Fréttablaðið - 22.07.2006, Side 46
22. júlí 2006 LAUGARDAGUR20
HELGARTILBOÐ
Sofia sett al/tekk
Borð stækkanl.
100 x 170/220 6 stólar,
hallanlegir með sessu
Tilboð kr. 179.000
áður 259.000
Sólbekkur
kr. 29.000 áður 39.000
Sólhlíf
17.200 áður 21.500
„Ég myndi sameina ferðalög til
tveggja ólíkra staða sem ég hef heim-
sótt svo úr yrði hin fullkomna helgi“,
segir Hólmfríður Anna Baldursdóttur,
upplýsingafultrúi Unicef á Íslandi.
„Ég gæti hugsa mér að fara til
Mýrarsýslu og skoða fossinn Glanna,
sem er við Bifröst. Að svo búnu
heimsækti ég Paradísarlaut, sem kall-
aður er staður elskenda og er þarna
skammt frá. Síðast komst ég reyndar
að því að þetta er líka rosalega góður
fjölskyldustaður,“ bætir hún við og
hlær.
„Svo myndi ég skella mér í sund í
Borgarnesi og borða á nýja Lands-
námssetrinu, þar sem hægt er að
skoða skemmtilega landnámssýn-
ingu. Eftir það færi ég hugsanlega
aftur á Mr. Skallagrímsson, sem er
með betri leiksýningum sem ég hef
séð. Þessi hringur er tilvalinn fyrir þá
sem vilja kíkja út fyrir bæinn.“
Að sögn Önnu er hún mun
duglegri að ferðast erlendis heldur
en innanlands og fyndist því ekki úr
vegi að enda helgina á Cat-ba-eyju
í Víetnam. „Náttúrufegurðin þar er
með eindæmum. Eyjan er stærst þrjú
þúsund kalksteinseyja norður af Víet-
nam og ein fárra sem fólk býr á. Ég
færi í kajakferð á milli allra eyjanna,
hefði viðkomu á afvikinni strönd
og synti í fallega grænum sjónum.
Auðvitað er ómögulegt að heimsækja
báða staði á einni helgi, en það væri
algjör draumur.“
roald@frettabladid.is
DRAUMAHELGIN:
Frá Borgarnesi til Víetnam
Önnu finnst tilvalið að skreppa til eyjunnar Cat-ba svo helgin verði sem eftirminnilegust.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Leikstjórinn Pedro Almodóvar er einn
þekktasti leikstjóri Spánverja, enda
hefur hann getið sér góðs orðs utan
heimalandsins með myndum á borð
við Konur á barmi taugaáfalls (1988)
og Allt um móður mína (1999).
Almodóvar á farsælan feril að baki og
hefur fengið flest verðlaun sem einum
leikstjóra geta hlotnast. Hann hóf
feril sinn á áttunda áratugnum, þegar
einræðisherran Franco var enn við lýði,
með stuttmyndum sem hann skaut á
Super 8-vél, en hefur nú komið sér vel
fyrir og á og rekur eigið framleiðslu-
fyrirtæki. Hér eru fimm bestu myndir
meistarans:
1. Vond kennsla (2004). Sagt frá
tveimur gömlum vinum, sem sættu
kynferðislegri misnotkun í kaþólskum
drengjaskóla. Þessi grimmdarlega frá-
sögn kom eins og kjaftshögg í kjölfarið
á Allt um móður mína, sem vann hug
og hjörtu gagnrýnenda og kvikmynda-
gesta víðs vegar um heim, vegna
einlægrar lýsingar á sonarmissi.
2. Bittu mig, elskaðu mig (1990).
Fyrrum tukthúslimur rænir klám-
myndaleikkonu, sem hann er heltekinn
af, og þau fella hugi saman. Kynlífsat-
riðið á milli Victoriu Abril og Antonio
Banderas var skotið níu sinnum á níu
klukkutímum en leikstjóranum þótti
síðasta skotið nothæft vegna þess
hversu sveittir leikararnir voru orðnir.
3. Kika (1993). Almodóvar í essinu sínu
með mynd um snyrtifræðinginn Kiku,
sem lætur aldrei deigan síga þrátt fyrir
mótlæti í lífinu. Skringilegheit leikstjór-
ans ná nýjum hæðum þegar Kika vekur
dauðan mann, sem hún hefur fengið
það hlutverk að farða, aftur til lífsins
með náriðilslegri aðdáun sinni.
4. Pepi, Luci og Bom og hinar
stelpurnar (1980). Það er ekki hægt
að horfa framhjá þessari mynd þegar
val um bestu myndir Almodóvars fer
fram, meðal annars af því að þetta er
fyrsta myndin sem hann gerði í fullri
lengd. Skemmtilega hrá lýsing á lífi
þriggja ólíkra kvenna á pönktímabilinu
í Madrid.
5. Lögmál lostans (1987). Samkyn-
hneigður kvikmyndagerðarmaður legg-
ur líf sitt í hættu með lostafullu líferni.
Sumir telja myndina hálfævisögulega
þar sem kvikmyndagerðarmaðurinn
gerir eldfimum umfjöllunarefnum skil.
Antonio Banderas vakti athygli í mynd-
inni, þótt Bittu mig, elskaðu mig hafi
verið sú kvikmynd sem kom honum á
kortið.
TOPP5: PEDRO ALMODÓVAR
������������������������������
�������������������������������������������
�����������������������������������������������������
GLÓÐinn
Viltu hafa hann mjóann, stuttan, sveran eða stóran?
Skiptir ekki máli allur Kjörís í brauðvormi á 150kr.
Up
ps
öf
nu
ð
hl
us
tu
n
12
-3
4
ár
a
yf
ir
vi
ku
na
sa
m
kv
. d
ag
bó
ka
rk
ön
nu
n
G
al
lu
p
ap
ríl
2
00
6.
Auglýsingasími: 550 5000