndun-
um nema Danmörku og sátu
fulltrúar allra landanna
ráðstefnuna auk Pólverjanna.
Ráöstefnan var haldin i út-
borg Helsinki i félagsheimili
finnskra bænda.
Vandamál ungs fólks i
dreifbýli
Aðalefni ráðstefnunnar var
vandamál ungs fólks i dreifbýli
og hófst hún meö erindi um
ástand og stöðu atvinnuveganna
i dreifbýli Finnlands. Kom þar
fram að Finnar búa við sömu
vandamál og við áttum við að
striða íyrir nokkrum árum, það
erað segja unga fólkið vill flytja
til þéttbýlisstaðanna en ekki
setjast aö i dreifbýli. Eftir það
fluttu fulltrúar hinna Norður-
landanna skýrslu um lif og hagi
sinna þjóða. Tóku allir undirorð
Finnanna um fólksflóttann frá
dreifbýlinu, að svipað ástand
væri i þeirra löndum.
Við skýrðumm.a. frá byggða-
stefnu Framsóknarflokksins.
Að visu var stiklað á stóru i þvi
efni en við lögðum á það áherzlu
að byggðastefnan væri upp-
runnin hjá Framsóknarflokkn-
um og sú breyting sem hefði átt
sér stað varðandi atvinnuhætti
dreifbýlisins á undanförnum
árum væri fyrst og fremst að
þakka byggðastefnu Fram-
— frásögn af
ráðstefnu
um
vandamál
ungs fólks í
dreifbýli, en
ráðstefnan
var haldin í
Finnlandi
sóknarflokksins. Þá sögðum við
einnig frá þeirri breytingu sem
átt hefur sér stað varðandi
fólksfjölgun i dreifbýli og þétt-
býli, þ.e. að fólksfjölgunin hefur
verið meiri utan Reykjavikur
undanfarin ár en i Reykjavik
sjálfri. í þessu sambandi bent-
um við á fólksflóttann utan af
landi til Reykjavikursvæðisins á
„Viðreisnarárunum.”
Lifsgæðakapphlaupið
Gestir ráðstefnunnar, Pólverj-
ar.fluttu siðan langa og ýtarlega
skýrslu um lifskjör ungs fólks
þar i landi. Athyglisvert þótti
mér hvað lifsskilyrðin eru ólik
hér og i Póllandi enda er það
skiljanlegt þegar um svo ólika
stjórnarhætti er að ræða. Ungt
fólk hefur annað lifsmat. Lifs-
gæðakapphlauið er ekki eins
rikur þáttur hjá ungu fólki þar
eins og er hér á landi.
Eftir að hafa setið heilan dag
á ráðstefnunni voru þátttak-
endur orðnir hálf þreyttir. En
hið heimsþekkta finnska gufu-
bað réð fljótt bót á þvi. Gufu-
baðsstofur þeirra eru snilldar-
lega úr garði gerðar. Þar eru
ýmis þægindi, svo sem arinn,
sjónvarp.sérhannaðir legubekk-
ir og nuddstofur svo eitthvað sé
nefnt.
Bændur verst launaðir
Næsta dag var svipað fyrir-
komulag og mættu menn endur-
nærðir til leiks. Verulegar um-
ræður urðu um málefni bænda,
og það helzta sem eftir okkur
gæti verið haft i þvi sambandi er
það að við fullyrtum að kjör
bænda á Islandi væru léleg og
Kirkjan sem er sprengd I klett I miöborg Helsinki
Magniis Gunnarsson.
töldum varla hægt að finna verr
launaða stétt i landinu.
Þá sögðum við einnig að gjör-
samlega útiiokað væri tyrir
ungt fólk á íslandi að hefja bú-
skap nema þvi aðeins að það
tæki við af foreldrum sinum eða
að öðrum kosti ætti fasteign upp
á milljónir á Reykjavikursvæö-
inu, sem það gæti selt til þess að
fá stofnfé.
Við sögðumst ennfremur
telja, að þeir sem af einhverjum
ástæðum þyrftu að hætta bú-
skap og selja bú og bústofn,
fengju nánast aldrei sannvirði
búsins fyrir það.
Sama kváðum við vera uppi á
teningnum varðandi sölu á ibúð-
um og húsum i flestum minni
þorpum úti á landi eða þ.e.a.s.
allt of mikill munur á húsaverði
á Reykjavikursvæðinu og utan
þess.
Sögur i svipuðum dúr voru
sagðar frá öllum Norðurlöndun-
um og einnig Póllandi, en þó
virtist manni að þróun til betri
vegar væri einna helzt á íslandi.
Byggðastefna
Framsóknarflokksins
Þá má segja, að það sem helzt
þótti til ráða, væri flest það sem
felst i byggðastefnu Fram-
sóknarflokksins, og var til
dæmis mikið rætt um að flytja
þyrfti eða setja á stofn smærri
iðnfyrirtæki og þá sem viöast i
dreifbýlinu og skapa með þvi
aukna atvinnumöguleika og
fjölbreyttara atvinnulif.
Ráðstefnunni lauk siðdegis á
þriðjudag með samantekt á um-
ræðum ráðstefnunnar.
Þó að dvölin væri þvi miður
stutt, var athyglisvert að sækja
þetta land heim. Mesta athygli
mina vakti hinn sérstaki
byggingarstill þeirra, og þó sér i
lagi kirkja ein sem stendur i
miðborg Helsinki, en hún er
sprengd inn i berg, (klett), svo
sem sjá má á meðfylgjandi
mynd.
Að lokum óska ég finnsku
þjóðinni allra heilla;
Magnús Gunnarsson
verzlunarráðunautur
Keflavik.