Fréttablaðið - 22.07.2006, Page 29

Fréttablaðið - 22.07.2006, Page 29
LAUGARDAGUR 22. júlí 2006 3 Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Nú styttist óðum í þá helgi sum- arsins sem snýr þjóðfélaginu hvað mest á hvolf og sendir stór- an hluta Íslendinga í útilegu. Það er reyndar fyndið til þess að hugsa að reynsla margra af þessari hollu og skemmtilegu iðju takmarkist af þessari einu helgi og þeirri vafasömu blöndu af hegðunar- og veðurlægðum sem blasa þá við þeim. Að sama skapi eru margir óvanir því að keyra um landið, líkt og svo margir gera þessa helgi. Til að minnka álagið getur verið rétt að velja ferðatíma á skjön við fjöldann. Leggja af stað snemma dags eða jafnvel seint um kvöld. Það getur verið yndislegt að ferðast seint á kvöldin í góðu sumarveðri. Bara muna að hvílast vel áður og hafa með nóg af vatni eða öðrum óáfengum drykkjum – það held- ur manni ferskum, vakandi og glöðum í bragði. Áður en lagt er af stað er rétt að yfirfara bílinn. Það þarf ekki taka langan tíma og allir ráða við það. Athuga smurolíuna eins og við lærðum á bílprófinu, að það sé nóg af henni og hún ekki of dökk eða grá. Eru allar perur heilar? Minni á að stórir versl- unargluggar geta auðveldað þér að sjá hvort bremsuljósin virki. Er nógu djúpt munstur á dekkjunum? Dekk með 3-5 mm djúpu munstri ættu að ráða sæmilega við blautt vegyfirborð en þau mega alls ekki vera slitn- ari en það. Svo er líka nauðsyn- legt að kíkja á bensínstöð og tryggja að loftþrýstingur í dekkjum sé nægur og jafn. Líka í varadekkinu. Í leiðinni er svo hægt að finna tjakkinn og felgu- lykilinn og ekki úr vegi að prófa hvorutveggja. Ofantalin atriði eru öll nauð- synlegur undirbúningur. Sé bíll- inn farinn að eldast borgar sig að athuga líka bremsuvökva, kælivatn, olíu á gírkassa eða sjálfskiptingu og hlusta vel eftir því hvort núningshljóð komi frá einhverju hjólinu. Til að hafa vaðið fyrir neðan sig má líka fara aðeins lengra í undirbúningi. Startkaplar og dráttartóg eru góðir ferðafélag- ar svo ef þú átt auðvelt með að útvega slíkt er það þjóðráð. Auka viftureim getur bjargað fríinu frá vandræðalegri stytt- ingu í annan endann, sem og dekkjaviðgerðasett sem fæst á betri bensínstöðvum. Þegar þetta er allt komið á hreint á að vera hægt að keyra hvert á land sem er án teljandi vandræða. Munið bara að fara frekar hægar en hraðar, svo þið komist lifandi heim aftur. Það hefur líka enginn gaman af því að stressast upp og stunda stöð- ugan framúrakstur, bara til þess að komast á náttstað hálfum eða heilum klukkutíma fyrr. Miklu nær að taka því rólega, fylgja umferðarhraða með gott bil á milli bíla og hlusta á skemmti- lega útilegutónlist. Lykillinn að góðri helgi er nefnilega að njóta ekki bara áfangastaðanna, held- ur ferðalagsins líka. Bíllinn gerður klár Ástralskar reglugerðir reynd- ust ekki óyfirstíganlegur þrösk- uldur fyrir amerískar bílvélar. Eftir töluverða erfiðleika við að uppfylla reglugerðir hefur ástr- alski bílaframleiðandinn Elfin loks hafið framleiðslu á MS8 Streamliner sportbíl sínum. Einn stærsti þröskuldurinn í hönnunarferlinu var að ná 325 hestafla 5,7 lítra V8 mótornum frá GM undir leyfð hávaðamörk án þess að fórna afli. Þegar þeim áfanga var náð var gefið grænt ljós á framleiðslu þessa 1.050 kg bíls sem mun kosta um sjö millj- ónir úti í hinum stóra heimi. Drifrás, fjöðrun, bremsubún- aður og annað er eins og best ger- ist í kappakstursbílum líðandi stundar. MS8 er þó langt frá því að vera strípaður brautabíll því í honum er búnaður á borð við skriðstilli, skrikvörn og ABS- bremsur, auk þess sem innrétting- in þykir vel boðleg hinum almenna ökumanni. Elfin hefur fram- leiðslu á MS8 Allur nauðsynlegur nútímabúnaður, smekkleg innrétting, V-8 mótor - allt undir 1.100 kg. MS8 er nokkuð sérstæður í útliti en það var mótorinn sem reyndist erfiðastur í hönnunar- ferlinu. Power Pill FE-3 er nýjung á Íslandi, sem hentar að sögn söluaðila öllum bifreiðum. „Pillan hefur ótal kosti,“ segir Oddný Þórunn Bragadóttir söluað- ili Power Pill FE-3 á Íslandi. „Hún er gerð úr bensíni og því hálfgert bætiefni fyrir bílinn þar sem bens- ín er almennt orðið tiltölulega blý- laust.“ Oddný segir pilluna viðhalda vélinni og hreinsa út óhreinindi. „Þegar bensín fer í gegnum brennsluhólf, brennur ekki hluti þess og kemur út sem mengun. Eldsneyti fullnýtist með pillunni og hættulegur útblástur minnkar. Pillan er því álitin vera umhverf- isvæn.“ Að sögn Oddnýjar hentar pillan öllum bifreiðategundum og er góð fyrir mikið keyrða bíla. Díselbílar eru þar ekki undanskildir. „Ekki nóg með að góð eldsneyt- isnýting lækki bensínreikninginn heldur er notkun Power Pill FE-3 tiltölulega auðveld,“ segir Oddný. Í fyrsta skipti eru tvær pillur sett- ar í 60 lítra tank áður en hann er fylltur af eldsneyti. Ein pilla dugar eftir það.“ Oddný segir margar rannsókn- ir styðja virkni pillunnar. „Prófan- ir hafa verið framkvæmdar víðs- vegar um heim og hefur notkunin mælst vel fyrir. Sem dæmi nota breskir leigubílstjórar hana í síauknum mæli vegna góðs árang- urs.“ Power Pill FE-3 er framleidd af nýsjálenska fyrirtækinu Bio Active Technology, sem hefur að sögn Oddnýjar engin tengsl við olíufyrirtæki. „Hún var upphaf- lega hönnuð af NASA fyrir geim- ferðir, en hefur verið framleidd í bíla í nokkurn tíma erlendis, þótt hún hafi ekki verið til á Íslandi fyrr en nú.“ roald@frettabladid.is Bætiefni fyrir bílinn Til að nálgast Power Pill FE-3 er best að hafa samband við dreifingaraðilann Kristy í Borgarnesi annað hvort í síma 437-1234 eða með því að senda póst á kristy@sim- net.is FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Í fyrsta skipti sem Power Pill FE-3 er notað, er tveimur pillum stungið í tankinn áður en dælt er á hann. Ein pilla er sett í hvert skipti eftir það. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.