Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 61
ÞRIÐJUDAGUR 30. maí 2006
ÁSKRIFT: 515 6100 | WWW.STOD2.IS | SKÍFAN | OG VODAFONE
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
Níutíu ára
en samt ný
Við opnum 2. júní
Úrslit í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva hefðu verið þau
sömu fyrir níu efstu löndin þó
þeim þrettán þjóðum sem heltust
úr lestinni, auk Serba og Svartfell-
ina, hefði verið meinað að kjósa.
Háværar gagnrýnisraddir hafa
heyrst um samstöðu austur-Evr-
ópuþjóðanna, en eru samkvæmt
þessu úr lausu lofti gripnar.
Hefðu aðeins þau lönd sem
komust áfram fengið að kjósa um
sigurlagið hefðu Tyrkir hins vegar
lent í tíunda sæti og víxlað sæti
við Íra, samkvæmt ESCtoday.com
en Tyrkir þurfa að keppa í undan-
keppninni að ári. Það virðist þó
ekki slæmur kostur því ekkert
landanna tíu sem komst áfram úr
undankeppninni lenti neðar en í
þrettánda sæti í ár.
Úrslitin hefðu hins vegar orðið
allt önnur ef innbyrðis kosning
lagahöfunda úr keppninni hefði
gilt en ekki símakosning almenn-
ings. Zeljko Joksimovic sem samdi
lagið Layla fyrir Bosníu og Hers-
egóvínu vann keppni þeirra í ár.
Christer Bjorkman, yfirmaður
sænsku sendinefndarinnar kom
kosningunni á vegna óánægju með
að öll athyglin hefði færst af laga-
höfundunum á flytjendurna.
„Keppnin er svo stór og ber því
fleiri en einn sigurvegara,“ sagði
hann við Fréttablaðið í sam-
norrænni veislu í Aþenu á dögun-
um. Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son tók ekki þátt í valinu þar sem
hann kaus að sitja í salnum á aðal-
kvöldinu en ekki baksviðs.
CHRISTER BJORKMAN Telur að úrslitin hefði
orðið önnur ef símakosning almennings
væri ekki í gildi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Önnur úrslit