Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 32
[ ] Þegar ekið er eftir strandlengju Kaliforníu á þjóðvegi númer eitt, má sjá einstaka náttúru- fegurð, hvítar strendur og gróð- ursæld og jafnvel hvali og seli. Þetta er staður til að slappa af og njóta lífsins enda vegurinn lagður aðeins til þess að fólk geti notið útsýnisins. Þjóðvegur númer eitt í Kaliforníu eða Pacific highway 1 er fyrsti vegurinn í Ameríku sem var byggður aðeins vegna útsýnisins, og ekur hann enginn bara til að komast á milli staða . Hann liggur frá Norður-Kaliforníu til suðurs og má sjá þrjár ólíkar hliðar á þessu stóra fylki á leiðinni: Norð- ur-Kaliforníu, þar sem íbúða- byggð er dreifð, fallegar strend- ur og himinháar risafurur; Mið-Kaliforníu, þar sem fáir búa og náttúran er einstök; og hina sólríku Suður-Kaliforníu með sólarströndum og vínekrum og stórborgarbyggð. Best er fyrir ferðalanga sem koma frá Íslandi að fljúga til San Fransiskó og hefja aksturinn þar og keyra suður, nema fólk hafi góðan tíma fyrir sér, þá er hægt að keyra norður alla leiðina til Legget, þar sem þjóðvegur 1 byrj- ar í risafuruskógi, og keyra svo aftur suðureftir í rólegheitunum. Vegurinn er hreinn draumur fyrir þá sem hafa gaman af því að keyra, því hann beygir og sveigir yfir hæðir og hóla og best er að keyra veginn í blæjubíl til að njóta hinnar stórbrotnu náttúru til hins ýtrasta með litrík fjöll öðrum megin en hvítar strendur hinum megin. Enginn sem ekur þessa leið ætti að flýta sér og best er ef fólk hefur eina til tvær vikur til að njóta þess alls sem leiðin hefur upp á að bjóða, en vel er hægt að fara hana á einum til tveimur dögum. Nauðsynlegt er að fylla tankinn áður en farið er út á veginn og hafa með sér vara- dekk, því oft getur tekið langan tíma að komast aftur inn á hrað- brautina og það má alls ekki gleyma myndavélinni heima. Göngugarpar ættu einnig að hafa gönguskóna með sér því mikið er um góðar gönguleiðir á leiðinni og góð tjaldstæði sem gaman er að gista á. Náttúran ein ætti að vera næg ástæða til að keyra þessa stór- brotnu leið, en á leiðinni er einnig að finna skemmtilega bæi sem vert er að kíkja á. Fyrst ber að nefna strandbæinn Santa Cruz þar sem pastellitirnir og afslöpp- uð brimbrettastemningin er alls- ráðandi. Gaman er að rölta um bæinn og fá sér tacos í Taqueria Vallarta og leika sér svo á strönd- inni. Monterey kemur þar næst- ur, hálfgerð andstæða við Santa Cruz, enda talað um að bærinn sé snobbaður og fínn. Þar er hins vegar að finna eitt besta sædýra- safn Ameríku, Monterey Bay Aquarium. Einnig er hægt að kíkja við í bænum Carmel-By- The-Sea þar sem Clint Eastwood var áður bæjarstjóri, en þar býr margt vel stætt fólk. Hjarta þjóð- vegarins slær þó í Big Sur sem er miðja vegu milli San Fransiskó og Los Angeles. Þar fær náttúran að njóta sín, og næg gisting í fjalla- kofum með útsýni yfir hafið. Auk þess er þar heilsulind og nánast hver einasti gististaður býður upp á nudd og spa, auk þess sem matseldin er þar í hæsta gæða- flokki. Í Big Sur er Andrew Mol- era State Park þar sem eru marg- ar gönguleiðir, þar er hægt að renna fyrir fisk á nokkrum góðum stöðum og tjaldstæðin eru góð. Fyrsti áfangastaðurinn á suð- urströndinni ætti að vera Santa Barbara, sem er einstaklega fal- legur smábær með Miðjarðar- hafsblæ. Vínrækt er þar mikil allt í kring og hægt að fara víða í vín- smökkun á leið sinni. Ferðinni lýkur svo í stórborginni Los Ang- eles, en af þjóðveginum er ekið inn í borgina meðfram ströndinni inn í Santa Monica og að hinni frægu Venice-strönd. Þá er hvíld- in úti og tími til að njóta glamúrs- ins í Hollywood. Þaðan er svo nokkurra tíma akstur suður til San Diego og Mexíkó, þar sem ævintýrið getur haldið áfram. Gleymdu ekki nestinu Ekið með hvítum ströndum Víða má sjá seli við Kaliforníustrendur. Við Big Sur á þjóðvegi 1 í Kaliforníu er mikil náttúrufegurð. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES Áhugaverðir staðir á leiðinni ■ Legget - þar stendur 96 metra há risafura sem hægt er að keyra í gegnum. En þar eru auk þess heilu skógarnir af risafuru. ■ Bodega Bay - besti staðurinn til að sjá hvali í janúar og febrúar og seli í nóvember. ■ Golden Gate-brú - Gaman er að labba yfir brúna og smella af mynd hinum megin. ■ Red Rock Beach - frábær strönd sem liggur rétt við Santa Cruz og fullkominn staður til að ná sér í smá brúnku. ■ Monterey Bay Aquarium - Heims- frægt sædýrasafn sem sýnir marglyttur, neðarsjávarskóg, hákarla og risakol- krabba. ■ Monetery Bay National Marine Sancturary - Verndarsvæði yfir 25 dýra- tegunda í útrýmingarhættu. Í klettunum má sjá sæta sæotra hvíla sig. ■ Deetjen’s Big Sur Inn - Hina full- komnu sveitasælu er hægt að finna í þessum norsku fjallakofum, með gistingu í öllum verðflokkum. ■ Henry Miller bóksafnið - Rithöfund- urinn bjó þarna á árunum 1944 til 1962. Á bókasafninu er bókabúð, listasafn og svið undir listviðburði. ■ Tassajara Zen-fjallaklaustrið - Þetta er fyrsta Soto Zen-klaustrið sem stofnað var utan Japan. Það stendur við Santa Lucia-hverina þar sem hægt er að baða sig. Einnig er hægt að gista í klaustrinu og fara á námskeið. ■ Hearst-kastali - Þetta er Graceland Kaliforníu, með 165 herbergjum, 61 baðherbergi, spænsku dómkirkjulofti, egypskum skrautmunum og endurreisn- armálverkum. Sjón er sögu ríkari. ■ Vínsmökkun í Santa Barbara - Þeir sem hafa séð myndina Sideways ættu að kíkja á þetta:www.santabarbara. com/winecountry Lopapeysan stendur fyrir sínu. Fullkominn ferðafélagi á svölum sumarkvöldum í tjaldi. Vínuppskera í Rín HEIMSFERÐIR EFNA TIL FERÐAR UM FEGURSTU SLÓÐIR ÞÝSKALANDS DAGANA 6. - 13. OKTÓBER. Að ferðast á fljótandi hóteli um Rín og Mósel hefur yfir sér ævintýraljóma. Siglt er fram hjá mörgum fallegum bæjum og þorpum og á milli þeirra teygja vínekrurnar sig upp hlíðarn- ar. Október er uppskerumánuður í vínræktarhéruðum við Rín og Mósel og gaman að fylgjast með vinnunni á ökrunum, kynnast því hvernig vínin verða til og jafnvel að smakka á guðaveigum. Flogið er til Hahn-flugvallar, skammt frá Frankfurt og ekið til Trier þar sem dvalið er fyrstu tvær næturnar. Næst verður ekið til Köln og þaðan hefst fjögurra daga sigling um fegurstu hluta Rínar og Mósel. Þægilegt er að líða áfram eftir ánni, leggja að í falleg- um smábæjum og borgum, fara í land og rölta um, skoða og njóta lífsins með fararstjóra sem þekkir þetta landsvæði vel. Helstu viðkomustaðir eru bæirnir Andernach, Rüdesheim, sem margir telja líflegasta bæ Þýskalands, Cochem við Mósel, gamla höfuðborgin Bonn og að lokum hin stórbrotna Köln með dómkirkjunni frægu. Í lok siglingarinn- ar verður gist í tvær nætur á hóteli á bökkum Rínar. Nánari upplýsingar eru á www.heimsferdir.is Í Móseldal eru hlíðarnar þaktar vínviði. MYND/MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR Oberstdorf er syðsti bær Þýskalands, við rætur Alpanna og fjallsins Nebelhorn (2.224 m) og því sannkölluð paradís útivistarfólks á öllum aldri. Nú bjóðum við upp á vikuferð í byrjun september þar sem gist er á hótelum og í fjallaskálum sem bjóða upp á mun meiri þægindi en fjallaskálarnir hér heima. Gengið er upp undir 6 tíma á dag og er farangurinn fluttur á milli gististaða, svo einungis þarf að bera dagspoka. Sérlega fallegt landslag, þar sem einnig gefst tækifæri til að sigrast á nokkrum tindum og fjallaskörðum í Ölpunum Fararstjóri: Helgi Benediktsson Verð: 134.800 kr. Mikið innifalið! s: 570 2790 www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R 2. – 9. september 2006 Sp ör - R ag nh ei ðu r In gu nn Á gú st sd ót tir í fjallasölum Alpanna Gönguferð Sa m kv . d ag bó ka rk ön nu n G al lu p ap ríl 2 00 6.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.