Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 2

Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 2
2 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR Fjöldi fæðinga í júní Aldrei hafa fleiri börn fæðst á Landspítalanum í ein- um mánuði en í júní síðastliðnum. 315 nýir Íslendingar litu þá dagsins ljós, sem jafngildir rúmlega tíu fæðingum á dag. Meðaltalið í venjulegu árferði er um átta fæðingar á dag. HEILBRIGÐISMÁL STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, er enn að velta fyrir sér framboði til embætta innan forystu Framsókn- arflokksins. „Það liggur ekkert á, það er enn mánuður til flokksþings,“ sagði Siv í gær. Hún sagði fjóra kosti í stöðunni, að gefa kost á sér til emb- ættis formanns eða varaformanns, sækjast eftir endurkjöri í starf rit- ara eða draga sig út úr flokksfor- ystunni. Flokksþing Framsóknar fer fram 18. og 19. ágúst. - bþs Siv Friðleifsdóttir: Enn að hugsa SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Heilbrigðisráðherra útilokar ekki formannsframboð. Forsætisráðherra í sumarfrí Geir H. Haarde forsætisráðherra verður í sumarleyfi í útlöndum frá mánu- deginum 24. júlí til mánudagsins 7. ágúst. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra gegnir störfum hans á meðan. STJÓRNMÁL Nýtt íbúðahverfi Fyrsta skóflustung- an var tekin í Leirvogstungu í Mosfells- bæ í dag en þar á að rísa nýtt íbúða- hverfi. Leirvogstunguhverfið verðandi er sérstakt að því leyti að það verður einungis byggt sérbýlum. MOSFELLSBÆR Ferðamenn veltu bíl Bíll valt á Hólssandsvegi, austan Jökulsár á fjöll- um, um tíuleytið í gær. Svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bílnum í lausamöl við beygju. Tveir útlendingar voru í bílnum, sem var bílaleigubíll af gerðinni Toyota Yaris. Ökumaðurinn hlaut minniháttar meiðsli. Bíl stolið í Stykkishólmi Bifreið var stolið í umdæmi lögreglunnar í Stykkis- hólmi um tíuleytið í gærmorgun. Liðlega klukkustund síðar stöðvaði lögregla bílinn við Stykkishólm. Bílþjófurinn er þekktur afbrotamaður á þessum slóðum að sögn lögreglu. Hann er auk þjófnað- arins grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. LÖGREGLUFRÉTTIR BAUGSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur frá 30. júní, en þá var fyrsta og veigamesta ákærulið Baugs- málsins vísað frá dómi. Í liðnum voru Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs Group hf., aðallega gefin að sök fjársvik, en til vara umboðssvik. Var hann sakaður um að hafa beitt stjórn Baugs blekkingum í auðg- unarskyni með því að leyna því að hann væri raunverulegur seljandi hlutafjárins í Vöruveltunni, þegar Baugur keypti sjötíu prósent hlutafjár í félaginu árið 1999. Vöruveltan var eigandi 10-11 verslananna. Jóni Ásgeiri var auk þess gefið að sök að hafa „vakið hjá stjórn Baugs þá hugmynd að seljandi hlutafjárins væri Helga Gísladótt- ir,“ eins og segir orðrétt í ákæru. Helga Gísladóttir hafði áður verið eigandi Vöruveltunnar ásamt manni sínum. Í ákæruliðnum var tjón Baugs vegna þessara kaupa sagt nema meira en þrjú hundruð milljónum. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í málinu, sagði þessa niðurstöðu að nokkru leyti vonbrigði en lagði jafnframt á það áherslu að málinu væri hvergi nærri lokið, þar sem enn biðu átján liðir. „Á vissan hátt er verið að taka á efnislegum hliðum máls- ins, með þessari niðurstöðu, áður en dómstólar meta þau gögn sem að baki ákærunni liggja. En þetta er niðurstaða Hæstaréttar og ég sætti mig við hana. Það eru enn átján ákæruliðir eftir í málinu, og nú bíða þeir liðir efnismeðferðar fyrir dómi.“ Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, segir alvarlegasta hluta Baugsmálsins lokið með þessum dómi Hæstaréttar. „Með þessari niðurstöðu er endanlega búið að vísa kjarnanum í Baugsmálinu frá dómi. Það sem eftir stendur er að leggja fram varnir í þeim liðum málsins sem eftir eru, sem allir tengjast bókhaldsreglum og lánum. Ég hef sagt, og segi enn og aftur, að ég tel löngu vera komið nóg í þessu máli og það hefði verið farsælast fyrir ákæruvaldið að láta við sitja, þegar málinu var vísað frá í fyrra skiptið.“ Liðirnir átján sem eftir standa snerta meðal annars viðskipti með skemmtibátinn Thee Viking, sem var við höfn á Flórída á þeim tíma sem meint brot eiga að hafa átt sér stað. Auk þess snýr efni ákærulið- anna að lánveitingum, sem sam- kvæmt ákæru brjóta gegn lögum um hlutafélög. Þá er Jón Gerald Sullenberger í ákæru sagður hafa aðstoðað Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggva Jónsson við að rang- færa bókhald Baugs hf. magnush@frettabladid.is Fyrsta lið ákæru endanlega vísað frá Hæstiréttur staðfesti frávísun á fyrsta ákærulið Baugsmálsins í gær. Veigamesti ákæruliðurinn í málinu verður því ekki tekinn til efnismeðferðar. Mikið eftir af málinu enn, segir settur saksóknari. Kjarninn farinn, segir Gestur Jónsson. SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON Segir viðamikil atriði enn eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GESTUR JÓNSSON Segir ákæruliðina sem eftir eru í málinu ekki veigamikla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAKSÓNARI OG VERJANDI AÐ STÖRFUM Sigurður Tómas Magnússon sést hér afhenda Gesti Jónssyni, lögmanni Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, gögn við efnismeðferð í dómssal. Jón Ásgeir sést við hlið lögmanns síns. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group hf., segir þungu fargi af sér létt með niðurstöðu Hæstaréttar, þar sem frávísun fyrsta ákæruliðs Baugsmálsins er staðfest. Í honum er Jóni Ásgeiri gefið að sök að hafa beitt stjórn Baugs blekk- ingum þegar fyrirtækið festi kaup á Vöruveltunni, sem þá átti og rak 10-11 verslanirnar. „Ég var hafður fyrir rangri sök og Hæstiréttur staðfest- ir það, öðru sinni. Það er ekkert saknæmt við þessi atriði sem nefnd eru í ákæru, og það er gott til þess að vita að það hafi nú endanlega verið staðfest með dómi. Það er ánægjulegt fyrir fyrirtækið sem ég starfa fyrir, og starfsmenn þess, að sjá hvernig málið er að þróast.“ Jón Ásgeir segist ekki efast um að málið eigi sér pólitískar rætur. „Ég reikna ekki með því að endurákært verði vegna þessa hluta málsins, þar sem Sigurður Tómas gaf það í skyn fyrir dómi að til þess kæmi ekki. Annars er ekki hægt að útiloka neitt, þegar ákæruvaldið í þessu máli er annars vegar. Það liggja fyrir því haldbærar sannanir að ritstjóri Morg- unblaðsins, ásamt fleirum, markaði upphaf þessa máls. Á því leikur ekki neinn vafi og það er ástæðulaust að fjalla um málið með þeim hætti, að svo geti verið.“ - mh Forstjóri Baugs, sem var ákærður í fyrsta lið ákærunnar, fagnar niðurstöðunni: Fagnaðarefni fyrir fyrirtækið JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON DÓMSMÁL Tveir Litháar voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmd- ir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á amfetamín- vökva sem dugað hefði til fram- leiðslu á 13,3 kílóum amfetamíns til götusölu. Annar Litháanna, Saulius Prus- inskas, var handtekinn í Leifsstöð 4. febrúar með tvær vínflöskur í fórum sínum. Í ljós kom að efnið í flöskunum var ekki áfengi heldur amfetamínvökvi. Saulius sagðist halda sig vera að flytja áfengi á milli landa og að hann væri að gera það fyrir óþekktan mann í Litháen. Þetta viðurkenndi hann þó ekki fyrr en eftir nokkrar yfirheyrslur. Saulias viðurkenndi við yfir- heyrslur að hafa farið aðra sams konar ferð til Íslands með vínflösk- ur, og hefði sú ferð gengið áfallalaust fyrir sig. Arvydas Maciulskis, sem hefur búið á Íslandi frá því árið 2000 og rekið fyrirtæki, var fyrst yfir- heyrður 13. febrúar grunaður um að hafa átt að veita efninu viðtöku. Hann þvertók fyrir það og það var ekki fyrr en við fjórðu yfirheyrslu sem hann kannaðist við að eiga hlut að máli, en sagði þá að júgóslav- neskur maður á Íslandi að nafni Radkó hefði fengið sig til verksins. Hann gat ekki gert frekari grein fyrir þeim manni. Í niðurstöðu dómsins segir að framburður mannanna beggja þess efnis að þeir hafi verið fengnir til verksins af öðrum aðilum sé afar ótrúverðugur og voru þeir því báðir dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi, að frádregnu gæsluvarð- haldi frá handtökudögum. Ákveðið hefur verið að báðum dómum skuli áfrýjað. - sh Tveir Litháar sem fluttu inn jafngildi um þrettán kílóa af amfetamíni voru dæmdir í Héraðsdómi í gær: Dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi Í HÉRAÐSDÓMI Saulius Prusinskas og Arvydas Maciulskis sýndu lítil svipbrigði þegar dóm- urinn var kveðinn upp. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR HEILBRIGÐISMÁL Sólveig Ásgríms- dóttir, forstöðumaður Stuðla, segir um biðtíma eftir innlögn eins og staðan er núna: „Yfir sumarið fækkar plássum hjá okkur vegna sumarfría og því er hægt að afgreiða færri umsóknir.“ Sólveig segir að á bilinu 20-40 umsóknir hafi borist það sem af er þessu ári sem er svipað magn og í fyrra. „Undanfarin ár hefur verið hægt að koma að börnum hjá okkur með vikufyrirvara og er biðin því lengri núna en fólk á að venjast. Sólveig vill ekki ganga svo langt að segja að um neyðar- ástand sé að ræða þó vissulega geti verið erfitt fyrir fólk að bíða þennan tíma. - hs Lengri biðlistar á Stuðla í ár: Bið eftir inn- lögn sex vikur HÚSDÝRAGARÐURINN Sigurörn, haf- örninn heppni sem Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir frá Grundar- firði bjargaði frá bráðum bana á dögunum, hefur nú verið fluttur í stórt útibúr í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum. Þar gefst nú ein- stakt tækifæri til að skoða þennan konung íslenskra fugla. Haförninn var bæði grútar- blautur og á hann vantaði stél- fjaðrirnar þegar Sigurbjörg fann hann. Grútinn hefur Þorvaldur Þór Björnsson hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands þvegið af Sigur- erni en stélfjaðrirnar verða lengi að myndast á ný. Vist arnarins verður því löng í garðinum áður en hann heldur út í náttúruna á ný. - shá Húsdýragarðurinn: Sigurörn flytur í stórt útibúr SIGURÖRN Örninn verður lengi í garðinum sökum þess hve lengi stélfjaðrir hans eru að myndast á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SJÚKDÓMAR Átta greindust með HIV-veiruna hér á landi í fyrra. Svipaður fjöldi hefur greinst síð- ustu ár, fimm árið 2004 en frá sjö til tólf á árunum 1997 til 2003. Hugrún Ríkarðsdóttir, smit- sjúkdómalæknir á Landspítalan- um, segir lífslíkur þeirra sem greinist með HIV nær óskertar. Lyfin nái að halda sjúkdómnum niðri. Sjúklingar hafi ekki náð að mynda ónæmi gegn þeim: „Að taka lyf alla ævi er hins vegar strembið og mikil binding. Fólk vill gjarnan hætta á lyfjunum en það er ekki hægt.“ Hugrún segir engan hafa greinst með HIV-veiruna í nafn- lausum prófunum. Fólkið hafi greinst á sjúkrahúsum landsins þegar það hafi sótt þangað vegna veikinda. - gag Ævilöng lyfjataka er úrræðið: Átta greindust með HIV í fyrra SPURNING DAGSINS Grímur, á að sjá Kan fyrir kommbakki? „Ég veit nú ekki betur en að þeir séu í fullu fjöri og ég vona bara að þeir spili sem lengst.“ Tónleikahaldarinn Grímur Atlason hefur verið ráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík. Bolvíska hljómsveitin Kan, með Herbert Guðmundsson í fararbroddi, átti nokkrum vinsældum að fagna á níunda áratug síðustu aldar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.