Fréttablaðið - 22.07.2006, Page 4

Fréttablaðið - 22.07.2006, Page 4
4 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR ������������������������������������������������������������������������������������ ������������� ������� ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� �������� ������� ���� ������� �� ��������������� ����������������� ������������� ������������� ��������������� ����������� ����������� ��������������� ����������� �������������� �������������� �������������� �������������� �������������� �������������� ����� ��������� ����� ���������������������� ������������������� �� ��������������� ����� �������� �������� ����� ��� ������� ��� �� ���������������������� ���������������� ������ �� �������������� ������� ����������� ������������ ������� ������ �������� �� �� ���������������� ������ �������������� ���� ��� �������������������� �� ������ ��������������� ��������� �� ���������� ���������������������� ���������� ��� �� ����� ������������� � ���� �� ������� ���� ��������������������� � ��������� ��������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� � � � � � � � � � � � �� F í t o n / S Í A SALA GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 21.7.2006 Bandaríkjadalur 73,68 74,04 Sterlingspund 136,80 137,46 Evra 93,36 93,88 Dönsk króna 12,512 12,586 Norsk króna 11,767 11,837 Sænsk króna 10,101 10,161 Japanskt jen 0,6343 0,6381 SDR 108,83 1089,47 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP 1289,3089 Gengisvísitala krónunnar ERLENT, AP Ísraelar setja nú aukinn kraft í árásir sínar í Líbanon. Ísra- elski herinn hefur kallað út varalið og ráðlagt íbúum Suður-Líbanons að hafa sig á brott. Talið er að her- inn undirbúi nú innrás landgöngu- liða sem fjölmenntu við landamær- in í gær. Rauði krossinn lýsti yfir neyðarástandi í Líbanon í gær og Sameinuðu þjóðirnar segja aðstæð- ur í landinu fara snarversnandi og neyð almennra borgara aukast frá degi til dags. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna harmaði að vegna eyðileggingar vega og brúa einangraðist Líbanon óðum frá umheiminum og æ erfið- ara yrði að sinna nauðsynlegu hjálparstarfi. Hann sagði að ýms- ar lífsnauðsynjar, eins og til dæmis hreint vatn, væru nú af skornum skammti. Talsmaður skrifstofu mannúð- armála hjá SÞ segir að erfitt sé að meta þörfina fyrir aðstoð, en telur að allt að hálf milljón manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín eða orðið fyrir stórfelldum óþægind- um á síðustu dögum. Birgðir neyð- arvista fyrir fjögur þúsund manns eru til reiðu en dreifing þeirra hefur tafist vegna ástands vega. Rauði krossinn segir hættulegt fyrir sjúkrabíla að keyra um vegna sprengjuárásanna og óttast er að smitsjúkdómar eins og mislingar og ýmsar öndunarsýkingar breið- ist út í þéttskipuðum neyðarskýl- um. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur einnig fjallað um ástandið í Líbanon og starfsmenn hennar segjast hafa miklar áhyggjur af mögulegu rafmagnsleysi á sjúkra- húsum. Sprengikúla lenti á eftirlitsturni Sameinuðu þjóðanna í gær, en SÞ hefur fylgst með landamærunum síðan Ísraelar drógu lið sitt út úr Líbanon árið 2000. Ísraelski herinn sagði Hizbollah hafa skotið á turn- inn en ónafngreindur liðsforingi SÞ sagði að sprengikúlan hefði komið úr skriðdreka Ísraela. Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF, greinir frá því á heimasíðu sinni að líklegt sé að þriðjungur særðra og látinna sé börn og ungmenni. UNICEF starf- ar ásamt Alþjóðaheilbrigðisstofn- uninni og heilbrigðisráðuneyti Líb- anons að sérstakri neyðaraðstoð fyrir börnin í landinu, svo sem vegna langvinnra veikinda og bráðatilfella. Í sameiginlegri yfir- lýsingu UNICEF og AHS segir að átökin í landinu hafi hrikaleg áhrif á andlega heilsu barnanna. Líbanski herinn hefur haldið að sér höndum hingað til en forseti Líbanons segir að það breytist um leið og Ísraelsmenn sendi land- gönguliðana yfir landamærin. klemens@frettabladid.is Neyðarástand í Líbanon Rauði krossinn hefur lýst yfir neyðarástandi í Líbanon. „Þetta er ekki lengur árás á Hizbollah-samtökin, þetta er árás á líbönsku þjóðina,“ segir forseti landsins. Börn eru nærri þriðjungur fórnarlambanna. SJÚKRALIÐI KEMUR BARNI UNDAN Móðir þessa barns særðist í sprengjuárás í þorpinu Jwaia í Líbanon. NORDICPHOTOS/AFP ALLT Í RÚST Erlendur myndatökumaður sést hér mynda eyðilegginguna í úthverfi Beirút- borgar í gær. Ísraelar hafa nú haldið úti stöðugum loftárásum á borgina í tíu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Gæsluvarðhald rann út í gær yfir íslensku pari sem hand- tekið var í Leifsstöð 6. júlí síðastlið- inn. Fólkið, sem er á þrítugsaldri, var handtekið við komuna frá Frankfurt í Þýskalandi með eitt kíló af kókaíni falið á víð og dreif í skóm sínum. Við leit á heimili fólks- ins fannst svo eitt kíló af hassi. Ekki var farið fram á framleng- ingu gæsluvarðhaldsins og hefur fólkinu því verið sleppt. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík telst málið upplýst og er ákæru nú beðið. - sh Ákæru beðið í fíkniefnamáli: Kókaínparið laust úr haldi VEÐUR Hitabylgjan í Evrópu hefur að öllum líkindum orðið um tuttugu manns að bana, þar á meðal 15 mánaða gömlu barni og 94 ára konu. Fjórir hinna látnu dóu á vinnustað, tveir við íþrótta- iðkun og tveir voru heimilislausir á götum úti. Hitabylgjan hefur haft marg- vísleg áhrif í Evrópulöndum. Í Þýskalandi hefur þurft að draga úr starfsemi þriggja kjarnorku- vera vegna þess að kælivatn, sem tekið er úr ánni Elbu, hefur hitn- að svo mjög að það er varla not- hæft til kælingar. Á miðvikudaginn, sem var heitasti dagurinn í Bretlandi, mældist hitinn í neðanjarðarlest- um Lundúnaborgar 47 gráður. Dómarar þar í borg létu sig hafa það að taka ofan hárkollurnar, sem þeim er skylt að nota við réttarhöld, og lífverðirnir við Buckingham-höll fengu leyfi til þess að standa í skugganum. Hinu megin Atlantshafsins, í Bandaríkjunum, hefur hitabylgja ekki síður gert fólki lífið erfitt núna í vikunni. Í borginni St. Louis og nágrenni hennar gerði ofsarok illt verra með því að valda rafmagnsleysi mitt í hitasvækjunni, þannig að kælibúnaður í húsum varð óvirk- ur. - gb Hitabylgja gerir fólki lífið leitt austan hafs og vestan: Tuttugu látnir í Evrópu KÆLA SIG Í GOSBRUNNUM Þessi börn fundu góða aðferð til að kæla sig í gosbrunnunum á aðaltorginu í bænum Antibes í Suður-Frakklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FERÐAMENNSKA Ferðamönnum hing- að til lands fjölgaði um tólf og hálft prósent í maímánuði síðastliðnum, miðað við sama mánuð í fyrra. Ríf- lega 31 þúsund ferðamenn heim- sóttu landið í maí. Fjöldi ferða- manna þetta árið er kominn upp í tæp 105 þúsund og nemur fjölgunin tæplega átta prósentum á milli ára. Bandaríkjamenn voru fjölmenn- astir og fjölgar þeim um tæp þrett- án prósent frá því í fyrra. Bretar koma þar skammt á eftir og fjölgar þeim mest allra í maí. - æþe Fleiri ferðamenn til landsins: Fjölgaði um rúm 12% í maí LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja- vík hefur í sumar stöðvað og kært ökumenn fyrir að henda sígarettu- stubbum og öðru rusli úr bílum sínum á götur borgarinnar. Er slíkur sóðaskapur brot á lög- reglusamþykktum borgarinnar og varðar sektum sem geta verið mis- munandi háar. Að sögn lögreglu ber mikið á að ökumenn og farþeg- ar hendi rusli hugsunarlaust út um gluggann og hvetja ökumenn til að taka sér tak. - aöe Lögreglan í Reykjavík: Subbur kærðar UMFERÐARMÁL Framkvæmdir standa nú yfir vegna miðlægrar stýringar umferðarljósa í Reykja- vík og er það samvinnverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðar- innar. Skipta þarf út eða uppfæra stýribúnað umferðarljósa á rúm- lega 30 gatnamótum og fyrir vikið hefur eldri samhæfingu ljósanna verið ábótavant undanfarið, til dæmis á Suðurlandsbraut. Með nýja kerfinu verður auð- veldara að breyta stillingu umferðarljósa eftir tíma dags og umferðarþunga. Nýja stjórnkerf- ið verður tengt í haust og stilling- um umferðarljósa verður stýrt miðlægt. - sgj Framkvæmdir í Reykjavík: Ný umferðar- ljós á næstunni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.