Fréttablaðið - 22.07.2006, Qupperneq 24
22. júlí 2006 LAUGARDAGUR24
BOB DOLE FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1923.
„Það er eitthvað að Ameríku. Stund-
um velti ég því fyrir mér hvað fólk
sé að hugsa um, ef það er á annað
borð að hugsa eitthvað.“
Bob Dole var öldungadeildarþingmaður Repúblik-
anaflokksins og frambjóðandi hans í forsetakosn-
ingunum árið 1996.
MERKISATBURÐIR
1908 Albert Fisher kemur á fót
Fisher Body Company en
félagið framleiddi yfirbygg-
ingar fyrir bíla.
1929 Landakotskirkja í Reykja-
vík er vígð en þá voru 55
manns í söfnuðinum og
sjötíu árum síðar voru þeir
um þrjú þúsund.
1933 Wiley Post varð fyrstur til
þess að fljúga einn í kring-
um heiminn, en hann flaug
tæpar sextán þúsund mílur
á sjö dögum.
1943 Bandamenn ná ítölsku
borginni Palermo á sitt vald
í seinni heimsstyrjöldinni.
1942 Kerfisbundin brottvísun
Gyðinga frá gettóinu í Varsjá
hefst.
2005 Lögreglan í London skýtur
mann til bana vegna gruns
um þátttöku hans í hryðju-
verkaárásunum sama ár.
Deng Xiaoping var settur aftur í starf sitt á þessum degi
en hann féll í ónáð í menningarbyltingunni í Kína á árun-
um 1966 til 1976. Deng Xiaoping fæddist
árið 1904 og lærði meðal annars í Frakk-
landi og Sovétríkjunum á sínum yngri árum.
Þegar hann kom heim til Kína varð hann
virkur innan kommúnistaflokksins og völd
hans fóru stigvaxandi.
Árið 1952 varð hann varaforsætisráð-
herra og síðar aðalritari flokksins. Deng
Xiaoping barðist fyrir efnahagslegum úrbót-
um í landinu og vildi efla hagvöxt en hug-
myndir hans stönguðust á við hugmyndir
Maós Zedong, formanns flokksins. Þó að
kommúnistaflokkurinn væri kominn til valda
(1949) þá taldi Maó að byltingunni væri ekki
lokið og hratt af stað menningarbyltingunni
árið 1966. Menningarbyltingin einkenndist af róttækni
og óróleika en Maó fékk ungt fólk innan stúdentahreyf-
ingarinnar til þess að taka þátt og voru stúdentarnir kall-
aðir rauðu varðliðarnir. Deng Xiaoping ásamt fleirum var
gagnrýndur harðlega fyrir störf sín og einhvern tíma á
árunum 1967-1969 missti hann allar stöð-
ur sínar innan flokksins og hvarf sjónum
almennings.
Maó missti að nokkru leyti stjórn á
menningarbyltingunni en ofbeldi og stjórn-
leysi fylgdi rauðu varðliðunum og voru liðs-
sveitirnar að mestu leystar upp, og lauk svo
menningarbyltinginni í raun árið 1969.
Árið 1973 fékk Deng Xiaoping aftur stöðu
sína innan flokksins, missti hana þremur
árum síðar og fékk hana aftur árið 1977 en
Maó lést árið 1976. Eftir að Deng komst aftur
til valda kom hann á ýmsum efnahagsleg-
um umbótum, hann dró úr miðstýringu, gaf
fyrirtækjum aukið frelsi, bætti viðskiptasam-
bönd við Vesturlönd og opnaði fyrir erlenda fjárfestingu
til kínverskra fyrirtækja. Undir stjórn hans jókst hagvöxtur
og stöðugleiki í Kína og lífskjör bötnuðu.
ÞETTA GERÐIST > 22. JÚLÍ 1977
Deng Xiaoping kemst aftur til valda
AFMÆLI
EIVÖR PÁLSDÓTTIR
SÖNGKONA ER 23 ÁRA.
STEINDÓR HJÖR-
LEIFSSON LEIKARI ER
ÁTTRÆÐUR.
ELÍAS MAR
RITHÖFUNDUR ER
82 ÁRA.
ÚTFARIR
11.00 Þórarinn Sighvatsson,
bóndi á Höfða í Dýrafirði, verður
jarðsunginn frá Mýrakirkju.
13.30 Guðríður Gísladóttir, frá
Seldal í Norðurfirði, Hvammsdal
9, Vogum, verður jarðsungin frá
Kálfatjarnarkirkju.
14.00 Guðrún Jónsdóttir, frá Nesi
á Rangárvöllum, verður jarðsungin
frá Oddakirkju.
AÐALSTEINN ÁSBERG
SIGURÐSSON RITHÖF-
UNDUR ER 51 ÁRS.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér
til hliðar má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Nú eru liðin 950 ár frá biskupsvígslu
Ísleifs Gissurarsonar, fyrsta íslenska
biskupsins, sem markaði þau tímamót
að Ísland varð biskupsdæmi í miðalda-
kirkjunni og kom landinu í vissum
skilningi á heimskortið. Af þessu til-
efni er Skálholtshátíð með veglegasta
móti, en hún hófst formlega í gær.
Mikið hefur verið um dýrðir í Skál-
holti það sem af er árinu en að sögn sr.
Sigurðar Sigurðarsonar vígslubiskups
er hápunktur hátíðarhaldanna nú um
helgina. Skálholtshátíð hefur verið
haldin nær óslitið frá árinu 1948.
„Rétt fyrir 1200 var ákveðið að taka
upp bein Þorláks helga og var það gert
20. júlí og dagurinn nefndur Þorláks-
messa að sumri. Það varð síðan mikil
hátíð fram að siðaskiptum,“ útskýrir
Sigurður.
Sigurður hefur verið vígslubiskup
staðarins í tólf ár og segir að ekki fari
hjá því að hann beri sterkar taugar til
þessa merka staðar sem svo samofinn
er sögu þjóðarinnar. „Nú var Stólasag-
an að koma út sem er merkilegt rit þar
sem saga biskupsstólanna í Skálholti
og á Hólum er rakin en þær upplýsing-
ar hefur ekki verið að finna áður á
einum stað. Hér var líka að koma út
svolítið kver um Ísleif biskup eftir
ungan sagnfræðing, Skúla Sæland, en
það er í fyrsta sinn sem heimildum um
hann er safnað markvisst saman.“
Skálholt hefur verið menningar- og
fræðslusetur frá fyrstu tíð. „Við
gælum við þá hugmynd að Gissur
hvíti, faðir Ísleifs, hafi komið hingað
frá Þingvöllum árið 1000 þar sem hann
átti stóran þátt í kristnitökunni og lét
byggja hér kirkju. Þetta hefur þá verið
mikilvægur kirkjustaður í þúsund ár.
Hér var stærsti skóli landsins í mörg
hundruð ár og mikið stjórnsýslusetur
því kirkjan var skipulögð héðan og í
gegnum skólann og staðinn komu
erlendir menningarstraumar inn í
landið.“
Sr. Sigurður segist vilja sjá Skál-
holt dafna sem fjölsóttan viðkomustað
gesta og ferðafólks þar sem þekkingu
um sögu þjóðarinnar og kirkjunnar
verði miðlað. „Ég vil líka að þetta verði
áfram kyrrlátur staður eins og hann
hefur alltaf verið,“ segir hann og bend-
ir á að staðurinn væri kjörið fræðaset-
ur fyrir margra hluta sakir. „Við eigum
þegar stórt og verðmætt bókasafn sem
er geymt í kirkjuturninum,“ útskýrir
hann og bendir á að í tilefni af hátíð-
inni barst staðnum einnig vegleg gjöf
frá góðvini sínum, hljómlistarmannin-
um Jaap Schröder, sem gefur staðnum
merkilegt safn nótna og tónlistarbók-
mennta, sem varðveitt verður þar og
gert aðgengilegt tónlistarfólki í haust.
„Við þurfum að byggja upp bók-
hlöðu, sýningar- og ráðstefnuaðstöðu
til þess að koma til móts við kröfur
nútímans. Þótt kirkjan standi alltaf
fyrir sínu þá þarf að sýna fólki fleira til
að koma skilaboðum sögunnar áleiðis,“
segir Sigurður og áréttar að enn sé
margt í sögu staðarins órannsakað og
fræðimenn framtíðarinnar geti því sótt
í þann brunn sem er falinn í Skálholti.
„Það er margt á huldu en við þurfum að
halda því á lofti að hvar sem menn ber
niður í sögu Íslands þá rekast menn á
Skálholt.“ kristrun@frettabladid.is
SR. SIGURÐUR SIGURÐARSON VÍGSLUBISKUP „Hvar sem menn ber niður í sögu Íslands þá rekast
menn á Skálholt.“
SR. SIGURÐUR SIGURÐARSON: FRÆÐASETUR FRAMTÍÐARINNAR
Vegleg Skálholtshátíð
Þökkum innilega samúð og stuðning við
andlát og útför móður okkar,
Valgerðar Þórarinsdóttur
Þá þökkum við góða aðhlynningu á Landspítalanum í
Fossvogi og alla þá miklu aðstoð sem starfsfólk
heimaþjónustu og heilsugæslu Kópavogs veittu henni
síðustu árin.
Dætur og fjölskyldur þeirra
Móðir okkar,
Ásdís Lárusdóttir
frá Austur-Meðalholtum í Flóa, fyrrum
símavörður á Kleppi,
lést laugardaginn 8. júlí og verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju, mánudaginn 24. júlí kl. 13.00.
Jarðsett verður í Gaulverjabæjarkirkjugarði.
Ólafur Ó. Lárusson
Hannes Lárusson
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ragna Guðrún
Hermannsdóttir (Bíbí)
Ásgarði 19,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
24. júlí kl. 15.00.
Guðsteinn Magnússon og fjölskylda
Innilegar þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Hermanns Helgasonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Grundar fyrir einstaka umhyggju.
Jóna G. Hermannsdóttir Haraldur Árnason
Sigurður Hermannsson Vilborg Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Kristínar Magnúsdóttur
Rjúpufelli 42, Reykjavík, áður
Vestmannabraut 10, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir sendum við læknum og hjúkrunar-
fólki á deild 13G á Landspítalanum við Hringbraut og
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Einar Ottó Högnason
Magnús Hörður Högnason Hrafnhildur Sigurðardóttir
Guðmundur Ingi Einarsson
Kristín Högna Magnúsdóttir