Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Mjólkursúkkulaði örvar heilann,
eykur skerpu, næmi og athygl-
isgáfu. Ýmis örvandi efni í
súkkulaði, þeó-
brómín og kaffín
auka snerpu
og skerpa
athygli, segir
sérfræðingur
við Wheeling
Jesuit-
háskólann í
Vestur-Virg-
iníu. Í sumu
súkkulaði auka þessi
efni vitsmunaafl manna.
Þetta þykja góðar fréttir.
Landlæknir hefur sent frá sér
dreifibréf um viðtöl og mynd-
birtingar fjölmiðla í umfjöllun
um mál einstakra sjúklinga á
heilbrigðisstofnunum, oftast á
sjúkrahúsum. Oft þarf að gæta
hagsmuna fleiri einstaklinga en
viðkomandi sjúklings og mælir
landlæknir með ákveðnum
vinnureglum í samskiptum
fjölmiðla við sjúklinga á sjúkra-
stofnunum. Sjá nánar á www.
landlaeknir.is.
Geðhjálp boðar til fundar í
aðstandendahópi Geðhjálpar
miðvikudaginn 31. maí klukkan
20.00 í sal Hallveigarstaða,
Túngötu 14, kjallara. Fundarefni
er húsnæðismál.
ALLT HITT
[HEILSA]
Að finna hvernig æfingaáætlun
hentar hverjum og einum getur verið
margslungið verkefni. Sumir kjósa að
æfa í einrúmi en aðrir finna sig best
lokuðum hóptímum. Gestur Rúnarsson
er einn þeirra sem kýs seinni kostinn.
Gestur hafði alltaf verið mikið íþróttum og
yfirleitt í toppformi. „Ég byrjaði hins vegar
að safna bumbu fyrir um fjórum árum þegar
konan mín varð ólétt, þetta kallast víst með-
virkni í ólettunni,“ útskýrir Gestur og hlær.
„Ég hætti líka að reykja þannig að maður
safnaði ansi mörgum kílóum án þess að átta
sig almennilega á því.“
Þegar World Class opnaði aftur fyrir
þremur árum ákvað Gestur að fara gera
eitthvað málunum. „Ég steig á vigtina á
annan dag jóla og var þá 96 kíló. Þá sagði ég
við sjálfan mig að það kæmi ekki til greina
að verða 100 kíló.“
Gestur skráði sig í námskeið ásamt vini
sínum en vinurinn entist aðeins þetta eina
námskeið en Gestur er enn á fullu.
Gestur hefur mest stundað hóptíma og er
núna í sérstökum púltímum fyrir karla.
„Lokaðir hóptímar eru skemmtilegastir.
Þeir halda manni við efnið og þar er einnig
góður félagsskapur. Ef maður er einn í saln-
um eru miklu meiri líkur á því að maður
hætti að nenna þessu. Mér finnst leiðinlegt
að vera inni í sal að pumpa en ég geri það
samt um tvisvar í viku,“ segir hinn atorku-
sami Gestur.
Í karlapúlstímunum sem Gestur stundar
er mest um stöðvaæfingar og styrktaræf-
ingar, sem Rósa Guðmunds stjórnar með
þýskum heraga. „Það eru líka teknar marg-
ar armbeygjur. Þegar ég byrjaði gat ég ein-
ungis tekið um tíu en núna er ég farinn að
geta tekið hátt í áttatíu.“ Gestur er því í
frekar góðu formi sem stendur en lokamark-
miðið er að koma fituprósentunni niður í
10% og ætlar Gestur að halda sér í því fari.
En er hann ekkert hræddur við að konan
hans verði aftur ólétt? „Nei, nei, ég held að
maður sökkvi sér ekki í þetta aftur,“ segir
Gestur brosandi. steinthor@frettabladid.is
Ánægðastur í
hóptímunum
Gestur Rúnarsson hefur verið að koma sér í gott form á undanförnum árum og er alls ekki hættur. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
NORSKIR VÍSINDAMENN SEGJA KAFFI Í HÓFLEGU MAGNI HAFA
GÓÐ ÁHRIF Á LÍKAMSSTARFSEMINA.
Kaffið hefur nú fengið uppreisn æru. Nýlega birtust niðurstöður
norskrar rannsóknar í Jótlandspóstinum sem benda til þess að
kaffið sé ekki eingöngu hressandi heldur hafi einnig góð áhrif á
líkamsstarfsemina. Sé kaffið drukkið í hóflegu magni getur það
hjálpað til við að koma í veg fyrir kransæðasjúkdóma, gigt, og
ýmsar bólgur.
Þessu komust næringarfræðingar við Óslóarháskóla að eftir að
hafa unnið úr gögnum bandarískrar könnunar þar sem fylgst var
með kaffineyslu 27 þúsund kvenna í 15 ár. Þær konur sem drukku
einn til þrjá bolla á dag voru 20 til 25 prósent ólíklegri til að fá
kransæðasjúkdóma og gigt. Er það rakið til þess að 60 prósent
andoxunarefnanna í kaffinu skila sér til þess sem drekkur það.
En böggull fylgir skammrifi því til þess að áhrif af kaffidrykkju
haldist jákvæð þarf að takmarka kaffidrykkjuna við minna en
fimm bolla á dag.
Góður er kaffisopinn
STÆRÐIN
SKIPTIR MÁLI
Að mörgu er að hyggja
þegar velja á gönguskó.
HEILSA 2
EINELTI ER DAUÐ-
ANS ALVARA
Páll Einarsson MSc á vefnum
persona.is skrifar
HEILSA 3
Kaffisopinn er ekki bara
hressandi heldur getur
hann haft góð áhrif á
líkamsstarfsemina.
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
30. maí, 150. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.28 13.25 23.25
Akureyri 2.41 13.10 23.42