Tíminn - 31.12.1977, Blaðsíða 2
2
Laugardagur 31. desember 1977
erlendar fréttir
Tandberg
rekið
Norska rikið hefur nú yfirtekið
rekstur Tandberg verksmiðjanna
með öilu, og stofnandinn Vebjörn
Tandberg, sem byggt hefur upp
þetta eitthvert kunnasta norskra
iðnaðarfyrirtækja, kemur þar nú
hvergi nálægt.
Tandberg hefur átt i rekstrar-
örðugleikum um skeið og er nú
svo komið að fyrirtækið hefur
verið gert upp og allar eignir i þvi
hafa veriö afskrifaðar, þ.á.m. 55
milljónir norskar krónur frá rik-
inu i formi eignaraðildar og lána
og eins hefur verið afskrifað
hlutafé einstaklinga sem nemur
18,6 milljónum norskra króna.
Rikið leggur i fyrirtækið sam-
tals 185 milljónir norskar nú
þegar það tekur við rekstri þess
og verður þó ekki komizt hjá þvi
að draga saman seglin að ein-
hverju leyti hvað varöar starfslið
a.m.k. Hins vegar verður varið
einum 15 milljónum norskra
króna til rannsókna og tækni-
^nýjunga.
Vebjörn Tandberg.
Friðun og landi
MÚnich/DaD — Alparnir hafa
löngum verið rómaðir fyrir
fegurð og náttúruauðgi. V-
Þýzkaland hefur nú ákveðiö að
varðveita i óbreyttri mynd
nokkuð stórt svæði i ölpunum I
nánd Berchtesgaden i Bæheimi.
Svæði þetta sem fyrirhugað er
að gera að þjóðgarði þykir ein-
staklega fagurt og vel henta til
þess hlutverks að verða friðaður
almenningsgarður auk þess aö
verða vettvangur visindarann-
sókna.
Góðu áformin verða þó sjald-
an framkvæmd án mótspyrnu
einhvers staðar frá og i þessu
tilviki eru það ibúarnir sem
krefjast þess að þrátt fyrir
friðun fái þeir að grafa upp
rætur sérstaks aipablóms en
þær hafa i rúm 350 ár verið
notuð til bruggunar þarlends
landa.
Alþýðulýðveldið Kina:
t>j óðarf ramleiðsla
jókst um 12%
KEJ — A fyrstu 8 mánuðum árs-
ins 1977 hefur framleiðsla á hrá-
oliu og jarðgasi I Kina aukizt um
10 og 24% — I sömu röð — borið
saman við samsvarandi tima á
fyrra ári. Segir i fréttatilkynn-
ingu frá Menningardeild Sendi-
ráðs alþýðuveldisins Kina á ls-
landi.
Þá segir að uppörvandi sé sú
staðreynd að olia og gas og
auðugar steinoliulindir hafi
fundizt á siðustu mánuðum i
norður-, norðvestur- og suðvestur
Kina svo og á sléttum megin-
iandsins. Muni þetta flýta fyrir
uppbyggingu nútimalegs land-
búnaðar, iðnaðar, iandvarna og
visinda og tækni i Kina. Þó hefur
Kina verið sjáifbjarga um oliu og
hefur haft umframframleiðslu
siöan snemma á sjöunda ára-
tugnum.
Hin sósialiska verkkeppni sem
svo hefur verið kölluð i Kina hefur
breiðzt óðfluga út meðal iðnstofn-
ana og annarra fyrirtækja og
hefur gefið góða raun að sögn kin-
verskra ráðamanna. Verg fram-
leiðsluverðmæti i Kina i iðnaði
fyrstu niu mánuði ársins 1977
hafa hækkað um 12 prósent borið
saman við samsvarandi tima á
fyrra ári. Þá hefur framleiðsla á
járni, stáli, kolum og orku aukizt
mikið. Með vaxandi framleiðslu i
iðnaði og landbúnaði hafa tekjur
kinverska rikisins vaxið á fyrstu
niu mánuðum þessa árs um 7,8
prósent borið saman við sama
tima siðastliðið ár. Þar sem efna-
hagur landsins og fjárhagsstaða
hefur batnað, hefur rikið ákveðið
að hækka laun nokkurs hluta
verkamanna i öllum greinum um
land allt frá 1. október. Um 46
prósent verkamanna i landinu
munu njóta góðs af launahækkun-
inni. Þar að auki munu riflega 10
prósent verkamanna fá hliðstæða
hækkun.
Fyrsti
janúar
hlaup-
dagur
KEJ —■ A nýársdag þann 1.
janúar verður aiþjóðiegu
atómklukkunni i Greenwich
seinkað um eina sekúndu i
samræmi við ósamkvæmni
klukkunnar við rétt jarðar. Að
sögn Þorsteins Sæmundssonar
hjá Raunvisindastofnun há-
skólans er svokallaður atóm-
timi miðaður við jarðsnúning
við siöustu aldamót og þar
sem um örlitla breytingu er
oftast að ræða frá ári til árs,
Frh. á bls. 39
Myndin er tekin I janúar og er dæmigerð fyrir falleg vetrarveöur, sem
voru hér á Suö vesturlandi á fyrri hluta ársins. — Timamynd: Gunnar.
Einstakt þurrkaár
— vindhraðamet slegið
GV —Okkur islendingum er öðr-
um tamara að tala sýknt og heil-
agt um veðrið og okkar stór-
brotna veðurfar, og er þvi ekki úr
vegi á áramótum að hyggja að
veðurfari ársins sem er að liða.
Við snerum okkur til öddu Báru
Sigfúsdóttur veðu rfræðings, og
gaf hún okkur stutt yfirlit yfir
helztu einkenni veðurfarsins á ár-
inu. Að sögn öddu Báru var árið
yfirleitt þurrt og úrkoma 4/5 af
þvi sem cr i meðalári, og er þá
miðað við árin 1931-1960. Sérstak-
lega var þurrt hér suðvestanlands
fyrstu þrjá mánuði ársins, og ef
veturinn i fyrra er skoðaður I
heild frá desember til marz 1977
þá er þetta þurrasti vetur i
Reykjavik frá upphafi samfelidra
úrkomumælinga sem var árið
1920. Einnig vantar ekki mikið á
að timabilið jan.-marz á árinu sé
það sólrikasta frá 1923. en tvö ár
hafa þó verið sólrikari.
Eitt met var slegið á árinu og
var það i vindmælingum. Mesti
vindhraði, sem nokkurn tima
hefur mælzt hér, mældist 14.
NESKAUPSTAÐUK:
Tíðarfar gott og at-
vinna næg á árinu
B.G. Neskaupst./SSt. — Þegar á
heildina er litið hel'ur þetta verið
ágætis ár fyrir okkur hér á Nes-
kaupstaö, sagði Benedikt Gutt-
ormsson, fréttaritari Timans, I
stuttu spjalli I gær. Hér hefur ver-
ið næg atvinna og tiðarfar gott. I
desember hefur atvinna verið
með inesta móti og þá fyrst og
fremst i fiski og er það að þakka
mjög góðu tíðarfari og góðum
gæftum, sagði Benedikt.
— Hér hefur verið nóg um að
vera yfir hátíðarnar. A annan
:Frh. á bls. 39
jóladag héldu sjómenn árshátið
sina. Þá hafa verið haldnar jóla-
trésskemmtanir fyrir börn, og á
miðvikudaginn héidu Lionsmenn
hér skemmtun fyrir eldri bæjar-
búa.
Það verður að venju margt til
Frh. á bls. 39
-■Fárviðri á Reyðarfirði:
Þakplötur
fleygiferð
a
M.S. Reyðarf./SSt — Það er
mesta furða að ekki urðu slys á
fólki i þvi fárviðri sem hér gekk
yfir i gær, sagði Marinó Sigur-
björnssón á Reyðarfirði i sam-
tali við Timann i gær. Versta
veður hafði þá gengið yfir
Austurland, en enginn staður
varð þó eins illa úti í veðrinu og
Reyðarfjörður.
Að sögn Marinós byrjaði að
hvessa siðdegis i gær og verst
varð ve ðrið milli kl. 5 og 7 i gær.
Þá var tæplega nokkur maður á
götum úti, sem betur fer, þvi
annars hefði vafalaust illa farið.
— Þakplötur fuku þá i' stórum
stil af byggingum. Um 100 þak-
plötur fuku af frystihúsbygging-
unni og dreifðust um allt þorp,
og margar þeirra lentu á rúðum
Kaupfélagshússins og ollu þar
töluverðum skemmdum, rúður
brotnuðu, hillur féllu af veggj-
um og annað i þeim dúr.
Þá fauk þak af nýbyggðu
ibúðarhúsi i heilu lagi, og plötur
og timbur af þvi ollu m.a.
skemmdum á tiu bilum sem
voru i næsta nágrenni, sagði
Marinó.
út af
milli
Stór flutningabfll fauk
veginum á Sandskeiði,
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.
Bilstjóranum var ekki farið að
litast á veðurhæðina og stöðvaði
bilinn. Skipti þá engum togum
að hann hreinlega fauk út af
veginum. Hann fór nokkra
metra niður fyrir vegarbrún og
stöðvaðist þar. Bilstjórinn slapp
ómeiddur, en bfllinn er talinn
gjörónýtur, sagði Marinó að
lokum. Þetta mun vera versta
veður á Reyðarfirði i aldar-
fjórðung.
Annars staðar á Austfjörðum
var ekki vitað til að veðrið hefði
haft i för með sér neinar stór-
vægilegar skemmdir á bygging-
um eða slys hafi orðið á fólki.
Rafmagnslaust varð um tíma á
Stöðvarfirði af völdum veðurs,
þar sem raflinustaurar milli
Breiðdalsvikur og Stöðvarfjarð-
ar brotnuðu og var rafmagns-
skömmtun á Stöðvarfirði i gær
af þeim sökum. A Seyðisfirði
gerði einnig versta veður, en um
stórfelldar skemmdir eða slys
af völdum veðurs var ekki að
ræða.