Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 30
Starfsmenn Geimstofunnar auglýs-
ingastofu, að Brekkugötu 7a, hafa
getið sér góðan orðstír frá því hún
var opnuð árið 2003. Samkvæmt
Jóni Inga Sigurðssyni, einum eig-
enda stofunnar, er þar ekki verið
að tvínóna við hlutina heldur ráð-
ist í verkefni af fullum krafti hvort
sem það er á sviði prent- eða ljós-
vakamiðla.
Starfsmenn Geimstofunnar hafa
haft í nógu að snúast og tekið að
sér nokkur stærri verkefni, á borð
við herferð sem farin var í fyrir
Sandgerðisbæ. „Í því tilviki sáum
við um gerð markpósts, blaða- og
sjónvarpsauglýsinga,“ segir Jón
Ingi. „Herferðin vakti töluverða
lukku og við fengum tilnefningu
til Ímark-verðlauna fyrir mark-
póstinn. Af öðrum verkefnum má
nefna auglýsingar fyrir Kjarnafæði
og Húsavíkurjógúrt frá Norður-
mjólk.“
Ekki er nóg með að starfsmenn
Geimstofunnar hanni auglýsingar
fyrir viðskiptavini sína, heldur sjá
þeir einnig um framleiðslu sjón-
varps- og útvarpsauglýsinga. „Við
erum með leikstjóra innanborðs, að
nafni Baldvin Zophoníasarson, sem
er í námi í Danmörku. Það kom sér
ágætlega þar sem við tókum upp
auglýsinguna fyrir Kjarnafæði þar
í landi. Svo var tónlistin gerð í
Svíþjóð, þannig að segja má að um
samnorrænt verkefni hafi verið að
ræða,“ bætir hann við.
Samkvæmt þessu er ekki annað
að heyra en leiðin liggi upp á við
fyrir starfsmenn Geimstofunnar og
spennandi verður að fylgjast með
hvað þeir taka sér næst fyrir hend-
ur. Nánari upplýsingar á www.
geimstofan.is
2
Herferð fyrir Sandgerðisbæ var unnin af Geimstofunni með góðri útkomu. Stofan hlaut
tilnefningu til Ímark-verðlauna fyrir markpóst í því tilfelli. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Geimfarar fyrir norðan
Uppsveifla er í auglýsingabransanum á Akureyri, að sögn Jóns Inga Sigurðssonar hjá
Geimstofunni.
Blaðaauglýsing fyrir Kjarnafæði. Geimstof-
an hannar einnig auglýsingar fyrir sjónvarp
og útvarp og hefur leikstjóra innanborðs.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Eigendur Geimstofunnar, frá vinstri: Björgvin Guðjónsson, Arnar Sigurðsson og Jón Ingi Sigurðsson. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Árið 2000 urðu þau tíðindi í íslensku
viðskiptalífi að starfsemi Vífilfells
og Sól-Víkings var sameinuð undir
nafni þess fyrrnefnda. Unnsteinn
Jónsson, framleiðslustjóri Vífilfells
fyrir norðan, rekur sögu fyrirtækis-
ins og útskýrir af hverju það sér nú
alfarið um áfyllingu á Coke í gler-
flöskum.
„Í gegnum tíðina hefur fyrritæk-
ið gengið í gegnum ýmsar breyting-
ar,“ segir Unnsteinn. „Áður en það
sameinaðist Vífilfelli árið 2000 var
það þekkt sem Sól-Víking, þar áður
Víking, svo Sanitas og upphaf-
lega sem ölgerðarfyrirtækið Sana.
Fyrirtækið er því gamalt, þótt saga
þess undir „nýja“ nafninu sé stutt.“
Að sögn Unnsteins fluttist
fyrirtækið í núverandi húsnæði að
Furuvöllum 18 upp úr 1960, en
það er um 4.500 fermetrar. „Vélum
hefur fjölgað í tímans rás og erum
við nú að framleiða um tíu milljónir
lítra af bjór og gosi á ársgrundvelli,“
segir hann. „Dagleg framleiðsla er
auðvitað mismikil og meðal ann-
ars bundin árstíma, en áætla má að
stærsti mánuðurinn sé yfirleitt tvö-
faldur minnsti mánuðurinn. Starfs-
mönnum okkar hefur að vonum
fjölgað í takt við þetta.“
Margir vita af fyrirtækið fram-
leiðir Viking og Thule, en færri vita
að síðan 2003 hefur það verið eitt
um áfyllingu Coke á 250 ml gler-
flöskur hérlendis. „Það var ákveðið
að vera með eina áfyllislínu sem
réði við gler og við höfðum hana,“
segir Unnsteinn. „Línan sem var
á Stuðlahálsi var lögð niður og
framleiðslu á 190 ml kókflöskunni
lauk. Þetta er að vísu ekki stór hluti
framleiðslunnar, sérstaklega ekki
í lítrum talið þar sem flöskurnar
eru litlar. Engu að síður nýtur kók
í gleri sífellt meiri vinsælda, enda
tel ég marga hafa áttað sig á því
hversu heppileg drykkjarstærð þetta
er,“ segir hann loks.
Heppileg drykkjarstærð
Kók í gleri er einungis framleitt fyrir norðan.
Unnsteinn Jónsson, framleiðslustjóri Vífilfells fyrir norðan, er ánægður með viðtökurnar
sem litlu kókflöskurnar hafa fengið. Segir hann Coca Cola Light nú njóta mikilla vinsælda.
■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■