Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 67
LAUGARDAGUR 22. júlí 2006 47
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
FÓTBOLTI Jose Mourinho, stjóri
Chelsea, gerir sér vissulega grein
fyrir því að allir leikmenn vilja fá
að spila sem mest. Það er ekki auð-
velt að komast í stjörnum prýtt
Chelsea-liðið, hvað þá eftir komu
manna á borð við Michael Ballack
og Andriy Shevchenko.
Mourinho ætlaði sér alltaf að
hafa tvo heimsklassamenn í hverri
stöðu og er nálægt því að hafa
þann mikla kost en nú þegar er
Eiður Smári Guðjohnsen farinn
auk Damien Duff og Asier Del
Horno, að öllum líkindum. „Sann-
leikurinn er sá að þegar maður er
með jafn marga háklassaleikmenn
og við höfum finnst leikmönnum
það erfitt þar sem allir vilja spila,“
sagði Mourinho.
„Til þess að takast á við þetta
munum við hafa minna lið þar sem
allir fá að spila sína leiki. Á þann
hátt getum við haldið öllum ánægð-
um hjá Chelsea og ungir leikmenn
þurfa ekki að óttast að koma til
okkar og fá ekki að spila. Ég vil
hafa fjölhæfa leikmenn í mínu liði,
þetta er tuttugu manna lið en með
fleiri möguleika fyrir hverja
stöðu,“ sagði Mourinho. - hþh
Jose Mourinho:
Tilbúinn að
minnka hópinn
MOURINHO Segist aðeins ætla að kaupa
einn mann til viðbótar í sumar, líklega
vinstri bakvörð. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Barce-
lona hafa fengið til sín tvo sterka
leikmenn frá Juventus, bak-
verðina Gianluca Zambrotta og
Lilian Thuram. Báðir léku þeir
vel á nýafstöðnu heimsmeistara-
móti og voru valdir í úrvalslið
mótsins. Frank Rijkaard, stjóri
Barcelona, var ánægður með að
klófesta leikmennina frá
Juventus.
„Þeir eru báðir frábærir leik-
menn og koma ekki bara með
leikni og aukin gæði inn í liðið
heldur líka mikilvæga reynslu.
Þeir munu leika lykilhlutverk hjá
okkur,“ sagði Rijkaard en kaup-
verðið er talið nema 13,7 milljón-
um punda fyrir þá báða. - hþh
Barcelona:
Fær Zambrotta
og Thuram
ZAMBROTTA Varð heimsmeistari með
Ítölum í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP
GOLF Bandaríkjamanninum Tiger
Woods gengur vel að verja titil
sinn á opna Breska meistaramót-
inu í golfi sem leikið er á Hoylake-
vellinum í Englandi. Woods var í
öðru sæti ásamt fjórum öðrum
eftir fyrsta keppnisdaginn en
gerði sér lítið fyrir í gær og sló
vallarmetið þegar hann endaði á
65 höggum. Ernie Els gerði reynd-
ar slíkt hið sama en hann er í öðru
sætinu, aðeins höggi á eftir
Woods.
Hann átti högg dagsins á 14.
holu vallarins þegar hann lenti í
miklum ógöngum eftir upphafs-
högg sitt en setti boltinn á ótrúleg-
an hátt ofan í holuna í öðru höggi
og fékk þar með örn. „Ég setti
niður nokkur svakaleg pútt og
fjórtánda holan hjálpaði mikið til,
augljóslega. Ég sá ekki flaggið
þaðan sem ég stóð og ætlaði bara
að halda boltanum beinum á móti
vindinum. Ég ætlaði bara að setja
boltann á flötina og ná fjórum en
það var bónus að fá hana á tveim-
ur,“ sagði Woods.
Graeme McDowell, sem var í
forystu eftir fyrsta hringinn,
slakaði á klónni og endaði hring-
inn á einu höggi yfir pari. „Von-
andi er Tiger ekki of langt á undan
mér og ég vona að ég nái að kom-
ast aftur á meðal efstu manna.
Pressan er farin af mér og nú get
ég virkilega notið þess að spila,“
sagði McDowell, sem virkaði
stressaður í gær en þriðji hringur-
inn verður leikinn í dag. - hþh
Spennan magnast enn á opna Breska meistaramótinu í golfi sem fer fram á Hoylake-vellinum í Liverpool:
Tiger Woods sýndi allar sínar bestu hliðar
WOODS Bíður eftir að kúlan renni ofan í holuna til að fagna. NORDICPHOTOSGETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þrátt fyrir að AC Milan
hafi þvertekið fyrir það að Kaka
sé til sölu segja fjölmiðlar á Spáni
að Real Madrid sé að undirbúa
risaboð í brasilíska miðjumann-
inn. Real er tilbúið að bjóða Kaka
sjö ára samning, sem yrði nærri
sjö milljón punda virði fyrir hvert
tímabil.
Talið er að Real muni freista
AC Milan með fjörutíu milljón
punda gylliboði sem félagið ætti
erfitt með að neita. AC Milan tekur
ekki þátt í Meistaradeildinni á
næstu leiktíð og þarf að hafa sig
alla við til að komast í keppnina á
næsta ári eftir að fimmtán stig
voru tekin af félaginu fyrir aðild
þess í Ítalíuhneykslinu. - hþh
Real Madrid:
Með risaboð í
Kaka?