Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 26

Fréttablaðið - 22.07.2006, Síða 26
 22. júlí 2006 LAUGARDAGUR26 Hádegisörtröðin er rétt liðin hjá í Fljótt og gott þegar blaðamann ber að garði. Herdís hefur komið sér fyrir við borð við gluggann og býður upp á kaffi á meðan við bíðum eftir að Bjarni klári að ganga frá og tylli sér hjá okkur. „Hingað kemur fólk úr öllum stéttum. Ferðamenn, verkamenn, námsmenn og kaupsýslumenn,“ segir Bjarni Geir um leið og hann sest niður. „Björgólfur Guðmunds- son kemur hingað einu sinni í viku með drengina sína úr bankanum. Og þegar það þarf að endurmeta og gera eitthvað í Baugsmálinu þá sitja þeir frá embætti ríkissak- sóknara þarna undir fuglahúsinu,“ segir hann og hlær. „Hingað koma líka þingmenn og jafnvel forset- inn. Og svo lítur Björk stundum við í lúgunni eftir djammið.“ Hliðið að Reykjavík Hjónin hafa verið saman í veitingarekstri í hjartnær tut- tugu ár, þar af helminginn á Umferðarmið- stöðinni – „hlið- inu að Reykja- vík“ eins og Bjarni kallar hana. „Hingað koma allir eftir að flugrútan fór að koma hingað og fara héðan. Hér fara í gegn um 800 þúsund manns á ári. Það gera sér ekki allir grein fyrir þessu og halda að Umferðar- miðstöðin sé að hverfa þegar hún er þvert á móti að byggjast upp.“ Fljótt og gott komst meira að segja í heimspressuna um árið þegar hamborgaraætan Morgan Spurlock, sem gerði myndina Supersize Me, leit þar við gagn- gert til að fá sér sviðakjamma. Og þá kviknar spurning: Hvers vegna er boðið upp á sviðakjamma á umferðarmiðstöð? „Það hefur allt- af verið gert,“ svarar Herdís. „Þegar við Bjarni vorum að byrja saman var BSÍ hluti af rúntinum, rétt eins og í dag, og þá var hægt að fá hér svið. Þegar við tókum við staðnum ákváðum við að færa reksturinn meira til nútímans en um leið halda í það gamla og þar á meðal sviðin.“ Hins vegar þurfti að tengja sviðin meira við nútím- ann, bætir Bjarni við og það gerðu þau með því að bjóða upp á kjamma og kók. „Og þetta svín- virkar,“ heldur hann áfram. „Fólk kemur hér í löngum bunum, ungir sem aldnir, og biðja um svið. Sér- staklega koma menn með vini og ættingja að utan og vilja leyfa þeim að smakka. Svið eru með því vinsælasta sem við bjóðum upp á.“ Sprengja í Umferðarmið- stöðinni Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hjónin tóku við veit- ingasölunni í Umferðarmið- stöðinni, sem fyrir áratug var við það að geispa golunni. „Þetta var hálfgerð setustofa þegar við tókum við,“ segir Herdís. „Sömu mennirnir sátu hér og tefldu og spiluðu liðlangan daginn og ein- hverjir bísar héngu í símunum frammi í vafasömum tilgangi. Það hvarf alveg eftir að við tókum staðinn í gegn.“ Þau fundu hins vegar strax að þörfin á veitingasölu var sannar- lega til staðar í húsinu. „Fyrstu þrjú árin voru sérstaklega erfið og við unnum myrkranna á milli. Það varð hreinlega sprengja og við höfðum ekki undan við að stækka og breyta til að anna eftir- spurninni.“ Þau þvertaka þó fyrir að sitja á gullnámu. „Það verða fáir ríkir á veitingabransanum. Sérstaklega ef reksturinn er eins og hjá okkur. Ef þetta væri rassvasarekstur og við stæðum vaktina bara tvö og leggðum aðeins meira á vöruna væri sjálfsagt hægt að fá meira úr þessu. En við hugsum bara ekki þannig. Viljum frekar borga almennileg laun, hafa gott fólk í kringum okkur og bjóða upp á góðan mat á við- ráðanlegu verði.“ Hömpum Hnall- þóru of mikið Bjarni segir að markmiðið hafi verið að færa staðinn í heild sinni til nútíma- horfs en bjóða eftir sem áður upp á gamla góða heimilismatinn sem var og er uppistaðan í eldhúsinu á Umferð- armiðstöðinni. „Íslendingar halda Hnallþóru-kenningunni ennþá hátt á lofti. Við snobbum svo mikið fyrir útlöndum og þykir heimilis- maturinn okkar ekki nógu fínn. En í þetta sækja ferðamennirnir, þetta er hluti af reynslunni. Ég man eftir ítölskum hópi sem kom úr vikulangri ferð um landið og kvartaði sáran undan því að hvar sem þeir komu fengu þeir alltaf pasta í hádegismat. Þeir voru því yfir sig glaðir að komast í kjötsúp- una og kóteletturnar hérna.“ Ekki spillir fyrir að á Fljótt og gott er endalaus ábót, sem Bjarni og Herdís segja að margir nýti sér. „Svona viljum við hafa þetta. Pétur og Páll eiga að geta komið hingað og liðið eins og heima hjá sér og enginn á að þurfa að fara heim svangur. Við vitum líka sem er að fólk hefur bara visst maga- mál. Pólsku verkamennirnir sem koma hérna mikið í hádeginu eru reyndar botnlausir, við högnumst ekki mikið á þeim,“ segir Bjarni og hlær en bætir við að þeir auki við mannflóruna í húsinu og geri hana skemmti- legri. Næra líkama og anda Fljótt og gott er sannkallað fjöl- skyldufyrirtæki; auk Herdísar og Bjarna hafa börn- in þeirra fimm öll unnið á veit- ingasölunni, yngsta dóttirin sem er fjórtán ára byrjaði einmitt í sumar. Þá sér bróðir Herdísar um bókhald- ið. Sjálf sá hún um starfsmanna- hald og fleira á skrifstofunni þar til hún ákvað að færa út kvíarnar fyrir einu og hálfu ári og stofnaði versl- unina Gjafir jarðar í Ingólfsstræti, sem sérhæfir sig í andlegri velllíð- an. „Ég hef alltaf verið andlega þenkjandi og spáð mikið í kristöll- um og heilun og fannst vera kominn tími til að gera eitthvað við þetta áhugamál. Búðin gengur vel og er hægt og bítandi að spyrjast út. Þá má segja að meðan Bjarni nærir lík- amann þá næri ég andann.“ Þau segja að þeim hafi alltaf látið vel að vinna saman. „Hún stjórnar og ég hlýði. Eftir því sem ég hlýði betur kemst ég upp með meira,“ segir Bjarni og hlær. Útlendingar vilja heimilismat Til stendur að leggja hús Umferð- armiðstöðvarinnar niður og reisa aðra samgöngumiðstöð í grennd- inni. Bjarni Geir og Herdís segj- ast ekki vita hvað taki þá við en vona að þau fái að byggja upp aðra veitingasölu í sama anda og þá núverandi. „Við vonum að nýja húsið fyllist ekki af alþjóðlegum skyndibitakeðjum. Útlendingarn- ir hafa séð það allt og langar í eitt- hvað annað, eitthvað þjóðlegt. Þetta er eina umferðarmiðstöð landsins, eins undarlegt og það nú er, og þetta er eini veitingastaður- inn fyrir ferðamenn sem leggur áherslu á heimilismat,“ segir Bjarni og bætir við stuttri sögu máli sínu til stuðnings. „Fyrir nokkrum árum þegar Food and Fun var að byrja kom Baldvin Jónsson, skipuleggjandi hátíðar- innar, með nokkra útlenda meist- arakokka í mat til mín. Hann sagði mér síðar að þeir hefðu sagt bandarískum gourmet-kokki frá þessum stað og þegar Baldvin spurði hvað hann vildi gera í frí- tímanum svaraði sá ameríski að bragði: „To the bus terminal and get some typical Icelandic food.“ „Hún stjórnar og ég hlýði“ BJARNI GEIR OG HERDÍS Veitingasalan í Umferðarstöðinni var við það að geispa golunni þegar þau tóku við rekstrinum og blésu nýju lífi í staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJAMMI OG KÓK Til að vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á sviðum ákvað Bjarni að bjóða upp á kjamma og kók og segir það „svínvirka“. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Um 800 þúsund manns eiga leið um Umferðarmiðstöð Íslands á ári hverju. Flestir gestirnir eru vitanlega friðsamir og prúðir en óneitanlega slæðast þar stöku sinnum inn óróaseggir. „Það hefur margt breyst á þeim tíu árum sem við höfum rekið veitinga- söluna hér,“ segir Bjarni. „Mesta breytingin varð í kjölfar þess að opnunartími skemmtistaðanna var lengdur. Eftir það hefur það færst í aukana að fólk komi hingað þegar fer að halla undir morgun á aðfaranótt laugar- og sunnudags. Áður fyrr þekkti maður þá sem höfðu greinilega fengið sér of mikið að drekka og sagði þeim að hér fengju þeir ekki afgreiðslu. Nú hafa menn kannski verið á einhverjum vökulyfjum og eru hressir þegar þeir koma. Svo slaknar á þeim og þá sofna margir hverjir og bregðast hinir verstu við sé reynt að vekja þá. Í tvígang hefur það gerst að menn sem var reynt að vekja hafa tryllst. Nú reynum við ekki einu sinni að vekja þá sem sofna, heldur hringjum beint á lögregluna. Það hugsa ég að sé helsti munurinn á þessu, menn eru orðnir miklu agressívari en áður. En sem betur fer eru þetta undantekningarn- ar frá reglunni og sárafáir sem láta svona.“ Skuggahliðar Björgólfur Guðmundsson kemur hingað einu sinni í viku með drengina sína úr bank- anum. Og þegar það þarf að endurmeta og gera eitthvað í Baugsmálinu þá sitja þeir frá embætti ríkissaksóknara þarna undir fuglahúsinu. Ég man eftir ítölskum hópi sem kom úr vikulangri ferð um landið og kvartaði sáran undan því að hvar sem þeir komu fengu þeir alltaf pasta í hádegismat. Þeir voru því yfir sig glaðir að komast í kjötsúp- una og kóteletturnar hérna. Hjónin Bjarni Geir Alfreðsson og Herdís Björnsdóttir hafa rifið upp veitingasöluna Fljótt og gott í Umferðarmiðstöðinni á rétt rúmum áratug. Þangað kemur nú fólk úr öllum stéttum til að fá sér í svanginn – kaupsýslumenn í hádeg- inu og poppstjörnur á kvöldin – en heimilismat- urinn og stemningin sem fylgir er aðall staðarins. Bergsteinn Sigurðsson fór niður á BSÍ og fékk sér kjamma og kók.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.